29.04.1929
Efri deild: 56. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (241)
17. mál, eftirlit með skipum og bátum
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Það er vel farið, að hv. sjútvn. hefir orðið sammála um að afgreiða frumvarpið eins og það kom frá háttv. Nd. í nál. á þskj. 417 vísar n. þeirri bendingu til stj., að ekki hafi verið gefin út reglugerð samkv. l. frá 19. júní 1922 um eftirlit með öryggi þeirra báta, sem 1. sjálf ná ekki til. Jeg tel sjálfsagt, að farið verði eftir óskum hv. sjútvn. um endurskoðun á tilsk. frá 20. nóv. 1922, og einnig um að sett verði reglugerð um eftirlit með smærri bátum.
Hv. frsm. vjek síðast í ræðu sinni að skoðunargjöldum af skipum og bátum, og sagði hann, að þar væri í hóf stilt um kostnaðinn. En eins og frv. var, þegar það kom frá skipaskoðunarmanninum, voru þessi gjöld ákveðin talsvert hærri. — Það var meining stj., að þetta eftirlit eigi að kostast af bátaeigendum, eins og bifreiðaskoðunin er kostuð af eigendum bílanna. Nú verð jeg að sætta mig við það, sem ákveðið er í frv.; með því hefir þó verið stigið spor í áttina. En jeg verð að telja, að skoðunargjöldunum hefði verið betur í hóf stilt fyrir ríkissjóð, ef þau hefðu fengið að standa óbreytt eins og þau voru í frv., þegar það var lagt fyrir Nd.