07.05.1929
Neðri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í C-deild Alþingistíðinda. (2443)

81. mál, bann gegn líkamlegum refsingum

Ásgeir Ásgeirsson:

Hv. 1. þm. Skagf. lagði þá spurningu fyrir mig, hvort jeg teldi þörf á þessari lagasetningu vegna kennarastjettarinnar í landinu, og hv. þm. Dal. skildi orð mín svo, að algengt væri, að kennarar beittu líkamlegum refsingum. Skildist mjer, að hv. þm. Dal. þættist hafa fengið hjer nýjar upplýsingar, sem hann hefði ekki haft hugmynd um áður. Jeg skal nú endurtaka það, sem jeg sagði. Jeg sagði, að flestir kennarar beittu alls ekki líkamlegum refsingum, nokkrir gerðu það stöku sinnum, en einstaka kennari hefði gert sjer það að reglu, og væri það þá á vitorði allra í viðkomandi skólahjeraði, er svo væri. En það er ekki vegna þess, að líkamlegar refsingar í skólum sjeu algengar, að jeg tel lagasetningu um þetta efni æskilega, heldur vegna þess, sem fyrir getur komið. Jeg tel ekkert höfuðatriði í þessu máli, hvort þessar refsingar eru tíðar eða sjaldgæfar. Hitt er aðalatriðið, hvort eigi að leyfa þær eða banna, og ef á að banna þær eða takmarka, þá á að gera það með lagasetningu, hversu sjaldgæfar sem þær kunna að vera. Annars þarf ekki að vera að leita upplýsinga hjer í deildinni um þetta atriði, því að almenningur veit ósköp vel, hver hætta er á að láta börn sín ganga í skóla, og veit að þessi tilfelli eru mjög sjaldgæf. Jeg býst þó við, að bæði jeg og aðrir heyri öðru hvoru, að strákur hafi verið barinn í skóla. Jeg get sagt eina hina síðustu af slíkum sögum, sem jeg hefi heyrt. Kennari er að tala um trúarefni við börnin og talar um þá innri rödd, sem segi okkur hvað rjett sje og rangt, og spyr börnin hvaða rödd þetta sje. Þá gellur við strákur einn í bekknum, sem þótti ódæll í meira lagi, og segir: „Djöfullinn“. Kennarinn gekk að strák og rjetti honum löðrung. Jeg segi þessa sögu vegna þess, að hjer í umræðunum hefir ekki komið fram, að ástæða geti verið til refsingar.

Mín afstaða til málsins er ekki bygð á því, að börnum sje nú yfirleitt nein hætta búin, heldur vil jeg að til sjeu föst ákvæði um þau tilfelli, sem fyrir geta komið. Það hefir verið sagt hjer, að skólastjóri hafi verið kærður af pólitískuni ástæðum, og kenslukonu hafi verið hlíft við brottrekstri af því, að hún var íhaldskona. Jeg skal að vísu játa, að mjer er ókunnugt um þetta tilfelli. (PO: Það var hv. 2. þm. Reykv., sem sagði þetta, svo að það er ekkert að marka). En meðan almenn ákvæði vantar um þessi efni, eiga þessar pólitísku slettur sjer altaf stað. Það er um þessi afbrot eins og önnur, að best fer á því, að pólitískir flokkar þurfi ekki að eigast við um þau í hverju einstöku tilfelli, heldur komi sjer saman um almennar reglur, sem farið skuli eftir. Jeg er á móti dagskrá þeirri, er hjer hefir komið fram, ekki vegna þess, að jeg vilji ekki viðurkenna, að hugsunarháttur manna sje yfirleitt mannúðlegur, heldur af því, að jeg vil setja almennar reglur um þessi afbrot og meðferð þeirra.