07.05.1929
Neðri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í C-deild Alþingistíðinda. (2450)

81. mál, bann gegn líkamlegum refsingum

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg ætla ekki að fara út í þá sálma, hvort ástæða sje til þess að banna munnlegar „hýðingar“ hjer á Alþingi, þótt umræðurnar hafi að vísu gefið nokkurt tilefni til þess. — Það sem jeg ætlaði að segja er það, að það er tæplega rjett, að jeg tali hjer í nafni allrar kennarastjettarinnar, eins og hv. 1. þm. Skagf. (MG) taldi, en jeg hefi talað í samræmi við óskir margra góðra kennara. Jeg vil þess vegna óska eftir því, að frv. verði vísað til nefndar, og mun jeg þá sjá um að komi fram umsögn frá þeim aðilja, sem einn getur talað fyrir hönd allra kennara, en það er stjórn Barnakennarafjelags Íslands.