04.04.1929
Neðri deild: 36. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (2472)
51. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. meiri hl. (Hannes Jónsson):
Hv. frsm. minni hl. hefir nú slegið því föstu, að það sje rjett hjá sjer, að það vanti yfirsetukonur í 30 umdæmi. Jeg hygg, að hv. þm. geti ekki fært rök fyrir því, enda þótt vitnað sje í brjef yfirsetukvenna, sem segir, að 189 yfirsetukonur sjeu í umdæmum utan kaupstaða, en að umdæmin sjeu 205. (SE: Þau eru 210). Það er að minsta kosti 5% of hátt; þau eru alls ekki meira en 199, ef talið er alt, sem jeg ætla að sjeu sjerstök umdæmi.
Nú er það svo á nokkrum stöðum, að sama yfirsetukona gegnir tveimur umdæmum, og veit jeg, að það hefir ekki verið fundið neitt að því fyrirkomulagi, sem er, og þá verð jeg að halda því fram, að hæpið sje að nokkuð vanti, nema ef vera skyldi það eitt að sameina þessi tvö umdæmi löglega, en það ætti kannske að gera víðar en verið hefir.
Þá vildi hv. frsm. minni hl. þakka mjer fyrir þær upplýsingar, sem jeg hefi gefið í málinu, en hefir þó alls ekki þakkað mjer fyrir eins og vera bar, því þá hefði hv. þm. átt að falla frá tillögum sínum, ef hann hefði viðurkent upplýsingar mínar eins og rjett var.
En út af því, sem jeg tók fram um það, hve margar hefðu útskrifast árlega, um 12 að meðaltali síðustu 10 árin, en ekki víst, að þörf sje fyrir nema 10–11 árlega, þá vildi hv. þm. slá því föstu, að þótt þær hafi lært þessi fræði sín, þá vilji þær ekki taka við þessum embættum, sennilega fyrir það, að launin sjeu svo lág. En jeg vil þá spyrja hv. þm. að því, hvort hann haldi, að þessar yfirsetukonur myndu frekar fara í sum þessara embætta, þótt laun þeirra væru hækkuð um 100 krónur.
Jeg gat þess fyr í ræðu minni, að í rannsókn þeirri, sem landlæknir gerði árið 1912, hefði hann orðið þess vísari, að sum umdæmin höfðu ekki nema 2–4 fæðingar á ári. Jeg býst við, að töluvert mætti hækka launin til þess, að yfirsetukona, sem ekki væri ættuð úr þessu hjeraði, fengist til að fara þangað. Það ber líka að athuga, að í slíkum hjeruðum, sem hafa svo fáar fæðingar, en yfirsetukonan fær 500 kr. árslaun, sem með dýrtíðaruppbót verður 700 kr., og með aukaþóknun o. s. frv., þá kæmi til að verða 4–5 hundruð kr. fæðingarkostnaður við hvert barn, og ef svo uppeldið yrði álíka dýrt, þá held jeg, að það yrði ekki nema bankastjórar, sem hefðu efni á að eiga börn. Það virðist vera nokkuð mikill kostnaður, sem þetta hefir í för með sjer, og því virkilega ástæða til að reyna að draga úr honum, eftir því sem föng eru til; en það er óhætt að fullyrða það, að altaf aukast skilyrðin fyrir því að geta stækkað umdæmin, bæði með bættum vegum og auknum símalínum, en eftir því sem samgöngubætur komast á, því meiri ástæða er til þess að stækka umdæmin. Útgjaldaaukinn af þessu frv., ef að lögum verður, nemur ekki 50 þús. kr., heldur 70 þús., því að við þessi 50 þús. bætist auðvitað dýrtíðaruppbót, sem eftir öllum sólarmerkjum að dæma verður ekki minni en 40%. (SE: Hvað kostar mannslífið?). Það skal jeg ekki reyna að reikna út, en jeg hygg, að það mundi verða farið að ljettast í pyngju hv þm. Dal. eða þess banka, sem hann er við, ef ekki ætti að hika við að greiða 50 þús. kr. fyrir hvert mannslíf, sem hugsanlegt væri að bjarga, ef öll hin bestu skilyrði væru fyrir hendi. Þá þyrfti að fjölga læknum og margfalda stærð sjúkrahúsa. En jeg vil nú slá því föstu, að það eru ekki neinar líkur til þess, þótt nokkur umdæmin sjeu sameinuð, að slíkt þyrfti að koma fyrir, að mannslífum sje teflt í voða, þó stækkuð sjeu umdæmi ljósmæðra, því að það er ekki tilætlunin að sameina umdæmi annarsstaðar en þar, sem alveg sjálfsagt þykir. Menn vita það t. d. með læknana, að þeir hafa mikil stærra svæði en yfirsetukonurnar, og ef ætti að fylgja sömu reglu hvað þá snertir, þá færi heldur að vandast málið, því þá yrði læknir að vera í hverju yfirsetukonuumdæmi. Nú er það líka svo, að læknis er oft vitjað til sængurkvenna, þótt jeg hafi orðið þess var hjer í Reykjavík, í viðtali við yfirsetukonur, að þeim finst lítið til um læknana og álíta, að þeir eigi ekkert að koma þar nærri, því að þær segja jafnvel: Þegar læknir kemur ekki, þá gengur alt vel, en sje læknir sóttur, þá má maður eiga það víst, að eitthvað verður að. Það er svo magnaður embættisgorgeir, sem farinn er að stíga þessum persónum til höfuðs, að það er ekkert byggjandi á því, sem þær leggja til málanna.
Jeg held, að jeg hafi svo ekki mikið meira um þetta að segja. En af því að mjer finst hv. frsm. minni hl. leggja svo mikið upp úr því, að þetta sje gert til að vernda mannslífin, vil jeg taka það fram, að það getur altaf komið fyrir, þótt yfirsetukonan komi nógu snemma, og sje meira að segja vel lærð, að mannslíf geti farið, en að halda því fram, að sængurkonur geti ekki náð til yfirsetukvenna, með þeim samgöngum, sem nú eru orðnar, held jeg að geti vart átt sjer stað.