07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (2486)

51. mál, yfirsetukvennalög

Fjmrh. (Einar Árnason):

Jeg geri ekki ráð fyrir því, að það sje þýðingarmikið að ræða þetta mál á þeim grundvelli, er það hefir áður verið rætt á hjer í þessari hv. deild. Slíkar ræður mundu aðeins verða endurtekning á því, sem áður hefir verið sagt, og mundu ekki sannfæra þá hv. dm., er tekið hafa fasta afstöðu til málsins á undanförnum þingum.

Það hefir verið fært ýmislegt fram sem sönnun þess, að sjálfsagt væri að samþ. launauppbót til ljósmæðra. Ein ástæðan var sú, að víða vantaði yfirsetukonur í umdæmin og að þær fengjust ekki, vegna þess hve launin væru lág. Það má nú vera, að eitthvað sje til í þessu, en í heild sinni held jeg, að það sje nokkuð orðum aukið, hve margt vanti af ljósmæðrum í umdæmin. Jeg skal og játa, að það má vera, að hækkuð laun í ljelegri umdæmunum geti bætt eitthvað úr þessu, en þó aldrei fullkomlega. Nú þegar ákveðin eru laun sjerstaks flokks, verður, eins og hv. frsm. minni hl. tók fram, að líta á tvent. Fyrst á getu ríkissjóðs til þess að launa starfsmenn hins opinbera eftir fylstu kröfu þeirra, og svo í öðru lagi, að ekki sje mjög mikið ósamræmi milli launakjara hinna ýmsu flokka.

Það mun hafa verið á Alþingi 1919, sem ákveðin voru laun ljósmæðra, um leið og ákveðin voru laun annara starfsmanna ríkisins. Sje jeg ekki, að ástæða sje til þess, að hægt sje að halda því fram með rökum, að Alþingi 1919 hafi gert upp á milli ljósmæðra og annara flokka, svo að þær hafi orðið ver úti en aðrir. Mjer hefði því fundist rjettast, að þetta mál biði eftir því, að launalöggjöfin verði endurskoðuð, svo meiri trygging verði fyrir því, að fult samræmi verði milli hinna einstöku stjetta meðal opinberra starfsmanna ríkisins.

Ef launakjör ljósmæðra eru borin saman við launakjör ýmsra annara starfsmannaflokka, svo sem hrepp stjóra og oddvita, þá er það greinileg misrjetti, ef þetta verður samþ., er laun þessara, er jeg nefndi, ekkert hækkuð. Það er víða svo, að laun hreppstjóra eru þetta 100–150 kr., er laun oddvita í 400 manna hreppum munu ekki vera nema 200 kr. Held jeg þó, að allir, er þekkja til, játi, að þeir hafa erfiðari störf en ljósmæður. Vil jeg þó á engan hátt gera lítið úr því starfi, er ljósmæður hafa með böndum, eða þeim vanda, er á þeim hvílir.

Hv. frsm. meiri hl. taldi sjálfsagt að þessi deild samþ. þetta frv. til þess að vera í samræmi við það, sem hún hefði áður gert. Mjer skilst nú, að í frv. felist hinar fylstu kröfur, sem ljósmæðurnar hafa gert. En ef Alþingi treystir sjer til þess að verða við fylstu kröfum allra starfsmanna hins opinbera, þá er jeg hræddur um, að það verði nokkuð þungur baggi, sem með því verður lagður á þjóðina. Jeg fyrir mitt leyti geng út frá því, að ekki verði hægt að fullnægja hinum fylstu kröfum, er gerðar verða. Jeg lít svo á, að líka verði að taka tillit til þess, hvaða lífskjör þjóðin verður að sætta sig við. Jeg verð því að segja það, að mjer þykir til mikils mælst hjá hv. frsm. meiri hl., er hann telur sjálfsagt að samþ. þetta frv., en ekkert annað af slíku tæi.

Samkv. núgildandi lögum voru útgjöld ríkissjóðs til ljósmæðra á árinu 1928 45400 kr. Samkv. þessu frv. verða útgjöldin 94200 kr. Hækkunin verður samkv. því 48800 kr., eða m. ö. o., að útgjöld ríkisins til ljósmæðra hækkaði eftir frv. um 100%. Jeg vil nú aðeins spyrja: Er Alþingi tilbúið að hækka laun allra opinberra starfsmanna ríkisins um 100%?

Jeg hefi gert athuganir um það, hvernig verði háttað launum ljósmæðra í 400 manna umdæmi eftir núgildandi lögum, eftir frv. og eftir brtt. mínum. 400 manna umdæmi mun vera heldur ofan við meðallag. Annars er þetta alveg tekið af handahófi. Munu mörg umdæmi vera stærri og mörg eru líka smærri. Laun ljósmóður í slíku umdæmi verða þá — jeg reikna með fullum launum og dýrtíðaruppbót — eftir núgildandi lögum 413 kr., samkv. frv. —700 kr. og samkv. brtt. þeim, er jeg flyt, 588 kr. Með þessu er sýnt, að með brtt. mínum er fengin mikil bót á kjörum ljósmæðra frá því, sem nú er. Sjerstaklega hafa þó brtt. mínar í för með sjer bætt kjör fyrir þær yfirsetukonur, sem eru uppi í sveit, enda hefir mjer skilist, að frv. væri aðallega flutt til þess að bæta kjör þeirra, er nú hafa lökust laun. Þetta fela brtt. mínar í sjer, því að þar er gert ráð fyrir því, að þær fái mesta hækkun, er nú búa við lökust kjör, en hinar, sem nú hafa hærri laun, fá minna. Þetta er í samræmi við launakjör þau, er læknum voru sett 1919. Þá var gert svo ráð fyrir, að læknar í ljelegum hjeruðum fengju hærri laun. Var það vegna þess, að rjett þótti, að þeir fengju mesta hækkun, er lægst voru launaðir og höfðu yfir höfuð erfiðasta aðstöðu.

Jeg hefi ekki haft tíma nje tækifæri til þess að athuga, hve útgjöldin til ljósmæðra hækka mikið eftir till. mínum, en jeg geri ráð fyrir, að það verði nokkuð yfir 50%. Og jeg verð að segja það, að eftir þeim undirtektum, er kröfur embættismanna um hækkuð laun hafa fengið hjer á þingi, þá virðist mjer ljósmæður ekki hafa ástæðu til þess að kvarta, ef þær fá þá hækkun, er brtt. mínar gera ráð fyrir. Þykir mjer það mjög ógætilegt að fara nú, þegar endurskoðunar launalaganna er ekki langt að bíða, að fullnægja fylstu kröfum eins flokks. Það getur dregið dilk á eftir sjer, og þætti mjer ólíkt hyggilegra að hafa óbundnar hendur í þessum málum, því jeg býst við því, að það verði nógu erfitt samt að samræma launakröfurnar síðar meir. Jeg þykist þess nú viss, að þessi hv. deild muni samþ. einhverjar launabætur handa ljósmæðrum, en jeg verð að halda því fram, að það skifti miklu máli, hvort frv. verður samþ. eins og það nú liggur fyrir eða hvort samþ. verða brtt. mínar.

Vitanlega eru hv. dm. sjálfráðir, hvað þeir gera, en jeg hefi talið skyldu mína að vara þá við svo mikilli hækkun sem farið er fram á, án þess að jeg vilji á nokkurn hátt beita hörðu gagnvart ljósmæðrunum. Jeg vil, að þær njóti allrar sanngirni og velvildar, enda þykist jeg með brtt. mínum sýna þeim fullan sóma.