07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í C-deild Alþingistíðinda. (2489)

51. mál, yfirsetukvennalög

Ingibjörg H. Bjarnason:

Það er búið að taka það svo rækilega fram, að frv. það, sem hjer liggur fyrir, hafi átt því fylgi að fagna hjer í hv. d. á undanförnum þingum, að það mundi skjóta nokkuð skökku við, ef hv. d. feldi það nú. Jeg ætla að minsta kosti ekki að trúa því fyr en jeg tek á.

Það er þegar búið að taka fram alla aðalagnúana á brtt. hæstv. fjmrh. á þskj. 498, og ætla jeg ekki að fara lengra út í það. Jeg skal að vísu viðurkenna, að í þeim felast nokkrar bætur frá því sem nú er, en þær fara í aðra átt en kröfur ljósmæðranna. Jeg skal taka fram eitt atriði, sem ekki hefir verið minst á undir umr. þessum. Námstími ljósmæðraefna hefir t. d. verið lengdur úr 6 mánuðum í 9 mánuði. Námsstyrkurinn er að vísu 45 krónur á mánuði með dýrtíðaruppbót. En það er fjarri því, að sú upphæð hrökkvi fyrir nauðsynlegustu útgjöldum þeirra. Kostnaður, sem hver einasti ljósmóðurnemandi verður sjálf að bera, nemur 600–800 kr. Þar af fer oft allmikið í ferðakostnað. Kröfurnar, sem gerðar eru nú, eru alt aðrar en áður. Í skólanum verða nemendur meðal annars að vera svo búnar sem fylstu hreinlætiskröfur mæla fyrir; fatnað þann verða þœr sjálfar að leggja sjer til, og er það ekki lítill kostnaðarauki. Þau fyrirmæli eru nauðsynleg vegna þess, að ljósmæðurnar eiga síðar að vera talsmenn þrifnaðar og hollustuhátta úti um sveitir landsins og vinna þar með því ekki lítið gagn og menningarstarf.

Það hefir verið gerður samanburður á laununi ljósmæðra og hreppstjóra og oddvita, og má vel vera, að sá samanburður sje á rökum bygður. En laun ljósmæðra hækka ekki fyrir það. Þær fá 7 krónur fyrir að taka á móti hverju barni og vinna kauplaust fyrsta sólarhringinn. Jeg skil ekki i, að hreppstjórar og oddvitar þurfi að verja jafnlöngum tíma til þess að ráðstafa einum þurfalingi eins og ljósmæður til þess að taka á móti einum nýjum heimsborgara. Ljósmóðurstarfið má aldrei skoða sem aukastarf. Ljósmæður geta t. d. alls ekki leitað sjer atvinnu utan síns umdæmis, nema þá örstuttan tíma í senn, og þurfa þær til þess samþykki hlutaðeigandi hjeraðslæknis. Heima fyrir geta þær auðvitað sint ýmsum störfum. Sjeu þær giftar, geta þær að jafnaði sint um heimili sitt, en þær verða að vera viðbúnar að fara að heiman þegar þær eru kallaðar. Ljósmæður verða að vera svo mentaðar í sinni grein, að þær njóti trausts og hylli almennings, því oft verða þær að koma í læknis stað; hann er eins og vitanlegt er, ekki sóttur nema eitthvað mikið beri út af.

Að síðustu vil jeg taka það fram, að það mundu ekki vera um 30 ljósmóðurumdæmi laus, ef kjörin þættu eftirsóknarverð. Sem betur fer eru til bæði menn og konur, sem ekki leggja alt upp úr laununum. Nú á tímum verða þó allir einnig að hugsa um þá hlið atvinnu sinnar, að hún gefi þeim nokkra tryggingu fyrir sæmilegri afkomu.

Það voru aðeins þessi fáu atriði, sem jeg vildi taka fram, og jeg vænti nú, að þessi hv. d., sem undanfarið hefir staðið nær óskift um þetta mál, taki því enn vel og samþ. frv.