07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í C-deild Alþingistíðinda. (2490)

51. mál, yfirsetukvennalög

Fjmrh. (Einar Árnason):

Jeg hefði óskað, að þeir hv. þdm., sem mest hafa mælt með þessu frv., hefðu sýnt því þann sóma, að vera viðstaddir þessar umr. Jeg get til dæmis ekki komið auga á hv. frsm. meiri hl. (JBald) hjer í deildinni. Enda þótt jeg búist ekki við að geta sannfært hann, hefði hann málsins vegna gjarnan mátt hlusta á mig.

Hv. frsm. meiri hl. hjelt því fram, að ekki þýddi að bíða með launabætur handa yfirsetukonum eftir því, að launalögin yrðu endurskoðuð. Það hefði átt að gerast 1925, 1926 og síðan jafnvel á hverju ári. En þetta er ekki rjett með farið. Það voru ekki launalögin sjálf, sem átti að endurskoða 1925, heldur dýrtíðaruppbótin.

Hv. þm. taldi enga leið að bæta frv. og hv. þm. Snæf. kallaði mínar brtt. smánarbætur. Þetta eru vitanlega ekki annað en slagorð út í loftið. Eftir núgildandi lögum eru meðallaun ljósmæðra 413 kr. á ári, eftir mínum brtt. 588 kr. og eftir frv. 700 kr. Mínar till. eru því miklu nær frv. en gildandi lögum.

Þá vildi hv. frsm. meiri hl. halda því fram, að mínir útreikningar væru rangir. Það getur hann verið viss um að er ekki, en það má vera, að hann hafi misskilið mig. Þegar jeg talaði um kjörin í 400 manna umdæmi, þá átti jeg við full laun með aldursuppbót. Jeg hefi hjer fyrir mjer skýrslu um laun ljósmæðra á öllu landinu, bæði um grunnlaun, aldursuppbót og dýrtíðaruppbót. Þessi skýrsla lýgur ekki. Hún er gerð í fjármálaráðuneytinu nákvæmlega eftir þeim útborgunum, sem fram hafa farið síðasta ár.

Hv. frsm. meiri hl. vildi halda því fram, að ríkissjóðurinn væri svo fullur, að ekki gerði til, þó að seilst væri nokkuð niður í hann, og á hv. þm. Snæf. mátti heyra, að honum væri það ljóst, að fleiri kæmu á eftir, en það gerði bara ekkert til. Það er eins og þessir hv. þm. sjeu ánægðastir með það, að ríkissjóðurinn væri altaf tómur.

Hv. þm. Snæf. taldi lítils virði þær launabætur, sem jeg vildi veita ljósmæðrum. Um það skal jeg ekki deila. En það er annað, sem við getum deilt um, og það er, hversu mikið starf ljósmæðra úti um landið er. Eftir þeirri skýrslu, sem jeg hefi hjer fyrir framan mig, eru mörg umdæmi á landinu, þar sem íbúatalan nær ekki 200 manns. Hv. þm. Snæf. er nú læknir, og veit hann sjálfsagt vel, hvað það er mikið starf að vera ljósmóðir í þessum umdæmum. Hann veit sjálfsagt, hvað margar fæðingar koma á hverja 200 íbúa. En jeg get samt sagt honum það. Þær eru 4. Hv. þm. heldur fram, að þetta geti alls ekki talist aukastarf, en sannleikurinn er sá, að þetta er ekki og getur ekki orðið annað en smávægilegt aukastarf í flestum sveitaumdæmum. Við höfum vanist því í sveitum landsins, að ljósmæður fengju nokkru hærra gjald fyrir að vera hjá konum en skylt er, en þrátt fyrir það vil jeg launa þeim betur en öðrum sambærilegum starfsmönnum í sveitunum. Þetta kallar hv. þm. Snæf. smánarbætur.

Þá er það fært fram sem ástæða með þessu frv., að það vanti ljósmæður í mörg umdæmi á landinu, og hljóti það að benda á, að kjörin þyki ekki eftirsóknarverð. Jeg get játað, að þetta muni vera rjett, að það vanti ljósmæður í nokkur umdæmi, — hversu mörg hefi jeg ekki fengið upplýsingar um. En hitt hefi jeg fengið upplýsingar um, að ljósmæðraskólann sækja nógu mörg ljósmæðraefni, og þær útskrifast þaðan nógu margar til að fullnægja þörf landsmanna.

Hvers vegna er nú þetta svo? Jú, það er af því, að kjörin þykja ekki eins óaðgengileg eins og af er látið. Stúlkurnar vita vel, þegar þær fara í ljósmæðraskólann, að hvaða launakjörum þær hafa að ganga. Það eru sem sje alt önnur atvik, sem valda því, að þær fara ekki í þessar stöður. En er það ekki líka annað og meira, sem liggur á bak við þetta, að okkur, að sumra sögn, vantar ljósmæður? Jeg veit að minsta kosti til þess, og það er sannanlegt, að það hafa verið hafðar í frammi hótanir við þm. um, að ef þeir ekki greiddu atkv. á viðeigandi hátt, þegar um þetta launamál er að ræða, þá skuli verða sjeð um það, að þeir fái ekki ljósmæður í þau umdæmi, sem þeir þurfa að útvega ljósmóður fyrir. Ef þannig er í pottinn búið, þá er ekki von á góðu.

Hv. 2. landsk. þarf jeg ekki að svara mörgu. Hann talaði um, að námið væri dýrt. Já, ríkissjóður styrkir það nú að nokkru, og jeg veit líka um ýms sveitarfjelög, sem hafa styrkt ljósmæðraefni sín til náms, og það tel jeg heilbrigt og rjett. Þá geta sveitarfjelögin valið til þess þær stúlkur, sem þau þekkja og hafa trú á til þessa starfs, og þær vita líka betur, að hverju þær ganga.

Um það, hvaða borgun yfirsetukonur fá á heimilunum, er það að segja, að það er rjett, að það er ákveðið. En þar með er ekki hægt að slá neinu föstu um, hvað borgunin verður mikil í raun og veru. Jeg veit, að fátækir foreldrar geta ekki borgað mikið, og það er ekki hægt að ætlast til þess, en jeg veit, að þeir, sem eru sæmilega efnum búnir, munu greiða þetta ríflega, og jeg tel það vel farið.

Jeg get alls ekki fallist á, að þetta frv. sje eina rjetta leiðin í þessu máli. En í mínum brtt. tel jeg að felist svo mikil bót á kjörum þessarar stjettar, að vel megi við hana una, þangað til fleiri stjettir koma til greina, að því er laun snertir.