07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (2499)

51. mál, yfirsetukvennalög

Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):

Það er aðeins örstutt aths. viðvíkjandi dæmi og útreikningum hæstv. fjmrh. Hann hjelt því fram, að launahækkun ljósmæðra alment væri 100% samkv. frv. Sem dæmi tók hann svo ljósmóður, sem hefur nú í laun 350 kr., en fær eftir frv. 560 kr. Jeg fæ nú ekki betur sjeð, en að launahækkunin hjer sje aðeins 60%, en ekki 100%. (Fjmrh.: Í þessu einstaka tilfelli). Hvers vegna tók þá hæstv. ráðh. ekki annað heppilegra dæmi? Auðvitað af því, að það hefir varla verið til. Launahækkunin er nú ekki gífurlegri en þetta.

Hæstv. ráðh. gerði tilraun til þess að skýra, hvað kæmi sveitarstjórnum til að ráðstafa og útvega ljósmæður.

Jeg hafði dregið þá eðlilegu ályktun, að þessu hlyti að velda raunverulegur eða fyrirsjáanlegur skortur á ljósmóður í því og því umdæmi. Jeg skil ekki, hvað það á að sanna hjá hæstv. ráðh., þótt hreppsnefndir skifti sjer af því, hvaða þarfanaut sjeu alin upp í sveitum. Jeg skil heldur ekki, hvað það kemur þessu máli við. Ef það á að sýna, að sveitarstjórnir hefðu sitthvað með höndum, sem ekki væri venja, að bæjarstjórn hjer í Reykjavík skifti sjer af, þá býst jeg nú við, að þessu megi líka snúa við og segja, að bæjarstjórnin hafi ýms mál með höndum, sem sveitarstjórnirnar hafa ekki, en það kemur þessu máli hreint ekkert við. En það er ómótmælanlegt, að þegar sveitarstjórnir kosta ungar stúlkur til ljósmóðurnáms, þá er það af því, að þær vilja á þann hátt tryggja það, að sveitin fái ljósmóður. Það var rjett ályktun, sem jeg dró af þessum ummælum ráðh. áðan.

Þá hjelt hæstv. forseti deildarinnar, hv. þm. A.-Húnv., mjög skemtilega ræðu, sem kom mönnum til að brosa, en um rök var ekki að ræða í máli hans. Jeg hygg, að þótt leitað væri með logandi ljósi, þá myndu engin rök finnast, fremur en ef farið væri í geitarhús að leita ullar. Hann ásakaði okkur jafnaðarmenn fyrir eyðslusemi á landsfje og að við vildum ekki spara. Já, það fer nú eftir því, hvers kyns sparnað er um að ræða í hverju einstöku tilfelli. Sparnaður getur verið góður og ekki góður. Til dæmis má nefna það, að fyrir nokkrum árum var stofnaður flokkur til þess að spara og halda í. Nú er sá flokkur orðinn leiður á sparnaðar- og íhaldsnafninu og vill gjarna losna við það nafn.

Sparnaður á landsfje er alment æskilegur, en í framkvæmdinni vill það hjá mörgum verða þannig, að þeir spara eyrinn, en kasta krónunni. Nýlega hefir t. d. þessi deild, og með atkv. hæstv. forseta, hafnað stórkostlegum tekjum fyrir ríkissjóð, og kom þó sá skattur ljett niður á landsmönnum.

Svo var hæstv. forseti að reyna að færa ástæður fyrir því, að ekki væri sannað að ljósmæður vanti í sveitirnar. Hæstv. forseti ætlar því sennilega að bíða með að trúa þessu, þar til við 3. umr., til þess að geta greitt atkv. með brtt. hæstv. fjmrh. En það er einmitt sterkasta röksemdin í þessu máli, að það vantar ljósmæður í mörg umdæmin, hvort sem hæstv. forseti vill nú fresta að trúa því þar til seinna eða ekki. Og af hverju fást þær ekki? Af því vitanlega, að kjörin eru ljeleg. Það gildir því alveg hið sama um þessi störf eins og flest önnur, að enginn fæst til þess að vinna þau, þegar of lítið er fyrir þau greitt.

Þá sagði hæstv. forseti, að jeg vildi láta alla launaflokka fá það, sem þeir heimtuðu. Þetta og því um líkt eru aðeins slagorð út í loftið. Ljósmæðurnar hafa t. d. farið fram á hærri laun en hjer er lagt til að þær fái. Í frv. er farin millileið á milli krafanna og kaupsins, sem þær hafa nú. Hitt getur svo hver og einn sagt sjer sjálfur, hvort það er t. d. hægt fyrir einhleypa konu, sem starfað hefir sem ljósmóðir í 15 ár, að halda sjer uppi fyrir 275 kr. á ári. Hjer er því ekki nema um lítilsháttar stuðning að ræða, en það getur altaf verið álitamál, hvað menn telji sómasamlegan stuðning, bæði í þessu tilfelli sem öðru. Jeg fyrir mitt leyti tel það sómasamlegan stuðning, ef ljósmæður, sem starfa í sveitum, fá 500 kr. í árslaun, en eins og allir hljóta að sjá, vantar þó mikið á það, að þær geti lifað af þeim launum eingöngu. Þær verða því að vinna mikið umfram í þessi störf og má því til sönnunar benda á, að skrifstofustúlkur bæði hjer í Reykjavík og víðar, hafa frá 150–300 kr. á mánuði, og búðarstúlkur 100–200 kr. á mánuði, og er það síst talið of hátt kaup. Eru þó margar þeirra heima hjá foreldrum sínum og vandamönnum og þurfa því ekki að sjá fyrir sjer að öllu leyti. Hvað því snertir þessi umræddu laun yfirsetukvennanna, þá eru þau svo lág, að þau eru langt frá því að geta talist full laun í til framfærslu hlutaðeigenda, og það í varla þó að þau væru sett eins há og fylstu kröfur ljósmæðranna eru. Enda er það svo, að enginn ætlast heldur til, að þau verði svo há, að þær geti eingöngu lifað á þeim.