07.05.1929
Efri deild: 63. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2502)
51. mál, yfirsetukvennalög
Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):
Hv. þm. Snæf. sagði í síðustu ræðu sinni, að brtt. hæstv. fjmrh. fælu það í sjer, að laun ljósmæðra í minstu hjeruðunum gætu ekki farið upp úr 400 kr. Þetta leikur á tveim tungum eftir því, hvort dýrtíðaruppbót er reiknuð með eða ekki. Eftir þeirri dýrtíðaruppbót, sem gilti síðastliðið ár, þá lætur nærri, að laun þeirra ljósmæðra, sem hv. þm. Snæf. sagði að yrðu fyrir mesta misrjettinu, myndu nema um 560 kr. Og ef litið er á hagskýrslurnar, þá lætur nærri, að laun yfirsetukvenna samkv. þessum till. verði jafnmörg hundruð og skýrslurnar gera ráð fyrir mörgum fæðingum á ári.
Þá hefir verið fullyrt, að ljósmæður vantaði í 30 umdæmi á landinu. Þetta hefir verið talið hægt að sann skjallega, en það hefir aldrei verið gert. Svipaðar fullyrðingar sem þessar heyrðust 1926, þegar mál þetta var til umræðu í þinginu. Ljet jeg því rannsaka í fjármálaráðuneytinu síðustu launagreiðslukvittanir þessara starfskvenna, og kom þá í ljós, að til voru ljósmæður í nær því öllum ljósmóðurumdæmum landsins, til þess að taka á móti laununum. Hvernig þetta er nú, veit jeg ekki.