11.03.1929
Neðri deild: 19. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í C-deild Alþingistíðinda. (2554)

61. mál, sala á nokkrum hluta prestssetursins Hólma

Magnús Guðmundsson:

Það eru aðeins örfá orð. Jeg man ekki eftir því, að Alþingi hafi nokkru sinni tekið illa í beiðni sem þessa. Jeg álít það nauðsynlegt fyrir kaupstaðina að fá land til ræktunar og ósanngjarnt að neita þeim um það, þó að það verði til að rýra pretssetursjarðirnar. Jeg álít rjett, að það sje athugað í n,. hvort þetta hefir mikla skerðingu í för með sjer fyrir jörðina, en þó að sú verði niðurstaðan, finst mjer það svo mikil sanngirniskrafa hjá kauptúninu að fá landið, að ekki megi horfa í það. Jeg er yfirleitt fylgjandi beiðnum sem þessari.