06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í C-deild Alþingistíðinda. (2561)
61. mál, sala á nokkrum hluta prestssetursins Hólma
Frsm. meiri hl. (Gunnar Sigurðsson):
* * Ræðuhandrit óyfirlesið. Eins og hv. dm. er kunnugt, fer þetta frv. fram á að veitt verði heimild til þess að selja Eskifjarðarkaupstað hluta úr landi prestssetursins Hólma í Reyðarfirði. N. hefir nú athugað þetta mál ítarlega, og eftir að hafa kynt sjer álit viðkomandi sóknarprests, hefir meiri hluti hennar fallist á að mæla með því, að þessi heimild verði veitt.
Jeg hygg að flestir nefndarmenn líti svo á, að þar sem þessi kaupstaður er mjög landlítill og á allan hátt þröngt um bæinn, þá sje nauðsynlegt, að nokkuð sje úr því bætt. Er honum sjerstaklega brýn nauðsyn á því að fá land, er hann getur tekið til ræktunar. Og þar sem hjer er auk þess svo sjerstaklega ástatt, að presturinn leggur ekkert upp úr því að halda jörðina og mun þegar hafa boðið kaupstaðnum hana til sölu, ef heimild fengist, og þar sem það er mikils virði fyrir kaupstaðinn að fá þennan jarðarhluta, þá virðist meiri hl. n. ekki nema sjálfsagt að mæla með því að svo verði gert. Það mun einnig haga svo til þarna, að næstu jarðir við kaupstaðinn eru annaðhvort ekki fáanlegar, eða þá með slíku ofurverði, að slíkt getur ekki komið til mála.
Presturinn hefir sjálfur lýst þeim mun, er nú er á þessu höfuðbóli frá því er áður var. Hefir það gengið mjög úr sjer. Er nú svo komið, að prestinum er um megn að nytja það, bæði vegna fólksleysis og annarar erfiðrar aðstöðu.
Rjett er að geta þess, að biskupinn leggur á móti því, að þetta frv. verði samþ. En hann kemur hjer fram sem forsvarsmaður kirkjunnar og jarða hennar og verður því að skoðast sem hlutdrægur aðili í þessu sambandi (HK: Hlutdrægur?)
Jeg vona svo, að hv. dm. geti orðið okkur meiri hl. sammála um þetta mál, þar sem þetta er svo nauðsynlegt fyrir kaupstaðinn.