06.05.1929
Neðri deild: 62. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í C-deild Alþingistíðinda. (2569)
61. mál, sala á nokkrum hluta prestssetursins Hólma
Frsm. minni hl. (Hákon Kristófersson):
Jeg ætla fyrst að snúa mjer að hv. flm., sem var að þakka mjer fyrir þann greiða, að hafa birt brjef biskups. Mjer þykir vænt um þakklæti hans, en jeg vil segja, að hv. flm. átti ekki að ganga þess dulinn, að jeg vil, að hið sanna upplýsist í hverju máli.
Hv. flm. sagði, að afstaða mín til málsins mundi stafa af ókunnugleika og óskaði, að jeg ætti eftir að koma á þessar slóðir. Það er alveg rjett, að jeg hefi ekki þann kunnugleika, sem hv. þm. hefir, að því leyti, sem kunnugleiki fæst við að sjá staðinn. En jeg hefi athugað kortið og hugsað málið, svo að jeg get ekki talist því alls ókunnugur. Hv. flm. mintist á, að landsnytjar færu þverrandi á Hólmum.“ Hvernig mundi nú verða umhorfs þar, ef selt væri. Það má nærri geta, að ræktun verður aldrei framkvæmd á þessu landi nema með mikilli umferð, sem hlyti að raska þeirri kyrð, sem þar þarf að vera, vegna varpsins.
Það má benda á, að þó að þetta land yrði selt Eskifirði, yrði það ekki kaupstaðnum til hagræðis hvað beit snertir. Áður hefir verið bent á, að ef Eskifirði er þetta svo mikið áhugamál sem af er látið þá gæti hann tekið landið á leigu.
Hv. 1. þm. Árn. hefir greinilega skýrt þá hlið málsins, sem snýr að Reyðarfjarðarhreppi.
Hv. flm. telur Borgir vera smákot. Það er þó metið á 5300 kr., en Bleiksá á 15300 kr. Þetta köllum við Barðstrendingar ekki smákot, hvað sem gert er í Suður-Múlasýslu.
Hv. 2. þm. Rang. hóf ræðu sína með því að segja, að jeg hefði byrjað mál mitt í bráðræði og endað í ráðleysi. Þetta geta þeir einir sagt, sem álíta sig öðrum fremur vitrari. Því ekki að furða þó hv. frsm. meiri hl. segi slíkt!
Reynslan mun sýna, hvort ræður hans eru bygðar á betri grundvelli en mínar í þessu máli. Hvernig er hægt að ætlast til, að jeg geti komið eins vel fyrir mig orði og þaulæfður málafærslumaður, sem bæði er gáfaður og vel mentaður? En hv. þm. á ekki að temja sjer að gera lítið úr öðrum, þó að hann kunni að vera þeim fremri sjálfur. (GunnS: Jeg var að gjalda líku líkt). Nei, hv. frsm. var ekki að gjalda líku líkt. Jeg gerði ekki lítið úr hans hæfileikum til að semja greinilegt nál. Það ber vott um það, hve lítil rök eru fyrir hendi, þegar annar eins maður og hv. frsm. hefir ekki önnur rök fram að færa en brjef, sem alveg er búið að missa gildi sitt. Hann benti á, að alt ylti á samþykki prestsins, en hv. 1. þm. Reykv. hefir bent á, hve það er lítils virði. Mjer er ánægja að fá tækifæri til að leiðrjetta, ef hv. þm. heldur, að jeg hafi verið að gera lítið úr sjer. Nei, jeg hefi altaf viljað láta alla menn njóta sannmnælis.
Hv. þingm. til glöggvunar, leyfi jeg mjer að lesa upp dálítinn kafla úr brjefi biskups, svo hljóðandi:
„Til frekari skýringar á þessum brjefkafla skal þess getið, að það sem komið hefir hreyfingu á þetta mál, er að prestinum á Hólmum hafði komið til hugar að leigja kaupstaðnum afnot prestssetursjarðarinnar gegn því að hann (kaupstaðurinn) keypti af sjer öll þau hús, sem presturinn á þar á staðnum, gáandi ekki að því, að slíkt er með öllu óleyfileg meðferð á húsum á prestssetursjörð, enda þótt prestur eigi þau sjálfur. En áður en presturinn hafði fengið bendingu frá mjer um, að slíkt væri óheimilt, þá gekk ofannefndur fundur á móti húsakaupum nema því aðeins að hreppurinn fengi alla jörðina keypta. En frv. þar að lútandi vildi flm. ekki bera fram og hefir í stað þess komið fram með það frv., sem hjer liggur fyrir um kaup á nokkrum hluta af landi Hólma.“
Hv. þdm. munu að vísu hafa kynt sjer þetta áður, en til þess að þeim skyldi ekki falla þetta úr minni, vildi jeg rifja þetta upp áður en atkvgr. fer fram.
Hv. flm. vildi gera lítið úr þeim notum, sem Hólmar hefðu af landinu, en mikið má vera, ef land, sem liggur upp að túngarði jarðar, er ekki allmikils virði fyrir jörðina. En hv. 1. þm. Árn. (JörB) hefir farið inn á þessa hlið málsins og geri jeg hana því ekki að umtalsefni.