12.03.1929
Efri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í C-deild Alþingistíðinda. (2573)

60. mál, einkasala á lyfjum

Jónas Kristjánsson:

Maður er nú farinn að venjast því að sjá einkasölufrv. borin fram hjer á Alþingi. Þeim fjölgar ár frá ári. Það eru eins og nýir og nýir skollafingur, sem reyna að festa sig á rótum hinna og slást í einkasölulestina.

Jeg gæti nú samt látið vera að segja nokkuð misjafnt um þetta, ef það horfði til gagns fyrir land og þjóð. En svo er ekki að mínu áliti. Enda hafa þau einkasölulög, sem starfrækt hafa verið, sýnt, að þeir hagsmunir hafa ekki náðst, sem vonast var eftir.

Áður voru það lyfsalarnir einir, sem máttu panta lyfin, en læknar voru skyldir að kaupa af lyfjabúðunum. Þannig stóð þar til landsverslunin fór að afgreiða pantanir lækna. Hefi jeg engan heyrt kvarta undan því fyrirkomulagi, sem nú er, og virðist þá engin ástæða vera til að breyta. Hv. flm. vildi halda því fram, að varan yrði ódýrari. En honum tókst ekki að koma fram með neitt það, sem styddi skoðun hans. Ennfremur hjelt hann því fram, að varan yrði vandaðri. En jeg hefi enga trú á því, að lyfin verði vandaðri hjá þeim, sem enga þekkingu hafa á lyfjaverslun svo sem gert er ráð fyrir í frv., þar sem forstjóra Áfengisverslunar er ætlað að hafa þetta með höndum. Það eru því engar líkur til að betur gangi með þetta fyrirtæki en tóbaks- og steinolíueinkasölurnar, sem gáfu gagnstæða raun við það, sem vonast var eftir. Þar að auki mundi þetta valda óþægindum. T. d. er það svo með sáraumbúðir, sem almenningi er þörf á að sjeu sem víðast á boðstólum, en með einkasölu yrði ógreiðari aðgangur að þeim og þær sennilega dýrari. Þá er og annað, sem mælir móti einkasölu, og það er, að árlega eru lyfjabúðum og læknum send ókeypis sýnishorn af nýjum meðalategundum, sem þeir svo reyna að láta sjúklingum í tje ókeypis oft og einatt. Eru þau svo keypt áfram, ef þau reynast vel. Væri skaðlegt ef tæki fyrir þessa nauðsynlegu framþróun. — Er því margt að athuga við frv. þetta.

Þá er sjálf einkasöluhugsunin. Jeg sje ekki að hún verði hjer frekar en annarsstaðar almenningi til hagsbóta. Jeg skil ekki, að það sje heppilegt að setja á menn þetta einokunarhelsi á öllum sviðum. Það er eitur í mínum beinum, að framtak einstaklingsins sje heft, nema sýnt verði, að það sje þjóðinni til því meiri hagsbóta, en jeg hefi ekki trú á að það verði. Jeg vil ekki búa svo um, að hverri hendi, sem rjett er fram til framtaks, sje öxin vís, en að því virðist nú stefnt. Slíkt er að reiða vopn að heilbrigðri framþróun þjóðarinnar.

Jeg skil ekki í þeim mönnum, sem aldir eru upp við frelsi fjallanna, sem hafa verið smalar eins og jeg og andað að sjer fersku fjallaloftinu, jeg skil ekki í þeim, ef þeir geta verið með slíkum lögum, sem hefta frelsi og framtak manna. Það er betur hægt að skilja, að slíkar skoðanir þroskist í þrengslum og fátækrahverfum stórborganna. Jeg verð ætíð mótfallinn því að ganga inn á þá stefnu, og sjerstaklega, er ekki verður sjeð, að það sje neinum til gagns. — Hv. flm. sagði, að frv. þetta væri ekki nýr gestur hjer á Alþingi. En það er gestur, sem jeg vildi sem sjaldnast sjá.