12.03.1929
Efri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 433 í C-deild Alþingistíðinda. (2575)
60. mál, einkasala á lyfjum
Halldór Steinsson:
Eins og hv. flm. gat um, lá frv. fyrir þinginu 1921, er gekk í svipaða átt og frv. það, sem nú er til umr. Fyrir því frv. voru aðallega þrjár ástæður.
Í fyrsta lagi átti það að tryggja, að ætið væru nægar lyfjabirgðir í landinu. Þótti bera talsvert á því á stríðsárunum og næstu árum á eftir, að vöntun varð á ýmsum lyfjum, einkum hitalyfjum, er farsóttir og kvefpestir gengu. Ennfremur þótti það koma fyrir, að lyf reyndust skemd, svo sem veronal, aspirin o. fl.
Í þriðja lagi þótti mörgum meðulin of dýr og að lyfsalar auðguðust óhæfilega á þessari verslun á þeim árum, enda mátti heita að hún væri rekin sem einokun, þar eð lyfjabúðir voru aðeins örfáar á landinu. — Þetta voru ástæðurnar fyrir því, að stj. flutti frv. þetta 1921, og var það gert í samráði við landlækni, Guðmund Björnson.
Síðan hafa tímarnir breyst mjög mikið. Lyfjabúðum hefir fjölgað, t. d. eru þær orðnar fjórar hjer í Reykjavík og lyfjabúð í öllum kaupstöðum landsins.
Þegar samkepnin er orðin svona mikil, er um leið trygt, að eigi verða fluttar inn skemdar vörur. Einnig er það trygt, að nægar birgðir af lyfjum eru jafnan til í landinu. Og loks minkar gróði lyfsalanna eftir því sem samkepnin eykst, og geta þeir ekki lengur selt lyfin með okurverði, enda hafa lyfjabúðirnar nú taxta, eins og kunnugt er. Auk þess hafa þær eignast keppinaut, síðan hjeraðslæknum var leyft að panta meðul sín beint frá útlöndum.
Sje jeg þess vegna enga ástæðu til þess, eins og nú stendur á, að bera fram þetta frv., því að lyfin verða hvorki ódýrari læknum nje almenningi með einkasölufyrirkomulagi, en það mun vera tilgangur frv. Hv. flm. hjelt því fram, að finna eitt í Danmörku hefði einokun á lyfjum og umboð fyrir nálæg lönd, og skiftu lyfjabúðirnar hjer á landi nær eingöngu við það firma. Jeg hygg að þetta sje ekki rjett hjá hv. flm., lyfjabúðirnar geta eins vel skift við t. d. England og Þýskaland og gera það líka. Þessi ástæða hans er því ljettvæg, en það kann að vera að þær skifti mest við Danmörku.
Þá vitnaði hv. þm. í landlækni í þessu máli, og spurði, hvort það hefði verið vitleysa, er hann lagði til 1921. Árið 1921 var frv. þetta rjettmætt, en eins og jeg benti á áðan, hefir margt breyst síðan. Jeg vil heldur ekki segja að frv. það, sem nú liggur fyrir, sje vitleysa, en það er nú með öllu óþarft. Þá finst mjer ótækt það, er segir í 4. gr. frv., að forstöðumaður áfengisverslunarinnar veiti lyfjasölunni forstöðu. Var það eitt af því, er landlæknir lagði mesta áherslu á, að það starf væri falið manni með lyfsalaprófi. En þetta mætti laga í nefnd. Eins og jeg hefi áður sagt álít jeg frv. óþarft eins og nú standa sakir, og get jeg þess vegna ekki greitt því atkv. mitt.