12.03.1929
Efri deild: 20. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 438 í C-deild Alþingistíðinda. (2577)

60. mál, einkasala á lyfjum

Halldór Steinsson:

Jeg vil aðeins gera örstutta athugasemd. Við hv. þm. (JBald) getum aldrei orðið samferða á þessari einokunarbraut, er hann vill fara. Hann álítur, að þar sem samkepnin er mest, sje verðið hæst. Þýðir ekki að deila við hann um það, en jeg er þar á gagnstæðri skoðun. Jeg tel samkepnina nauðsynlega til þess að fá gott verð.

Hv. þm. hjelt því einnig fram, að lyfin mundu fást ódýrari, ef þau væru keypt í einu lagi fyrir alt landið. Meðalforði lyfja, er þarf handa Íslandi, er eins og krækiber í ámu þegar borið er saman við þörf annara landa, og mun jafnast á við það er minni borgir erlendis nota af lyfjum árlega. Hygg jeg því, að hv. þm. sje of bjartsýnn um að takast muni að fá lyfin með lægra verði, ef keypt eru í einu lagi, þegar eigi er um meiri forða að ræða. Hvað því viðvíkur, að lyfsalar hjer skifti aðallega við Alfred Bentzon, þá gera þeir það eflaust vegna þess, að þeir álíta sig hafa hagnað af því og fá betri kjör þar en í Englandi og Þýskalandi.