02.04.1929
Efri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 464 í C-deild Alþingistíðinda. (2592)
102. mál, einkasala á tóbaki
Flm. (Jón Baldvinsson):
Jeg skal reyna að stilla svo í hóf ræðu minni, í að hún dragist ekki fram yfir venjulegan fundartíma. Þó kemst jeg ekki hjá að fylgja frv. úr hlaði með nokkrum orðum, af því að hjer er um gamalt deilumál að ræða, sem um leið er afarstórt fjárhagsatriði fyrir ríkissjóð.
Það var á þinginu 1921, að mál þetta var borið fram í fyrsta sinni, og gerði það þáverandi fjmrh., Magnús Guðmundsson, sem hafði látið undirbúa málið mjög rækilega, og var það þá fram borið sem stjfrv.
Að vísu var frv. þetta víðtækara, þar sem gert var ráð fyrir að taka einnig upp einkasölu á áfengi því, sem þá mátti til landsins flytja samkvæmt lögum. En í meðferð þingsins á málinu var áfengið felt niður, en frv. varð að lögum um einkasölu ríkisins á tóbaki.
Um þetta mál segir svo í aths. við stjfrv. í A-deild Alþt. 1921, þskj. 6, bls. 50, með leyfi hæstv. forseta:
„Tilgangurinn með einkasölu á tóbaki er að sjálfsögðu einkum sá, að útvega með því fje í ríkissjóð og ljetta þannig undir skattabyrði almennings. Er gert ráð fyrir, að tóbak, hvort heldur er vindlar, vindlingar, reyktóbak, neftóbak eða munntóbak, verði ekki, eða að minsta kosti ekki sem neinu nemur, dýrara en annars mundi, því að bæði mundi auðið að komast að betri innkaupum fyrir þann, sem hefir umráð yfir allri versluninni, en þegar hún er frjáls, og auk þess er það vitanlegt, að eigi alllítið er lagt einmitt á þessa vöru af stórsölum. Það virðist á engan hátt athugaverð stefna, að ljetta skattabyrðina á þennan hátt, þar sem atvinna er með þessu eigi tekin af nema tiltölulega mjög fáum, því að smásala tóbaks verður að sjálfsögðu rekin eftir sem áður.“
Ennfremur er í athugasemdunum gert ráð fyrir, hvaða tekjur yrðu af tóbakseinkasölunni, og er það sundurliðað þannig:
a. af allskonar tóbaki kr. 63579,20
b. — vindlum og vind-
lingum — 142566,00
eða samtals um .... kr. 206139,20
Þó er aðgætandi, að þessi áætlun er miðuð við brúttótekjur, en þar sem ætlast var til, að áfengisverslunin yrði rekin í sambandi við tóbakseinkasöluna, þá er gert ráð fyrir, að kostnaður við þennan verslunarrekstur mundi nema um 30 þús. krónum, svo að nettótekjurnar áttu þá að verða um 180 þús. krónur, og virðist það mjög varlega áætlað.
Þessar áætluðu tekjur í aths. frv. áttu að fást með því, að meðalálagning á tóbaki væri 20%, en 30% á vindlum og vindlingum, og er þetta miðað við innflutning á tóbaki og vindlum fyrir árin 1917–1919.
Eins og kunnugt er, fór um frv. þetta svo, að lögleidd var einkasala á tóbaki 1921, en áfengið dregið út úr frv.
Nú þykir mjer hlýða að skýra frá því, hvernig tóbakseinkasalan fullnægði þeim tekjuvonum, sem áætlaðar voru í frv. stj., og verður þá best að láta tölurnar tala, eins og þær hafa verið birtar í reikningunum, en tóbakseinkasalan starfaði frá 1. jan. 1922 til 31. des. 1925.
Tekjur ríkissjóðs af tóbakseinkasölunni urðu þessi ár:
1922 kr. 100000,00
1923 — 200000,00
1924 — 350000,00
1925 — 490000,00
eða samtals þessi 4 ár kr. 1140000,00 eða að meðaltali á ári 285 þús. krónur, og er það talsvert hærra en gert var ráð fyrir á Alþingi 1921.
En auk þessara tekna, sem runnu beint í ríkissjóð, galt tóbakseinkasalan 70 þús. kr. í útsvar til Reykjavíkurbæjar. Útsvar þetta var dæmt á einkasöluna 1924, en margir litu svo á, að hún væri ekki útsvarsskyld. En þetta er rjett að taka til greina nú, af því að framvegis er ekki gert ráð fyrir að greiða nema mjög lágt útsvar í bæjarsjóði af opinberum ríkisrekstri.
Fyrst var allhörð mótstaða gegn frv. þessu, en þáverandi fjmrh., Magnús Guðmundsson, fylgdi því fast fram, og urðu margir til þess að veita honum brautargengi, þó að þeir síðar snerust á móti málinu. Því var spáð af andstæðingum tóbakseinkasölunnar, að ríkið mundi engar tekjur af þessu hafa. Jeg man eftir því, að sumir hjeldu því fram, að hinn svokallaði „kaupmannsgróði“ mundi aldrei nást, og tap verða á þessum ríkisrekstri í erfiðum árum. En reynslan varð önnur, eins og jeg hefi bent á, þar sem tekjur tóbakseinkasölunnar námu á ári nálega 300 þús. krónum.
Á þinginu 1924 kom fram till. um að afnema tóbakseinkasöluna, en jafnvel hv. 3. landsk. (JÞ) treysti sjer ekki til að samþykkja þá till., af því að þá var ekki búið að sjá ríkissjóði fyrir öðrum tekjum í staðinn.
En svo kom þingið 1925, og þá var borið fram frv. um að afnema tóbakseinkasöluna, en jafnframt lagt til að hækka toll á tóbaksvörum sem því svaraði, að bera mætti uppi þann hagnað, er ríkissjóður hafði haft af einkasölunni.
Um þetta mál var mikið deilt, og eru mjer sjerstaklega í minni orð, sem fjellu af vörum föður tóbakseinkasölunnar, hv. 1. þm. Skagf., sem þá var atvinnumálaráðherra. Hann komst svo að orði, og er það prentað í B- deild Alþt. 1925, bls. 2933:
„Og fyrir mitt leyti (þ. e. MG) verð jeg að segja það, að verslunarhagnaðurinn hefir alls ekki brugðist vonum mínum.“ Hann gat heldur ekki annað sagt, þar sem hagnaðurinn varð mikið hærri en formælendur málsins höfðu í upphafi gert sjer vonir um. En þrátt fyrir þann mikla hagnað, sem einkasalan hafði gefið, varð þó þáverandi atvinnumálaráðherra og faðir einkasölunnar til þess að bregða fæti fyrir þetta afkvæmi sitt, og hann gerði það á þann eftirminnilega hátt, að sitja hjá er lokasennan stóð, því án hlutleysis hans í atkvgr. hefði ekki verið hægt að afnema tóbakseinkasöluna á þinginu 1925.
Sem sagt, tóbakseinkasalan var afnumin 1925, og tollhækkun tóbaks tekin upp í staðinn. En þó að tollhækkun þessi hafi verið í gildi síðan, hafa tekjur ríkissjóðs að meðaltali orðið talsvert minni en hagnaður tóbakseinkasölunnar, ef gert er ráð fyrir svipuðum innflutningi og þau árin, sem einkasalan starfaði.
Þá ætla jeg með nokkrum orðum að víkja að frv. því, sem hjer liggur fyrir. í grg., sem er allítarleg, er gert ráð fyrir um 200 þús. króna hagnaði, og verð jeg að álíta, að það sje varlega áætlað, þegar miðað er við innflutning tóbaks árin 1925–29. Þau ár hafa verið góð verslunarár, en tóbakskaup manna fara nokkuð eftir því, hvort menn hafa úr miklu eða litlu að spila, enda sjest þetta best á því, að innflutningur tóbaks hefir gengið í einskonar bylgjum. Þegar illa árar, er innflutningur lítill, en eykst jafnan í góðum árum.
Það er nú svo með þetta frv., að það er borið fram sem hreint tekjuaukafrv. fyrir ríkissjóð, og það er gert ráð fyrir því, að hagnaðurinn við þetta muni nema 200.000 kr. á ári, og það munar um minna. Auk þess er sú vara, sem hjer um ræðir, nautnavara, og alment mun litið svo á, að ekki saki, þótt á hana sje talsvert lagt, og það meira að segja svo mikið, að úr nautn hennar dragi. En þótt þessi vara væri seld með talsverðu álagi, eru engar líkur til þess, að verðið myndi hækka, því að ríkissjóður myndi komast að betri kaupum hjá erlendum framleiðendum eða kaupmönnum, heldur en einstakir kaupmenn, þótt þeir kunni að hafa komist að góðum kjörum.
Í þessu sambandi má geta þess, að árið 1926 mun innflutningur tóbaks hafa verið einna mestur, en það orsakaðist af því, að vörur voru litlar fyrirliggjandi hjá Landsversluninni og kaupmenn birgðu sig ekki upp fyrir lengri tíma, en svo þegar Landsverslunin hætti um áramótin 1925–1926, tóku kaupmenn að gera innkaup sín sjálfir, og keyptu þá auðvitað í stærri stíl en áður frá Landsverslun, þar sem erfiðara var þá um aðdrætti, er þeir urðu að kaupa frá útlöndum. En eftir árið 1926 minkaði innflutningur tóbaks aftur, og var 4–500000 kr. lægri, en það ár. Þeir, sem voru með því að afnema einkasöluna fullyrtu, að innflutningur myndi aukast, en hinir sögðu, að það myndi fara eftir árferði og hve færir landsmenn væru um að kaupa tóbakið. En hinsvegar gæti verið, að eitthvað yrði rírari innflutningur fyrsta árið eftir afnámið, því kaupmenn mundu þá taka til sín meiri birgðir en áður.
Jeg geri ráð fyrir því, að nú sje mótstaðan gegn einkasölu á tóbaki ekki eins mikil eins og hún var á árunum 1923–25, því að þá gerði pólitískur flokkur í landinu málið að æsingamáli við kosningar, og jeg býst heldur ekki við því, að kaupmenn þurfi nokkuð að kvarta undan einkasölunni, því að jeg efast um, að jafnvel þeir hafi verið ánægðir með afnám hennar. Jeg geri ennfremur ráð fyrir, að næsta ár þurfi ríkissjóður á töluverðum peningum að halda, og það ekki síst þar sem verðtollurinn á að falla úr gildi næstu ár, en sú niðurfelling tekna mun nema æðimiklu, og þá væri ekki ónýtt að geta ausið úr öðrum lindum, og að ríkið hefði yfir góðum og þægilegum tekjustofni að ráða eins og tóbakseinkasölunni. Jeg vil nú ekki lengja fundinn mikið og ætla því að endingu að láta þá ósk mína í ljós, að frv. verði vísað til fjhn. að loknum umræðum.