30.04.1929
Efri deild: 57. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 484 í C-deild Alþingistíðinda. (2604)
102. mál, einkasala á tóbaki
Frsm. minni hl. (Jón Baldvinsson):
Það var nú í fyrsta sinn við þessar umræður, að gerð var tilraun til þess að hafa á móti málinu með rökum, og var það hv. frsm. meiri hl. hv. 3. landsk., sem það gerði. Hann vildi gera það líklegt, að tekjurnar af einkasölunni yrðu litlar fyrsta árið, og bygði það á því, að mikið væri til í landinu af þessari vöru nú, svo að tekjur af tolli mundu minka til muna fyrsta einkasöluárið. Að þessu er vikið í grg. frv., og þar er gert ráð fyrir, að allra lægstu tekjur af tolli, með miklu minni innflutningi heldur en nú, geti aldrei orðið undir 85 þús. kr. á fyrsta ári. Auk þess sparast kostnaður við merkingu tóbaks, 35 þús. kr., og ýmislegt fleira, og má gera ráð fyrir því, að þó að innflutningur verði með minsta móti, þá færi hagnaðurinn áreiðanlega aldrei niður úr 160 þús. kr. fyrsta árið. Svo fer hann vaxandi með hverju ári og upp í milj. kr. og hærra ef góðæri eru, og auðvitað fer það altaf dálítið eftir árferði. Þetta eru engar gyllingar í grg. frv., heldur þvert á móti mjög varlega áætlað, og jeg var jafnvel í vafa um, hvort það væri rjett gagnvart málefninu að áætla þetta svona lágt, því að það er áreiðanlega langt fyrir neðan það, sem virkilega verður. Ríkið getur líka trygt aðstöðu sína með því að takmarka innflutninginn árið áður en einkasalan tekur til starfa, og er það hægt með því að neita mönnum um að láta tóbakið liggja í tollgeymslu. Stj. getur betur sjeð fyrir þessu nú heldur en í frv. 1921. Þegar þessi landsverslun er komin upp, þá þarf hún heldur ekki að kaupa ruslið af kaupmönnunum, en getur látið þá liggja með það áfram, því að það gerir ekki annað en að eyðileggja söluna. Ein aðalröksemdin gegn gömlu Landsversluninni var einmitt sú, að hún verslaði með rusl, sem væri óbrúklegt, en þetta rusl voru einmitt leifarnar af vörum kaupmannanna, sem Landsverslunin hafði keypt af þeim, svo að þeir yrðu ekki fyrir skaða.
Hv. 2. þm. N.-M. vildi ekki láta gera upp ástæðurnar fyrir afstöðu þeirra þremenninganna í meiri hl. n. frekar en gert er í nál. Mjer skildist þó á honum, að það væri ekki um stefnubreytingu að ræða, og hann mundi geta fylgt þessu máli, en bara ekki nú. Ef ekki er um stefnubreytingu að ræða, þá finst mjer undarlegt, að þessi hv. þm. og ýmsir hans flokksbræður skuli vilja fresta því, að taka við þessum peningum í ríkissjóðinn, sem einkasalan mun gefa af sjer. Hv. þm. sagði, að sjer væri illa við þau vinnubrögð, að taka fram fyrir hendurnar á milliþinganefndinni í þessu máli, og það sama kom líka fram hjá hæstv. fjmrh. Jeg get nú ekki betur sjeð, en að málið sje vel undirbúið, og það verður áreiðanlega ekki betur undirbúið eða í annari mynd, ef það kemur einhverntíma frá milliþinganefndinni, og taki hún það einhverntíma upp, þá byggir hún á þessu frv. Jeg get því ekki sjeð, að hjer sje um nein slæm vinnubrögð að ræða.
Jeg vil svo að síðustu taka undir það með hæstv. fjmrh. og gera þau orð hans að mínum, þar sem hann sagði, að þetta frv. væri fram borið fyrir „Tímann“, því að það blað hefir, næst Alþýðublaðinu, mest og best borið þetta mál fyrir brjósti. En þar sem hæstv. ráðh. sagði, að það væri getið í meinum, þá vil jeg vekja athygli hans á því, að þar beinir hann skeytum sínum til fyrirrennara síns í fjármálaráðherrasessi, Magnúsar heitins Kristjánssonar, sem undirbjó þetta mál og ætlaði að bera það fram. Hæstv. ráðh. ætti því ekki að kasta kaldyrðum að þessum króa, sem við Alþýðuflokksmenn höfum fóstrað fyrir þá Framsóknarmennina.