06.04.1929
Efri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 502 í C-deild Alþingistíðinda. (2611)
43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):
Það gat því miður ekki orðið samkomulag um þetta frv. í fjhn. Meiri hl. n. hefir gert þá grein fyrir afstöðu sinni í þessu máli, að hann vilji vísa því til stjórnarinnar. Við í minni hl. sjáum enga ástæðu til þess að stöðva framgang málsins á þessu þingi, en við höfum borið fram eina brtt. á þskj. 181, sem felur í sjer gagngerða breytingu á 8. gr. frv. Þessi brtt. er að nokkru leyti fram komin eftir bendingu rafmagnsstjórans hjer í Reykjavík, hr. Steingríms Jónssonar, sem nefndin hefir ráðfært sig við um þetta mál. Hún gerir þá breytingu á frvgr. og þeirri meðferð, sem vegamálastjóri ríkisins hefir nú, samkv. 151. gr. vatnalaganna, að því er snertir orkunýting fallvatna, að í stað hans verði skipuð þriggja manna nefnd til þess að hafa á hendi stjórn raforkumála ríkisins undir atvinnumálaráðuneytinu. Í nefndina skulu skipaðir einn lögfræðingur, sem ráðherra tilnefnir, forstjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur, ef hann vill taka þar sæti, en annars rafmagnsfræðingur, er ráðherra tilnefnir; og þriðji maðurinn í nefndinni á að vera vegamálastjóri. Nefnd þessi nefnist orkumálastjórn, og er henni ætlað að taka við því starfi, sem vegamálastjóri og starfsmenn hans hafa nú í vatnamálum samkv. vatnalögunum. En höfuðbreytingin er sú viðaukatillaga, að þessari orkumálastjórn er ætlað, svo fljótt sem við verður komið, að gera tillögur um heildarskipulag á raforkuveitum til almenningsþarfa fyrir land alt. Þetta á orkumálastjórnin að gera og þeir kunnáttumenn í þessum efnum, er hún hefir í sinni þjónustu. — Þegar jeg ræði um frv., og hvort rjett sje að stöðva framgang þess í þinginu, þá geng jeg út frá, að brtt. okkar í minni hl. nefndarinnar sje í því fólgin; það geri jeg vegna þess, að meiri hl. n. hefir talið, að hún væri til bóta.
Við lestur nál. meiri hl. á þskj. 238, hefi jeg ekki getað fundið, að meiri hl. hefði neitt verulegt að athuga við einstök atriði í frv. Það kemur ekki skýrt fram í nál., sem meiri hl. byggir afstöðu sína á í þessu máli, að frv. fari fram á svo mikil útgjöld úr ríkissjóði, og að það sje hinsvegar ekki nógu vel undirbúið. En það er nú svo um frv., að ýms ákvæði þess fara í raun og veru í þá átt, að lögskipa um undirbúning þessara mála. Og svo sjerstaklega að gefa fyrirheit um fjárstyrk úr ríkissjóði, til þess að jafna aðstöðumun þeirra, sem búa fjær orkuveri, við hina, sem nær eru. En um upphæð þeirra fjárframlaga, og hvað mikið skuli veitt til þess á hverjum tíma, lætur frv. vera óbundið, þangað til að ákvæði verða um það gerð síðar. Jeg get ekki álitið, að það sje rjett af hv. meiri hl. n., þar sem hann viðurkennir, að þetta sje gott mál, að leggja til, að þessu frv. verði vísað frá vegna ónógs undirbúnings, þegar hann hefir ekki í nál. sínu getað bent á neitt varhugavert atriði í frv., eða nokkuð, sem honum þykir á skorta.
Enda fór það líka svo, að þegar frsm. meiri hl., hv. 4. landsk. (JBald), fór að gera grein fyrir ástæðum meiri hl., þá kom ýmislegt fram, sem benti á, að honum þætti málið sjálft athugavert. Hann talaði um ýmislegt og benti á margt, sem ekki getur breyst eða orðið öðruvísi, þó að málið verði látið bíða. Hann sagði, að allir mundu koma í einu og biðja um aðstoð ríkisins til rafvirkjunar; en ætli að þeir komi síður í einu fyrir það, þó að samþykt þessa frv. og framkvæmd verði frestað um stund. Jeg get ekki skilið annað en að fjöldinn hljóti að sækja jafnfast eftir því síðar.
Hv. frsm. meiri hl. talaði um, að tillag ríkissjóðs til rafvirkjunar samkv. frv., myndi verða of hátt, og að auk þess yrði ríkissjóður að ábyrgjast stórlán til slíkra fyrirtækja, og mundi hann því eigi standast slíkar kröfur, sem til hans yrðu gerðar. Hv. frsm. meiri hl. sagði þó, að meiri hl. væri því samþykkur, að ríkið veitti stuðning þessum fyrirtækjum. Mjer finst nú ekki mikið samræmi í þessu. — Auðvitað má undirbúa þetta mál, ef menn eru sammála um, að ríkið taki einhvern þátt í framkvæmdum þess, og þá má á hverjum tíma taka ákvörðun um, hvaða styrkur verður veittur frá hálfu ríkisins.
En að því er snertir þá upphæð, sem ríkissjóður mundi verða að leggja til þessa framfaramáls, komu ýmsar áætlanir til greina í nefndinni, og meiri hl. hefir tekið ýmsar tölur upp í nál. sitt um það atriði. En þeim tölum verður að taka með fylstu varúð. Þó að síðar verði vitanlega eingöngu bygt á þeim rannsóknum, sem frv. gerir ráð fyrir í þessu efni, áður en til framkvæmda kemur, þá ætla jeg sem stendur að halda mjer við þær tölur, sem nefndar hafa verið, og leggja þær til grundvallar, svo að menn geti fylgst með því, sem ríkissjóði er ætlað að leggja fram samkv. frv.; en þar er hámark þess styrks, sem veita má úr ríkissjóði, miðað við aðkeypt efni (komið á land hjer) til veitutauga um orkuveitusvæðið, frá orkuveri að spennistöð notenda. Samkvæmt 1. lið kostnaðaráætlunarinnar í nál. meiri hl., fyrir alt landið, er um að ræða 7500 km., á 3000 kr. hver km., samtals 22½ milj. kr. — Eftir orðalagi frv. gti ef til vill komið til mála, að ríkissjóður veitti styrk til þess kostnaðar, sem talinn er í 5. lið, við meginlínur til kaupstaða; en þó því aðeins, að þær línur hefðu einhverja þýðingu fyrir sveitir jafnframt. Þar gæti því eigi verið um að ræða meira en 3 milj. kr. fyrir ríkissjóð; og þar sem kaupstöðum er eigi ætlaður neinn styrkur til orkuleiðslu innan síns umdæmis, tek jeg eigi tillit til þessa, en geng út frá, að veitutaugar þær, sem styrks eiga að njóta, muni kosta 22% milj. kr. alls, sem miðað er við 3000 kr. leiðslukostnað á hvern km.
Nefndin spurðist fyrir um það hjá rafmagnsstjóranum í Reykjavík, hvort líkur væru fyrir, að nokkuð mætti draga úr þeim kostnaði, og ennfremur um sundurliðun kostnaðarins; gaf hann nefndinni þau svör, sem vænta mátti, að í ytri álmum orkuveitukerfisins mætti komast af með stálþráð í leiðslurnar í staðinn fyrir koparþráð, t. d. þar sem ekki væri um meiri orku að ræða en handa einum hrepp. Stálleiðslurnar eru miklu ódýrari, þannig að þetta mundi lækka efniskostnaðinn niður í 1/3 af því, sem þessi áætlun gerir ráð fyrir. En þegar rafmagnsstjóri áætlar kostnað við veitutaugar 3000 kr. á hvern km., þá telur hann, að helmingur þar af sje efniskostnaður, fyrir staura, koparvír og einangrara. Það eru þá 1500 kr. á km., eða 11¼ milj. kr. fyrir landið alt, sem sá hluti virkjunarinnar kostar, sem frv. ætlar ríkissjóði að styrkja, þ. e. útlent efni í orkuveitutaugarnar um alt land. — Nú eru ástæðurnar talsvert misjafnar. Þar sem stór sjóþorp koma inn í orkuveitukerfin, eru horfur á að fyrirtækin gætu borið sig með minna framlagi úr ríkissjóði en hámarki því, sem gert er ráð fyrir. Á sumum svæðum gæti styrkurinn af þessum ástæðum orðið lægri en 1500 kr. á km., þar við bætist svo sú lækkun á styrknum, sem nást kynni við það að nota stálvír í stað koparvírs, svo að eftir þessum áætlunum í nál. meiri hl. ættu framlög ríkissjóðs til landsins alls að geta orðið æði langt fyrir neðan 11¼ milj. kr. — Það er auðvitað ákaflega stór upphæð, ef ætti að leggja hana fram í einu. En það sýnist engin veruleg hætta á því, — að framkvæmdir í þessu efni verði svo hraðfara, að kröfurnar um styrk úr ríkissjóði verði meiri en hann getur á sig lagt. Fyrirtækin eiga að öðru leyti að geta borið sig fjárhagslega, og þá mun efnisflutningur, önnur framlög og vinna einstaklinga við heimataugar, valda þeim það miklum erfiðleikum, auk kostnaðar og fjárútvegunar fyrir orkuveitufjelögin sjálf, þannig að þessar hömlur hljóta að tefja fyrir framkvæmdum. Ef ekki verður með nýrri löggjöf hraðað framkvæmdum á þessu sviði, þá er hjer um svo miklar tálmanir að ræða, að ekki þarf að óttast, að ríkissjóður geti eigi fullnægt þeim kröfum, sem til hans verða gerðar vegna þessara laga. Hitt er annað mál, þegar rannsóknir liggja fyrir um þessar framkvæmdir, hvort þá kunni eigi að þykja ástæða til fleiri ráðstafana til að hraða þeim.
En þessi upphæð, sem er eitthvað neðan við 11¼ milj. kr., er hún nú svo stór og fráfælandi? Ekki svo mjög, finst mjer. Hún sýnist ekki svo ægileg þegar hún er borin saman við framlög til vegamála, en til þeirra er varið 1 milj. kr. árlega, og enginn býst, við að það muni lækka, heldur fara hækkandi. Þetta áætlaða framlag ríkissjóðs til orkuveitufyrirtækja, væri þá á borð við það fje, sem varið er til vegabóta á svo sem 8 árum. En sá er munurinn, og á það má líta, að þegar orkuveiturnar eru komnar upp, þá geta þær borið sig sjálfar, starfsreksturinn og viðhaldið að öllu leyti. Þess vegna kemur það ekki á ríkissjóðinn eins og viðhaldið á vegakerfinu. Mjer sýnist ástæður meiri hl. benda til þess, að þetta muni vera viðráðanlegt fyrir ríkissjóð í svo miklum mæli, sem það verður viðráðanlegt fyrir hjeruðin, sem eiga að bera uppi orkuverin og rekstrarkostnað þeirra ásamt heimleiðslum. Og það eitt er víst, að hvað sem þeirri mótbáru líður, að ríkissjóður þurfi mikið til að leggja, þá batnar ekki aðstaða hans við það, þótt málið sje dregið 1 eða 2 ár. Því lengur sem dregið verður að byrja á þessu, því harðara verður kallað eftir því, þegar farið er af stað. Það verður því til hægðarauka fyrir ríkissjóð, að á þessum framkvæmdum sje byrjað sem fyrst.
Hv. frsm. meiri hl. taldi nauðsynlegt, að ríkið hefði forgöngu í þessum málum. Fyrir því er nú sjeð með brtt. minni hl., sem gerir ráðstöfun til þess, að gerðar verði áætlanir um þetta fyrir land alt. Og eftir þeirri heildaráætlun verður svo styrkur veittur. Verður því ekki styrkur veittur til annara orkustöðva en þeirra, sem eru í samræmi við þá áætlun. — Þá hjelt hv. frsm. meiri hl. því fram, að litlir möguleikar mundu verða á að veita bændum lán til síns hluta af starfrækslunni, þ. e. heimilistækja og heimtauga. Benti hann á, að þó ekki væri tekin býli nema í Borgarfirði, þá myndi þurfa að auka Ræktunarsjóðinn mikið til þess að geta annast um lán til þess hjeraðs. — En hjer við er nú fyrst að athuga, að Ræktunarsjóðurinn lánar ekki nema helming kostnaðar. Þá er ekki heldur víst, að allir þyrftu á láni að halda. Mjer telst svo til, að í Borgarfirði sjeu 640 býli. Og ef reiknað er með 2000 kr. á býli, þá eru það 640 þús. kr. fyrir þetta hjerað. Jeg veit nú ekki vel um ástæður Ræktunarsjóðs, en jeg veit, að hann á að geta lánað alls um 18 milj. kr. Að vísu gæti svo farið, að gera þyrfti ráðstafanir til þess að afla honum handbærs fjár á tímabili, og er það vel gerlegt og þarf ekki að breyta lögum hans til þess. Þá eru og nú fyrir þinginu frv. um lánsstofnanir fyrir landbúnaðinn, og upp úr þeim mætti sjálfsagt fá uppsprettu til nauðsynlegra lánveitinga í þessu skyni. Ef sjerstakur landbúnaðarbanki er stofnaður, svo sem nú er í ráði, er ekki hægt að segja hann fullkominn, nema að hann geti greitt fyrir nauðsynlegum lánum til orkuvera og orkuveita um landið, ef það mál er vel undirbúið og sýnt, að fjárhagslega óhætt sje að ráðast í það. Jeg vil gera ráð fyrir því, að frv. þetta sje tímabært, og að tekið verði tillit til þess í löggjöf þeirrar stofnunar, sem nú er á ferð í gegnum þingið.
Að því er snertir suðurhluta landsins, þá má geta þess, að Reykjavík er nú svo langt komin með rannsókn á virkjun Sogsfossanna, að þess vegna má taka til starfa um virkjun þeirra þegar vill. Og 1. júlí n.k. á að vera kominn úrskurður um kaup á vatnsrjettindum fossanna. Hamlar þá ekkert frá að byrjað verði á virkjun, nema ef það væru fjárhagslegar ástæður. En ef þessi virkjun gæti orðið til að greiða fyrir veitum á suðvesturhluta landsins, eða í Rangárvallasýslu, Vestmannaeyjum og svæðinu þaðan vestur í Mýrasýslu, og það er ekki ósennilegt, að þetta svæði alt ætti að sækja orku sína til stöðvar við Sogið — það er að vísu órannsakað enn, en kunnugur maður telur það sennilegt — þá er rangt, með það fyrir augum, að láta þetta mál dragast. Ef Reykjavík rjeði ráðum sínum um virkjun Sogsins, án þess að þessi möguleiki væri athugaður, þá gæti svo farið, að það yrði forhlaupin tíð að hagnýta sjer þennan möguleika, ef Alþingi nú vill ekki sinna því að setja löggjöf um þetta. — Um aðra landshluta býst jeg við að það kæmi í ljós við rannsókn, að það yrðu sumstaðar tiltölulega lítil svæði, sem gætu slegið sjer saman um orkuver, vegna staðhátta, máske einn hreppur eða fáir hreppar. Þetta yrði þó sjerstaklega þar, sem hjeruðin eru skorin sundur af fjöllum. En einmitt í þeim hjeruðum er oft gott um fallvatn fyrir einstök heimili. Og nú er sá skriður kominn á það mál, að einstök heimili virki fyrir sig, að ef þetta er dregið, þá má gera ráð fyrir, að efnamestu heimilin verði búin að virkja, og veldur það erfiðleikum um endanlega úrlausn þessa máls. Vegna þess er rangt að skjóta afgreiðslu þessa máls á frest.
Að síðustu vil jeg bera upp þá málaleitun til hv. meiri hl. n., hvort hún sjái sjer ekki fært að taka aftur till. sina til 3. umr. Jeg er sem sje sannfærður um, að málið hefir gagn af hverri umr., sem fer fram um það. Hygg jeg, að ekki liggi neitt á að sálga því við þessa umr.