06.04.1929
Efri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í C-deild Alþingistíðinda. (2613)

43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða

Jón Jónsson:

Jeg er hv. flm. þakklátur fyrir þetta frv. Jeg er hv. 1. flm. alveg sammála um það, að fátt myndi breyta meira tilverunni í sveitunum en ef hægt væri að veita rafmagni inn á hvert heimili, til ljósa, suðu, hita og smáiðnaðar. Til þess að hrinda þessu stórmáli nánustu framtíðar áleiðis, þarf átök og árvekni allra þeirra manna, sem skilning og þekkingu hafa á þessu sviði, og efast jeg ekki um, að hv. 3. landsk. gæti orðið þar verulega að liði, margra hluta vegna, ef hann legði því krafta sína óskerta. Þetta frv. er í eðli sínu ákaflega merkilegt og ber þess órækt vitni, að hv. 3. landsk. og flokkur hans, sem jeg þori nú ekki að nefna, vill sýna meiri umhyggju fyrir velferð landbúnaðarins nú en raun var á, meðan hann var við völd. Er það út af fyrir sig ekki ámælisvert, ef alvara býr að baki. En þó að frv. sje þakkar vert, þá efa jeg mjög, að rjett sje að gera það að lögum að svo stöddu, enda getur það eigi að síður, þótt ekki verði að lögum, gert það gagn, að þjóðin taki að athuga þetta mál betur en hingað til. En ef setja á beina löggjöf um þessi efni, er einsætt, að að baki hennar verður að liggja sjerstök hvöt frá þjóðinni, að vel rannsökuðu máli, enda er hjer um svo geysilegt verkefni að ræða, að síst má rasa um ráð fram, hvað framkvæmdir snertir. Mjer virðist málið enn ekki vera á því stigi, að slík lög sem þessi, þótt samþykt væru, gætu orðið almenningi nokkuð til gagns. Raforkuveitur til sveita eru ákaflega kostnaðarsamar, og því miður litlar líkur til, að í þær verði ráðist, nema þar sem alveg sjerstaklega stendur á. Jeg skal nú reyna að færa þessu nokkurn stað.

Samkvæmt áætlun rafmagnsstjórans í Reykjavík er gert ráð fyrir ½ hestorku á mann, til að fullnægja venjulegum raforkuþörfum. Tökum nú 8 manna heimili, sem ef til vill er of hátt að jafnaði, þá myndi hluti þess í orkuverinu kosta 2000 kr. Þá er leiðslan, og er gert ráð fyrir 1½ km. milli bæja, sem jeg býst við, að sje of lágt reiknað, eftir því sem jeg þekki best til, en ef gert er ráð fyrir þessari vegalengd, þá verður veitukostnaður 4500 kr. á bæ. Þá koma heimtaugar, hitunar- og ljósatæki, og eru þau áætluð 2000 kr. Alls verður þetta 8500 kr. á hvert heimili. Ef nú yrði ráðist í þetta, yrði að taka lán, sem næmi mestum hluta stofnkostnaðarins. Það sem heimilin yrðu þá að standa straum af, væru vextir og afborgun af láninu, fyrning, viðhald og rekstrarkostnaður af orkuverinu og veitunni. Fróðir menn telja fyrningu og viðhald ekki undir 2–4%. Rentu er ekki gott að segja um, en tæplega myndi hún vera mikið undir 6–7%. Árlegur kostnaður á heimili myndi eigi verða undir 850 kr., og alt að 1000 kr. Þó er það athugavert, að með þessu fengist þó ekki rafmagn nema til suðu, ljósa og „upphitunar að sumrinu“. En við sveitamenn hitum ekki að jafnaði mikið upp að sumrinu, en hinsvegar töluvert að vetrinum. Í fossanefndarálitinu frá 1919 er gert ráð fyrir meira rafmagni, eða alt að 1½ hestorku á mann, eða 12 hestorkum á 8 manna heimili. Fyrir þá hestorkutölu verður kostnaðurinn á heimili hvert 12,500 kr.

En lítum nú á það, sem sparast fjárhagslega, enda þótt þetta mál hafi fleiri hliðar en þá fjárhagslegu. Það er ekki gott að ákveða um það, hve miklu fje bændur eyða í ljós, suðu og þá litlu upphitun, sem þeir venjulega gera sjer að góðu, en mjer telst svo til, að þessi kostnaður sje alment ekki meiri en 3–400 kr. og mest upp í 500 kr. Af þessu sjest berlega, að rekstrarkostnaður slíkra fyrirtækja er gífurlega miklu meiri, jafnvel þótt ríkið legði eitthvað af mörkum. Jeg get því ekki sjeð, að hjeruðin gætu, jafnvel þótt þessi lög yrðu samþ., leyst þetta mál, vegna fjárhagsörðugleika. Hinsvegar er ekki hægt að neita því, að mjög æskilegt væri að fá rafmagnið með öllum þeim þægindum og aukinni menning, sem því fylgir. Þess má líka geta, að þar sem sjerstaklaga hagar til, t. d. þar sem stórar bæjarveitur eru, þar horfir málið nokkuð öðruvísi við. En þrátt fyrir þá örðugleika, sem á þessu máli virðast vera, er ekki ómögulegt, að nákvæm rannsókn kynni að leiða einhverja nýja möguleika í ljós. Þess vegna er það skylda þingsins að svæfa ekki málið, heldur hrinda því áleiðis. Jeg tel því æskilegt, að skilyrði til rafvirkjunar sjeu athuguð sem víðast á landinu, og þetta frv. ætti að geta orðið til þess að ýta nokkuð undir það. En að setja slík lög sem þessi, álít jeg algerlega þýðingarlaust að svo stöddu, enda líka full djarft að lofa svo háu fjárframlagi úr ríkissjóði, sem þar er gert ráð fyrir. Hjer gegnir nokkuð öðru máli en við vegalagningar, því að til þeirra er hægt að veita takmarkað fje, sem þó kemur að sínu gagni, en til rafvirkjunar þarf fjárveitingar í stórum stíl í hvert sinn, ef að gagni á að koma.

Þótt hv. 3. landsk. segi, að þessi fjárframlög sjeu ekki meiri en til vegalagninga, þá sannar það ekki neitt. Því meir, sem veitt er til vegalagninga, því minna getum við veitt til annara framkvæmda, því gjaldþol ríkissjóðs er takmarkað. En fari svo við nánari rannsókn, að frv. reynist heppilegt, þá mun jeg fyrir mitt leyti verða því samþykkur, en ekki fyr. Fyrir mjer er það aðalatriðið, að fá málið betur rannsakað. Jeg kysi helst þá leið, að frv. þetta væri afgreitt með rökstuddri dagskrá, þar sem stjórninni væri falið að útvega kunnáttumenn til þess að framkvæma ítarlega rannsókn fyrir þau hjeruð, er þess óskuðu, gegn því, að þau legðu fram nokkurn hluta kostnaðarins. Væri þá bygt fyrir, að glannalega væri af stað farið, því að hjeruðin mundu tæplega æskja rannsóknar, nema líkur væru til að eitthvað yrði aðhafst. Má vera, að till. meiri hl. miði í sömu átt, en jeg vil spyrja meiri hl. nefndarinnar og hæstv. stjórn, hvernig hún hugsar sjer að haga framkvæmdunum í þessum efnum. Er til þess ætlast, að rannsóknir fari fram um alt land, án þess hjeruðin æski og leggi fram hluta rannsóknarkostnaðar? Ef svo er ekki, mun jeg bera fram rökstudda dagskrá um málið, því að jeg vil tryggja, að hjeruðin geti átt kost á fullkominni rannsókn á rafvirkjunarskilyrðum hjeraðsins með þolanlegum kjörum, ef þau vilja eitthvað á sig leggja.

Jafnvel þótt hugmynd meiri hl. sje að láta rannsókn fara fram á öllu landinu á kostnað ríkisins eingöngu, tel jeg vafasamt, að jeg geti fylgt honum; finst í fullmikið ráðist. Jeg hefi hugsað mjer, að rannsókn yrði aðeins framkvæmd fyrir þá menn eða þau hjeruð, sem beinlínis óskuðu eftir henni.