06.04.1929
Efri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 522 í C-deild Alþingistíðinda. (2614)

43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða

Páll Hermannsson:

Jeg get ekki látið vera að fara nokkrum orðum um frv. það, sem hjer er til umr., fyrst og fremst sökum þess, að jeg á sæti í nefnd þeirri, sem málið hafði til meðferðar, og í öðru lagi sökum þess, að jeg tel það snerta mig og mína stjett sjerstaklega. Frv. þetta er fyrst og fremst merkilegt fyrir það, að með því er borin inn í þingið sú hugmynd, sem mikill hluti þjóðarinnar sjer í hillingu. Get jeg því verið hv. fhn. þakklátur fyrir að hafa komið með frv.

Eins og kunnugt er, eigum við Íslendingar mikinn auð í fallvötnum okkar, auð, sem í framtíðinni mun bæta okkur upp þá miklu örðugleika, sem við eigum altaf við að búa, sem sje myrkrið og kuldann. Er því hjer um mjög þýðingarmikið mál að ræða, þar sem málið snýst um það, að taka þessi fallvötn í þjónustu almennings. Vil jeg því á engan hátt láta hrapa að því.

Eins og drepið hefir verið á undir þessum umræðum, hlýtur kostnaður sá, sem af umbótum þessum leiðir, að verða gífurlega mikill, bæði fyrir hið opinbera, og sjerstaklega þó fyrir einstök bygðarlög, um það, að málið yrði leyst fyrir alt landið. En inn á það atriði skal jeg þó ekki fara að þessu sinni, bæði sökum þess, að það hefir verið gert af öðrum hv. dm., og ennfremur sakir þess, að slíkir útreikningar hljóta altaf að verða að meiru og minna leyti ágiskanir á þessu stigi málsins.

Þegar nú að mál þetta er svona stórt, eins og bent hefir verið á, þá hygg jeg, að allir megi vel við una, þó að ekki verði sett um það heildarlög þegar á því fyrsta þingi, sem það kemur fram á. Varasemin er líka þeim mun nauðsynlegri, þegar hjer er um að ræða það óskabarn, sem allir vilja hlynna sem best að.

Hv. aðalflm. frv. þessa drap m. a. á það, að sjer þætti það harla skrítið hjá meiri hl. fjhn., að vilja leggjast á móti undirbúningi og rannsókn þessa máls. Jeg get vel tekið undir það með hv. þm., að það væri undarleg aðstaða, og það hjá mönnum, sem kunna flm. þakkir fyrir framkomu málsins. En hjer er aðeins sá ljóður á, að þetta er ekki rjett hjá hv. þm. Meiri hl. nefndarinnar er alls ekki á móti rannsókn málsins. Hann er þvert á móti hlyntur henni, enda þótt að hann telji ekki rjett að afgreiða frv. á þessu þingi sem lög. Því að í frv. er um annað og meira að ræða en undirbúning og rannsókn málsins, þar sem í 5. gr. þess eru beinlínis ákvæði um framlög úr ríkissjóði, sem að mínu áliti gætu ekki komið til greina fyr en ítarleg rannsókn hefði farið fram. Að jeg vil ekki flana að þessu máli, er fyrir þá sök, að jeg ann málinu alls hins besta. Jeg vil láta rannsaka það vel, áður en lagt er í framkvæmdir, til þess m. a. að koma í veg fyrir, að mistök verði á því í byrjun, því að slík mistök geta orðið ærið dýr, og jafnframt orðið til þess, að menn missi trú á málefninu, en slíkt tel jeg hinn mesta háska. Jeg vil því forðast alt það, sem getur orðið málinu til ógagns. En það tel jeg til ógagns fyrir málið, ef t. d. að sú yrði raunin á, að þetta fyrirkomulag, sem hjer er stungið upp á, gæti ekki átt við nema í Borgarfirði og á Suðurlandsundirlendinu, og yrði því að setja sjerstök lög fyrir hina ýmsu landshluta. Jeg er alls ekki að spá því, að þetta verði, en vara við, ef að því gæti dregið.

Annars skal jeg geta þess, að þegar jeg hefi hugsað um þessi rafveitumál, þá hefir aðallega vakað fyrir mjer, að virkjun fallvatnanna til þess að bæta úr myrkrinu og kuldanum hjá okkur, kæmi fyrst til verulegra greina, þegar bygðin hefði færst saman. Á jeg þar ekki við, að flytja saman hin strjálbygðu býli, heldur að býlunum fjölgi vegna aukinnar ræktunar landsins. Afstaða mín til þessa máls nú, byggist á varfærni og velvildarhug til málsins, því að jeg er t. d. sannfærður um, að sú fjárhagsáætlun, sem talin er að muni hæfileg fyrir Borgarfjörð og önnur þjettbýl hjeruð, er alt of lág fyrir önnur hjeruð, þar sem strjálbygðin er meiri. Jeg held því, að máli þessu sje ekki stefnt í neina hættu, þó að slíkt frv. sem þetta sje ekki afgreitt frá þessu þingi.

Hv. frsm. minni hl. (JÞ) benti á, að nú stæði fyrir dyrum virkjun Sogsfossanna fyrir Reykjavík, og gæti verið heppilegt fyrir Suðurlandsundirlendið, Gullbringu- og Kjósarsýslu og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu að fá rafmagn frá þeirri aflstöð. Þetta má vel vera rjett hjá hv. þm., og sje jeg ekkert til fyrirstöðu, að það geti orðið, enda þótt frv. þetta verði ekki að lögum nú. Umræður þær, sem þegar hafa orðið um frv., hljóta að gefa hlutaðeigendum bendingu um, hver sje vilji þingsins í þessu efni. Annars get jeg vel ímyndað mjer, að hefði frv. þetta verið borið fram án 5. gr. þess og þeirra ákvæða, sem eru í beinu sambandi við hana, að jeg hefði getað ljeð því fylgi mitt.

Hv. frsm. minni hl. spurðist fyrir um það, hvort við meiri hl. menn myndum ekki fáanlegir til þess að bíða til 3. umr. með till. okkar um að vísa málinu til stjórnarinnar. Jeg fyrir mitt leyti sje ekkert á móti því, að verða við þessum tilmælum, ef von er um, að eitthvað nýtt komi fram, sem flýtir fyrir rannsókn málsins, því jeg vil gera alt til þess að styðja að henni.

Af því að hv. frsm. meiri hl. fjhn. var ekki inni, þegar hv. 6. landsk. lagði þá spurningu fyrir meiri hl. nefndarinnar, hvort hann ætlaðist til að stjórnin ljeti fara fram rannsókn á þessu máli nú mjög bráðlega, skal jeg fyrir mitt leyti svara henni að nokkru, og nægir í því efni að vísa til niðurlagsins í nál. meiri hl., þar sem segir svo: „Telur meiri hl. fjhn. því óforsvaranlegt að afgreiða málið án undangenginnar ítarlegrar rannsóknar. Vill meiri hl. beina því til ríkisstjórnarinnar, að láta slíka rannsókn fara fram og fá þar til hina hæfustu menn á þessu sviði, sem völ er á; hefir meiri hl. þar í huga m. a. rafmagnsstjórann í Reykjavík, hr. Steingrím Jónsson, og telur æskilegt, að ríkisstjórnin hafi hann með í ráðum um rannsóknir og undirbúning, ef þess er kostur. Er meiri hl. og fús til þess, að styðja að því, að veitt verði til þessara rannsókna nokkurt fje í fjárlögum, ef þess verður talin þörf.“

Þessi ummæli virðast mjer svo ótvíræð, að ekki verði um það deilt, að meiri hl. fjhn. vilji, að slík rannsókn verði gerð.