08.04.1929
Efri deild: 39. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (2619)
43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Frsm. meiri hl. (Jón Baldvinsson):
Jeg vildi víkja lítið eitt að ræðu hæstv. fjmrh. (EÁ) á laugardaginn. Mjer fundust undirtektir hans við tillögur meiri hl. eigi eins góðar og jeg hefði óskað. Hann vildi fara varlegar en við. Við viljum styðja fjárveitingu til rannsókna í þessu máli. Hæstv. fjmrh. taldi sig því fyllilega samþykkan, en vildi, að hjeruðin legðu fram fje til rannsóknanna að nokkru leyti. Mjer finst mestu varða, að sjerfróðir menn rannsaki málið vel og vandlega. Má vera, að það taki nokkurn tíma, en jeg tel rjett að bíða eftir þeirri niðurstöðu.
Þetta hefi jeg þó ekki borið undir meðnefndarmenn mína, svo að það er frá mjer einum. Slík rannsókn getur þó ekki orðið fullnaðarrannsókn, en ætti þó að geta gefið hugmynd um, hvar á að byrja á framkvæmduni í þessu máli, svo að flestum komi að gagni, og með sem minstum tilkostnaði. Eitt af því, sem við höfum á móti frv., er það fyrirkomulag um rannsóknir, er það gerir ráð fyrir, og sem leitt getur til þess, að borist geta umsóknir frá 10–12 hjeruðum í einu um rannsókn. Gæti þá verið vandi að velja á milli, og því er rjettast að láta stjórnina hafa forgönguna. Einhver gögn um mál þetta hygg jeg að sjeu til hjá rafmagnsstjóranum í Reykjavík. Veit jeg að vísu ekki, hvaða tölur eru þar nefndar, en jeg veit, að þessi gögn eru til.
Mjer finst satt að segja, að stjórnin hafa tekið fullstirðlega í málið. Jeg fyrir mitt leyti er ráðinn í að vera með fjárveitingu á fjárlögum til undirbúnings þessu máli, og þar má ákveða, hve langt skuli ganga.
Hv. 5. landsk. hjelt fallega ræðu um nálið og talaði um hillingar. En hv. 3. landsk. taldi framkvæmdir í þessu máli vera komnar niður á jörðina hjer hjá okkur. Hv. 5. landsk. talaði í líkingum og líkti íslensku þjóðinni við fanga í tröllahöndum, sem sæti með hendur bundnar á bak aftur og krásirnar í kjöltunni, uns einhver frelsandi engill kæmi og leysti hana úr viðjum. Á víst að skilja þetta svo, að þessir frelsandi englar sjeu íhaldsmenn, og þá fyrst og fremst þeir, sem flytja frv. á þskj. 44; — hv. 2. landsk. (IHB), hv. 3. landsk. (JÞ) og hv. 5. landsk. (JKr). Þetta eru nú englarnir, sem komnir eru til að leysa oss úr böndum. Það hefði þótt fyrirsögn fyrir nokkrum árum, þegar íhaldið var við völd, að það yrði að englum. Má vera, að það hafi eitthvað skánað síðan það veltist úr völdum, en jeg held, að það sjeu fallnir englar. En meðan íhaldið sat að völdum, kom það ekki fram með svona mál. Hvaða mál kom hv. 3. landsk. með til almenningsheilla meðan hann var ráðherra? Jú, helstu bjargráðin hans voru fólgin í því, að reyna að lækka skattana á þeim, sem helst gátu borgað, og að reyna að koma upp nokkurskonar her, ríkislögreglunni, sem gat kostað ríkissjóð mörg hundruð þúsund á ári hverju. Þetta voru nú helstu bjargráðin þá.
En þegar Íhaldsflokkurinn sjer, að hann er búinn að tapa fylgi þjóðarinnar, þá kemur hann með hvert ágætismálið á fætur öðru, þá verður hann að frelsandi englum, sem vilja leysa þjóðina úr tröllahöndum. (JÞ: Er þetta öfund?). Jeg er aðeins að benda hv. 3. landsk. á, að skemtilegra hefði verið fyrir hann sjálfan, að meira samræmi hefði verið í framkomu hans meðan hann var ráðherra og eftir að hann varð fallinn engill. Þegar Íhaldsmenn sátu að völdum, sáu þeir ekki önnur bjargráð en að lækka skatta á þeim efnaðri og stofna her. Síðan er snúið við blaðinu. Í fyrra fluttu þeir frv. um atvinnurekstrarlán handa bændum og útvegsmönnum. Nú koma þeir með raforkuveiturnar og vilja heimila til þeirra svo miljónum skiftir á ári hverju og telja það ríkissjóði ekki ofvaxið.
Það mun vera sanni næst, að Íhaldsflokkurinn hafi fundið, að stefna sú. er hv. 3. landsk. lýsti í „Lögrjettu“ 1908, var að missa vinsældir með þjóðinni. Kosningarnar 1927 sýndu, að sú stefna var ekki vænleg til frambúðar. Þess vegna eru nú Íhaldsmenn að reyna að finna upp á hinu og þessu til að villa á sjer heimildir, eins og t. d. rafmagn inn á hvert heimili, rekstrarlán handa öllum og bann gegn kjallaraíbúðum. En ef Íhaldið kæmist að völdum aftur, er hætt við, að alt þetta yrði skammgóður vermir fyrir þjóðina. Enda hafa þeir haft þær útgöngudyr á þessu frv., eins og hv. 3. landsk. hefir þrásinnis bent á, að þingið geti ávalt takmarkað fjárveitingar til raforkustöðvanna eftir á, þótt frv. verði samþ. Þetta er leiðin, sem íhaldið ætlar að fara, ef þjóðin yrði svo ólánssöm að fela því aftur stjórn mála sinna. Íhaldið horfir á sína pyngju, eins og hv. 3. landsk. sagði 1908. Þetta er sama tilraunin til að villa á sjer heimildir eins og þegar flokkurinn er að reyna að finna á sig aðra forgyllingu en hið illa þokkaða og ljóta nafn.
Þetta er gert í því skyni að veiða kjósendur út um sveitirnar. Þeir ætlast til, að kjósendur bendi á sig og segi sem svo: Þetta eru mennirnir, sem berjast fyrir ljósi, hita og góðum húsakynnum. En þetta fellur um sjálft sig, þegar framkoma Íhaldsins er nánar athuguð. Hverjir eru á móti Sogsvirkjuninni? Leitið — og þjer munuð finna alt Íhaldið í bæjarstjórn Reykjavíkur. Þó er ekki hægt að segja þar, að ekki sje til fje til framkvæmda, nje heldur, að sú virkjun muni ekki bera sig. Einasta mótbáran er sú, að þeir geti ekki samkvæmt sínu Íhaldseðli verið með þessum framkvæmdum fyr en þeir mega til.
Það mætti æra óstöðugan að telja upp allar þær framkvæmdir, sem Íhaldið hefir sýnt fullan fjandskap. (JÞ: Væri ekki rjett að hraða þessu máli, svo að Framsókn fengi að framkvæma það?). Þá myndi fljótlega sannast, að íhaldið risi upp eins og veggur gegn fjárveitingum til þess. Það, sem fyrir íhaldinu vakir, er aðeins að fá „húmbúgs“-heimild samþ., til að slá um sig með því á eftir.
Hv. 5. landsk. sagði, að Jafnaðarmenn væru á móti sveitunum. Jeg hefi nú unnið með þessum hv. þm. í landbn., og þar hefir hann verið eins og staður jálkur, þegar ræða var um mál sveitanna. Hann hefir staðið á móti flestum, ef ekki öllum, þeim frv., sem fram hafa komið til hagsbóta fyrir sveitirnar. Hann var á sínum tíma á móti frv. um Byggingar- og landnámssjóð, og um daginn reis hann öndverður gegn frv. stj. um rannsóknir í þarfir atvinnuveganna, og var þó það frv. sjerstaklega miðað við þarfir bændanna. Hinsvegar fylgdum við, þessir „vondu sósíalistar“, þessu frv., sem, áreiðanlegur verður, eða a. m. k. ætti að geta orðið, til mikils gagns fyrir landbúnaðinn. Það virðist því vera svo í þessu sem öðru, að staðreyndirnar vitna á móti hv. 5. landsk.
Þá var hv. 5 landsk. að reyna að spilla á milli þm. og kvenna þeirra sjerstaklega Framsóknarmanna, þar sem hann var að skora á konurnar að taka illa á móti bændum sínum, þegar þeir kæmu heim af þingi, ef þeir veittu þessu frv. ekki brautargeng! Jeg skal ekkert um það segja, hvernig honum tekst þetta, en ekki finst mjer það lýsa miklum bróðurhug hjá honum, að vera að reyna að spilla á milli hjóna.
Þá kem jeg að hv. frsm. minni hl. (JÞ). Hann fullyrti, að jeg hefði sagt, að frv. yrði til að hlynna að einstökum mönnum með rannsóknir og undirbúning undir virkjun. Þetta sagði jeg aldrei. Hitt sagði jeg, að einstakir í menn gætu myndað fjelagsskap til málamynda utan um vatnsfall, sem í þeir ættu, og með því móti öðlast rjett til að heimta rannsókn á kostnað hins opinbera. Þess vegna er það rjett, að einstakir menn geta heimtað rannsókn á vatnsföllum, sem þeir eiga, án þess að það sje til almenningsþarfa, ef þeir aðeins mynda málamyndafjelagsskap í því skyni, og svo á eftir selt sýslufjelögunum vatnsrjettindin, eftir að rannsókn hefir fram farið, og þá ef til í vill með hækkuðu verði vegna virkjunarmöguleika, sem rannsókn hins opinbera hefir leitt í ljós.
Hv. frsm. minni hl. sagði, að við í meiri hl. hefðum tekið rangar áætlanir upp í nál. okkar. (JÞ: Ekki sagði jeg nú það). Hv. þm. sagði, að þær niðurstöður, sem jeg hefði dregið af áætlununum, væru rangar. Nú segir rafmagnsstjórinn í Reykjavík, Steingrímur Jónsson, svo í brjefi sínu, að hver km. í orkuveitunum muni kosta um 3000 kr., og í plaggi, sem nýbúið er að útbýta og fjallar um fyrirhugaða orkuveitu í Hólshreppi í Norður- Ísafjarðarsýslu, er hver km. reiknaður á 4000 kr. í háspennulínu og leiðslan á milli hjeraða á 5500 kr. km., svo að það virðist síst of hátt að gera ráð fyrir, að hver km. í orkuveitunum kosti 3000 kr., ef miða á við þessa athugun, sem einnig er eftir rafmagnsstjórann í Reykjavík.
Þá sagði hv. frsm. minni hl., að það sannaði ekkert, hve dýr einstaka spotti væri á einhverjum einstökum stað, og mætti ekki leiða af því almenna reglu. Þetta getur satt verið, en jeg held, að þarna vestra sje ekki um sjerstaklega erfiða vegalengd að ræða. (JÞ: Jeg talaði ekki um það, heldur hve rafmagnsframleiðslan ætti að vera mikil). Hún er nú lítilsháttar. Það verða um 200– 300 hestöfl, eða sem svarar 280 kw. (JP: Og dreifist niður á e. 2000 íbúa).
Hv. frsm. minni hl. hjelt því fram, að aukinn straumur hefði enginn veruleg áhrif á kostnaðinn við orkuveiturnar. Jeg fæ nú ekki betur sjeð, en að því sterkari sem straumurinn sje, því gildari verði vírinn að vera, og þar af leiðandi dýrari. Það er að vísu ekki nema ályktun leikmanns í þessum efnum. Einkum hlýtur þetta þó að hafa aukinn kostnað í för með sjer, ef miðað er við álit hv. 3. landsk. frá árinu 1919, þar sem hann gerði ráð fyrir 8 kw. eða 12½ hestafli fyrir hvert heimili, því að hjer er ekki miðað við meira en 2 kw. á hvert heimili. Jeg þykist vita, að hv. frsm. minni hl. muni svara þessu á þá leið, að það megi tapast af straumnum á þessum línum, en hann verður að gæta þess, að því stærri verða orkuverin að vera, því meira sem ónýtist af straumnum í leiðslunum.
Hv. frsm. minni hl. sagði, að ekkert væri að marka útreikninga sína frá 1919. Já, það hefir oftast farið svo, að hann vill ganga frá því, sem hann hefir skrifað, þegar á að fara að nota það gegn honum sjálfum. Hann hefir gert ráð fyrir 1½ hestafli á hvern mann, eða 12 hestöflum á 8 manna heimili, sem yrði notuð til hita, lýsingar og suðu. Og mjer skildist á þessari ritgerð hans frá 1919, að ekki væri vafi á, að óhætt væri að leyfa mikla stóriðju, því að nóg vatnsafl mundi samt verða eftir til almenningsþarfa. En er þá nokkur ástæða til að efast um, að skynsamlegra sje að hafa orkuverin stærri, svo að hægt sje að veita sveitunum nægilegt rafmagn? Sá kostnaðarauki, sem af því mundi leiða, er hverfandi, þegar um er að ræða 75–100 milj. kr. fyrirtæki.
Hv. frsm. minni hl. hefir, eins og aðrir verkfræðingar, gaman af að nefna lágar tölur, enda veit hann, að það er ráðið til að teygja menn til þess að byrja á fyrirtækjum, sem þeir verða svo nauðugir-viljugir að halda áfram með, til að fá eitthvað fyrir peninga sína.
Þá sagði hv. frsm. minni hl., að jeg hefði reiknað sjálfur út, hversu mikla viðbót kostnaðar þyrfti til að fullnægja hitaþörfinni, og virtist hann ekki leggja mikið upp úr því. Það er nú alveg óreynt, hvor okkar er betri í margföldun, en jeg fór eftir áliti hans sjálfs
frá 1919, þar sem bann ætlar hverju heimili 8 kw., og reiknaðist svo, að þurfa mundi að stækka orkuverin sem svaraði 32 milj. kr. kostnaðarauka. Jeg skal játa það fúslega, að jeg er ekki fróður maður um þessi efni, en jeg get lesið það, sem aðrir hafa skrifað um þetta, og dregið mínar ályktanir af því. Hv. 3. landsk. álítur, eftir því sem jeg fæ út úr hans skrifum, að það sje hæfileg eyðsla á heimili, ef 1½ hestafl er á mann. Það er auðvitað engan veginn víst, að þetta verði til frambúðar nægilegt hverju heimili. Jeg hefi átt tal um þessi efni við einn þingbónda, sem notar rafmagn, Hann hefir 5 kw. eldavjel og notar rafmagnið ýmist á hana eða til hitunar, og svo að sjálfsögðu til ljósa, eftir að fer að hausta. Hann þarf 2–3 kw. til lýsingar, og þegar það er dregið frá 8 kw., eins og hv. 3. landsk. ætlar hverju heimili nóg, er ekki mikið eftir til hitunar og suðu, enda þykir mjer ekkert líklegra, en að 8 kw. sje of lítið handa öllum stærri heimilum, sjerstaklega þegar fólk er farið að komast upp á að nota þessa þægilegu orku til sem flestra heimilisstarfa.
Hv. frsm. minni hl. heldur því fram, að meiri hl. frv. sje undirbúningur til þess að geta byrjað á framkvæmdum í þessu efni. Jeg hefi sýnt fram á það, að ríkissjóður á samkv. 2. gr. frv. að bera kostnaðinn af þeim rannsóknum, er gerðar verða í þessu efni, og samkv. 5. gr. allverulegan hluta stofnkostnaðarins, og held því fram, að ekki eigi að ráðast í þetta fyr en sú yfirlitsrannsókn hefir verið framkvæmd, sem við í meiri hl. fjhn. leggjum til, að gerð verði. Hv. frsm. minni hl. segir, að ekki sje annað en að samþ. brtt. sína, til þess að kippa þessu í lag. Jeg get út af fyrir sig fallist á þá tilhögun, sem þar er gert ráð fyrir, að fela orkumálastjórn að framkvæma rannsókn í þessu efni, en önnur ákvæði frv. eru því til fyirstöðu, að jeg geti samþ. að setja þessa till. inn í frv., eins og sakir standa.
Hv. frsm. minni hl. var að spauga með það, að jeg hefði sagt, að hægt væri að stöðva vegagerð. Jeg benti á það, að ef byrjað væri að byggja rafmagnsstöð, væri ekki hægt að hætta í miðjum klíðum, nema stórtjón verði af. (JÞ: Það er leiðinlegt, eða hitt þó heldur). En ef fje vantar til framkvæmdanna? Það er alt öðru máli að gegna um vegagerðir. Það fje, sem varið er til vega, kemur strax að notum í þeim vegarkafla, sem búið er að leggja fyrir fjeð. Og þann veg er hægt að nota það sem hann nær. En þó að keypt væri túrbína, hefir hennar enginn gagn, fyr en búið er að byggja stöð og leggja leiðslur heim á bæina. Þetta er því ekki sambærilegt við vegagerðir. Það getur enginn kveikt ljós hjá sjer, þó að túrbína lægi einhversstaðar uppi í Borgarfirði, en aftur á móti geta allir haft not af þeim vegarspotta, sem lagður væri fyrir þær 20 þús. kr., sem t. d. túrbína kostar. Alt það, sem hv. frsm. minni hl. sagði í þessu sambandi, er því rangt og villandi.
Þá hjelt hv. frsm. minni hl. því fram, að jeg væri á móti þessu frv., af því að það bygðist ekki á ríkisrekstri. Þetta er hreinasti misskilningur. Jeg veit ekki betur, en að frv. geri ráð fyrir opinberum rekstri, og það skiftir í sjálfu sjer engu máli, hvort rafstöðvarnar verða eign hjeraða eða ríkis. Þetta er alt opinber rekstur. Jeg get því ekki verið á móti frv. af þessari ástæðu.
Hv. frsm. minni hl. sagði, að það væri hægurinn á um framkvæmdir í þessu efni, ef hvert heimili vildi leggja svo að sjer eins og einstök heimili gera nú til að byggja einkastöðvar. Jeg er ekki viss um, að þetta sje rjett. Þar sem hentugar aðstæður eru og vatnsaflið rjett við hendina, er auðvelt um virkjun og ekki mjög kostnaðarsamt. Það má fá 10–12 hestafla stöð fyrir þetta 6–7 þús. kr. En nú kostar leiðslan á milli bæja 4500 kr., — svo að jeg taki 3000 kr. áætlunina — og heimleiðslan með áhöldum að minsta kosti 1000 kr., og er þá nærri komið upp í stöðvarverðið. Við þetta bætist svo afnotagjald, kostnaður við orkuverið og vextir af því fje, sem í því liggur, svo að það er ekki alveg víst, að hægt væri að koma upp orkuverum fyrir almenning, þó að gert væri ráð fyrir þessu í lögum frá Alþingi.
Hv. frsm. minni hl. sagði, að það væri næg ástæða til að fresta atkvgr., ef menn gætu fallist á brtt. hans. En hann verður að gæta að því, að till. er brtt. við frv., og verður ekki skilin frá því, svo að jeg sje ekki, að neitt sje unnið við að geyma atkvgr. Það væri alveg eins hægt að samþ. sjerstakt frv., sem væri orðað eins og brtt.