08.04.1929
Efri deild: 39. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í C-deild Alþingistíðinda. (2620)

43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Hv. frsm. meiri hl. (JBald) er stöðugt hræddur við, að miklar umsóknir verði um rannsóknir í þessu skyni. En það er engin ástæða til að óttast umsóknir umfram það, sem felst í brtt. okkar minni hl. við 8. gr., og úr því að hv. frsm. meiri hl. er ekki á móti þessari brtt. að efni til, eru hinar mótbárur hans sjálffallnar.

Í mínum augum er það ekki þýðingarlítið, að sveitastjórnirnar fái tilefni til þess frá upphafi að gerast hvatamenn að undirbúningi þessa máls, því að þegar til framkvæmda kemur, er þetta viðskiftamál, sem tekur til hvers manns í umdæminu. Það er hætt við skilningsleysi af hálfu almennings, ef hjeraðsbúum er haldið utan við málið, svo að jeg hjelt, að menn gætu fallist á þann meðalveg, sem 2. gr. gerir ráð fyrir, að ætla hjeruðum og fjelögum framkvæmdirnar í þessu efni, en 8. gr. leggur þá skyldu á herðar forstöðunefndarinnar, að gera svo fljótt sem unt er uppástungur um heildarskipulag þessara mála.

Þá brá hv. frsm. meiri hl. sjer á leik, líkt eins og kálfarnir á vorin, yfirgaf sjálft málið og fór að tala um íhaldið. Alt, sem hann sagði í því sambandi, var á tómum misskilningi bygt, enda skal jeg ekki fara langt út í það. Jeg er upp með mjer af fortíð minni sem fjmrh. í hvert skifti, sem jeg heyri, að andstæðingar mínir eru svo ráðþrota, að þeir geta ekki borið mjer neitt verra á brýn en að jeg hafi viljað lækka skattana á þjóðinni og hlúa að þeim atvinnugreinum, sem verkalýðurinn hjer í Reykjavík fyrst og fremst lifir og nærist á. Og jeg þori að segja, að það mundu fleiri fjmrh. verða montnir af því, ef ekki væri hægt að finna neitt lakara að þeim en þetta. En jeg verð að bæta því við, að þegar þetta er orðið eitt af aðalaðfinsluefnunum, er bilið farið að verða æði langt milli þeirra, sem svo tala, og hinna, er voru frumherjar þess, að þjóðirnar drægju völdin úr höndum einvaldra konunga, og í hendur þjóðarfulltrúa, fyrst og fremst skattaálöguvaldið. Upp úr slíkri baráttu spratt enska parlamentið og áskildi sjer einu rjettinn til að leggja á þjóðina skatta, en jafnframt var brotið á bak það einveldi, sem konungur hafði áður til þess að leggja á nýja skatta. Þessi breyting, sem orðið hefir í löndunum, hefir miðað í þingræðisáttina og verið einskonar varúðar- eða varnarráð þjóðanna gegn órjettmætri skattaálagningu einvaldsherranna. Og þetta vald, sem þjóðirnar hafa skapað sjer, mega þær ekki misbrúka, heldur nota það til þess að ljetta af sköttum eftir því sem hægt er. Hv. frsm. meiri hl. virtist öfundast yfir því, að við, sem erum stjórnarandstæðingar, skulum bera fram ýms stórmál. En hvað á lengi að bíða eftir því, að hann komi með einhver ný stórmál? Hann var áður stjórnarandstæðingur og hafði þá fátt nýtilegt fram að bera, og síðan hann komst í stjórnarflokkinn og varð yfirstjórnari hæstv. stj., hefir ekki bólað á neinum nýjum eða merkum málum frá honum. En jafnframt því, að hann öfundar Íhaldsflokkinn fyrir að hafa flutt þetta mál, endurtekur hann andúð sína til flokksins á þann einkennilega hátt, að hann segist óttast, að ef framkvæmd þessa máls dragist þangað til Íhaldsflokkurinn komist til valda aftur, þá muni hann finna einhverja smugu, sem hann geti notað til þess að koma sjer hjá frekari framkvæmdum í málinu. Sem stendur er Íhaldsflokkurinn í minni hl. Hvers vegna vill hv. frsm. meiri hl. slá því á frest að framkvæma málið og nota ekki heldur tækifærið á meðan hann er í meiri hl., og sama sem í stjórn? Það er nú hvorttveggja, að hv. frsm. meiri. hl. á bágt með að vera á móti málinu, enda hafa rökin mistekist. Ef hann ætlast til, að spádómar hans um sigur Íhaldsflokksins og getsakir í hans garð sje tekið alvarlega af þjóðinni, þá er hjer um rökvillu að ræða. Annars býst jeg ekki við, að hann sjálfur hugsi, að þetta verði tekið alvarlega af neinum.

Jeg ætla að leiða hjá mjer að tala um það, sem hv. frsm. meiri hl. sagði um afskifti bæjarstjórnarinnar af virkjun Sogsfossanna. Það er algerlega óviðkomandi þessu máli, sem hjer er til umræðu.

Næst var hann að tala um tölur, sem hann færði í letur í nál. sínu, og eru orðnar honum ógurlegur þyrnir í augum, eftir að jeg hafði sýnt honum fram á, að samkvæmt þessum tölum sje málið ekki svo ægilegt fjárhagslega, að rjett sje að fresta framkvæmdum af þeim sökum. Nú hefir hv. frsm. meiri hl. leitað í skjölum og skilríkjum að einhverju því, sem hann gæti notað til þess að hnekkja því, er hann hefir áður sagt og haldið fram. Og nú hefir hann náð í áætlun um, að einhver háspennutaug muni kosta um 4 þús. til 5500 kr. km. En hann hefir ekki leyfi til að nota þessar tölur sem álit rafmagnsstjórans í Reykjavík um kostnað veitutauga um landið yfirleitt og hefir heldur ekki spurt rafmagnsstjórann um það, hvort þetta væri ekki sjerstaklega kostnaðarsamar taugar. Jeg get líka bent á línu, sem kostað hefir 4 þús. kr. km., en henni er ætlað að flytja 280 kw., en það rafmagn er ætlað 1000. manns, eða 3–4 hreppum. En það er æði mikill munur á þeim veitutaugum, sem færa eiga fleiri hreppum raforku, og hinum, er leiða hana bæja milli.

Það er ekki nema eðlilegt, að hv. frsm. meiri hl. sje ekki sjerstaklega heima í „tekniskum“ atriðum, en þó kom mjer á óvart, að hann skuli ekki hafa skilið, að þegar um er að ræða veitutaugar um strjálbygðar sveitir, þá þarf þráðurinn að vera það gildari styrkleikans vegna, að hann geti tekið meiri straum en ætlað er að með þurfi.

Alt, sem hv. frsm. meiri hl. hefir flaggað með í þessu efni, er ekkert annað en tilraun hans til þess að rífa niður það, sem meiri hl. hefir sagt í nál. sínu. Jeg sje enga sjerstaka ástæðu til að fara að verja tölur hv. meiri hl., þó að hann stangist við sjálfan sig út af þeim. Um það á hann við engan nema sjálfan sig. Það eina rjetta er, að láta slíka dóma bíða þangað til sú rannsókn hefir farið fram, sem frv. miðar að.

Þá þótti mjer hv. frsm. meiri hl. taka sjer undarlegt starf fyrir hendur, er hann fór að kenna hv. þdm. það, sem allir vissu, og útlista nánar, að enginn gæti kveikt á túrbinu fyr en verkið og alt þar að lútandi væri komið í fullkomið lag. Þetta er ekki annað en það, sem allir vita, eða heldur kannske hv. frsm. meiri hl., að breyting á þessu verði með því að svæfa málið nú um óákveðinn tíma? Þetta verður ekki skilið sem ástæða með því að fresta málinu.

Þá fullyrti hv. frsm. meiri hl., að fjelagsveitur yrðu dýrari í framkvæmd en einstaklings veitur. Við skulum bíða rólegir og ekkert fullyrða um það, fyr en rannsóknir hafa leitt sannleikann í jós. En þetta fælir ekki almenning frá að heimta rannsókn á fjelagsveitum, því að víða hagar svo til um virkjun og leiðslur, að það yrði einstaklingum ókleift kostnaðarins vegna, og fjelagsveiturnar því eina úrræðið.

Þá er það að lokum brtt. við 8. gr. og frávísunartill. hv. meiri hl. Hv. frsm. meiri hl. lýsti því yfir, fyrir sína hönd, að jeg vona, en ekki fyrir hönd hv. meiri hl. í heild, — ef taka má mark á orðum hv. 2. þm. N.-M. — að hann, hv. frsm., væri á móti því að fresta atkvgr. um frávísunartill. fram yfir það, að brtt. við 8. gr. væri samþ. En það er engin ástæða til þess vegna brtt., nema því aðeins, að menn vilji ekki aðhyllast hana. Hann sagði, að ef hv. þdm. væru á móti ákvæðum frv., þá ætti brtt. ekki að komast til atkv. En ef þeir eru á móti frv., hvers vegna koma þeir þá ekki hreint til dyra og fella 1. gr. Þá er um leið útilokað, að brtt. komist að. Þetta er masminst, ef hv. meiri hl. er svo andvígur frv., að hann getur ekki hugsað til að samþ. einstakar greinar þess við 2. umr. En jeg geri nú ráð fyrir, að þeir sjeu á þann veg á móti frv., að þeir vilji ekki lofa því að lifa svo lengi, að auðnast mætti að lagfæra 8. gr.

Hinsvegar heyri jeg, að hv. frsm. meiri hl. er svo andvígur frv., að hann getur ekki hugsað til að einstökum gr. þess sje gert svo hátt undir höfði, að frv. sje lofað að fljóta til 3. umr., en órjettmætt er það og í beinni mótsögn við sumt það, er meiri hl. hefir sagt um afstöðu sína til málsins.