09.04.1929
Efri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 593 í C-deild Alþingistíðinda. (2628)

43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Hæstv. dómsmrh. mæltist til þess í gær, að jeg svaraði sjer með langri ræðu, en vissi þó, að jeg hafði haldið þær 3 ræður, sem þingsköp leyfa mjer við þessa umr. Jeg mun hlíta þingsköpum, eins og venja mín er, enda sje jeg enga ástæðu til að gera hv. andstæðingum mínum sláturstörfin auðveldari með því að segja nú við 2. umr. það sem jeg get sagt við 3. umr. En sje drápshugur hv. andstæðinga svo mikill, að frv. fái ekki að lifa til 3. umr., þá verður að taka því.

Jeg mun því aðeins nota þennan rjett minn samkvæmt þingsköpum, til þess að bera af mjer sakir. Þó er það ekki svo að skilja, að jeg þykist þurfa að bera af sjálfum mjer sakir, en hæstv. dómsmrh. veittist allmjög að stjettarbræðrum mínum, verkfræðingunum, og ætla jeg að þingsköp heimili mjer að svara þar til saka.

Hæstv. dómsmrh. endurtók ennþá einu sinni öfgar þær og blekkingar, sem honum og flokksbræðrum hans er svo gjarnt að bera fram, ef minst er á Skeiðaáveituna. Það er rjett, að frá verkfræðinganna hálfu var Skeiðaáveitan áætluð um 120 þús. kr., en kostaði um milj. króna. En þegar miðað er við þessar tölur, þá er og skylda allra rjettsýnna manna að hafa jafnframt í huga, að frá því að áætlunin var gerð og þangað til verkið var framkvæmt, hafði verðlagið í landinu þrefaldast. Þess vegna þarf engan að furða, þó að kostnaðurinn færi fram úr hinni upphaflegu áætlun, og ekki verður verkfræðingunum kent um dýrtíðina í landinu á þeim árum, er verkið var framkvæmt. En þar sem báðir hæstv. ráðherrar, sem sæti eiga í þessari hv. d., hafa látið þau orð falla, að þessar framkvæmdir hafi orðið til niðurdreps bændum á áveitusvæðinu, þá er það mjög orðum aukið að því leyti, sem það er ekki algerlega rangt. Vegna óhapps, sem áveitufjelagið varð fyrir, varð verkið miklu dýrara en áætlað var í öndverðu, en þrátt fyrir það hefir þó framkvæmd áveitunnar orðið til þess að breyta búskaparlagi bænda á svæðinu og lyfta þeim. Jeg hefi hjer í höndum Búnaðarskýrslur Íslands fyrir árið 1927, og samkvæmt þeim hefir nautgripum fjölgað á Skeiðunum frá 1923–1927 um 40%. Þetta er álitleg byrjun og spáir góðu um þann möguleika, að framfleyta meiri nautpeningi, enda vona jeg, að þar verði framhald á, þrátt fyrir það þó að hæstv. dómsmrh., sem enga trú hefir á breyttum búnaðarháttum, geri alt sem hann getur, til þess að níða þessar framkvæmdir. Og jeg get bætt því við, að jeg hefi bestu vonir um, að þetta fari ágætlega, og ekki síst vegna þess, að jafnvel undir þeim óheppilegu kringumstæðum, sem vikið hefir verið að, hefir Skeiðaáveitan artast sæmilega, og hefi jeg þann stuðning í öllu því, sem skjallega er upplýst um áhrif áveitunnar. Annars mun jeg við 3. umr. svara hæstv. dómsmrh. nánar í þessu efni, ef frv. verður þá leyft að fljóta þangað.

Hv. 6. landsk. kvaðst hafa búist við, að jeg mundi sýna fram á, að kostnaðaráætlun sú, sem hann hefði sett fram, væri of há. En jeg vildi hvorki gera svo mikið úr honum eða mjer, að við færum að togast á um kostnaðaráætlun, sem frv. fer fram á að gerð verði, og er því ógerð enn.

Hv. 2. þm. N.-M. vildi jeg segja það, að jeg fann ekki að hann væri í ræðu sinni með neinar ásakanir í minn garð. Hann var að reyna að afsaka, hvers vegna hann sjálfur hefði ekki orðið frsm. meiri hl. í stað hv. 4. landsk., og vildi jeg þá minna hann á það fornkveðna, að sá sem afsakar sig, hann ásakar sig, og hv. þm. hefir góðar og gildar afsakanir fyrir því, hvers vegna hann varð ekki frsm. hv. meiri hl.

Þá vildi jeg með örfáum orðum leiðrjetta það, sem kom fram hjá hæstv. fjmrh. um Flóaáveituna, að rjettara hefði verið að þurka upp Flóann heldur en að veita á hann. Það lítur út fyrir, að hæstv. ráðh. sje ekki vel ljóst, hvað unnið hefir verið í Flóanum, því þó að það sje í daglegu tali kallað áveita, þá er þó ekki síður um uppþurkun að ræða en áveitu.