09.04.1929
Efri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í C-deild Alþingistíðinda. (2629)
43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Mjer finst, að hv. frsm. minni hl. hefði getað notað betur sinn þinglega rjett en hann gerði, til þess að rökstyðja mál sitt og sanna, að þau stóru fjárútlát, sem frv. fer fram á, sjeu á rjettum grundvelli reist. En þetta hefir hv. frsm. minni hl. forðast að gera. Hann hefði þó getað fylgt dæmi mínu um annað stórmál, er jeg bar fram, sem sje Byggingar- og landnámssjóð. Þegar jeg bar það frv. fyrst fram, ljet jeg því fylgja till. um tekjur, og svo var einnig um þáltill, sem jeg bar fram á þinginu 1927. Þá mælti hv. 3. landsk. nokkur orð í sambandi við þessa till. mína, er mjer þykja þess verð að lesast hjer upp, með leyfi hæstv. forseta: „Það er rjett hugsun hjá hv. 6. landsk. (JJ), að um leið og brotið er upp á máli, sem gera má ráð fyrir, að hafi til muna aukin árleg útgjöld í för með sjer úr ríkissjóði, þá þarf líka að útvega ríkissjóði nýjar tekjur.“ (D-deild Alþt. 1927, 702. dálkur).
Hv. 3. landsk. játaði það 1927, að þegar borin væru fram stór gjaldafrv., þá væri nauðsynlegt að því fylgdi a. m. k. bending um, hvernig afla skyldi tekna til þess að standast kostnaðinn. En það er svo fjarri, að hann eða meðflm. hans hafi sjeð nokkra nauðsyn til fjáröflunar í þessu skyni, og hv. frsm. minni hl. hefir skotið sjer undan og ekki svarað neinu um þetta, og hefir þó komið fram rökstudd dagskrá um að eyða málinu og önnur till. um að vísa því til stjórnarinnar. Báðar þessar till. byggjast á því, að framkvæmd frv. verði ríkissjóði ókleif, nema að aflað verði nýrra tekna. Ef ekkert kemur fram af hálfu hv. flm. sem bending um það, að ljetta undir með ríkissjóði, þá verður það að skoðast sem hrein og bein uppgjöf þeirra, eða játning um það, að þeir hafi ekki gert sjer nokkra minstu hugmynd um, hvernig ríkissjóður ætti að standa straum af kostnaðinum við þetta miljónafyrirtæki.
Þetta er alvarlegra mál en svo, að menn eigi að leika sjer með það. Og þegar svo bætist við framkomu og frekju hv. flm., að þessi sami flokkur, sem að frv. stendur, hefir ekkert gert til þess að ljetta undir með þeim bændum, er á síðari árum hafa hafist handa um að raflýsa hjá sjer. Þvert á móti hefir t. d. aðalmálgagn flokksins, Morgunblaðið, hreytt ónotum í þann mann, Bjarna Runólfsson á Hólmi, sem mest og best hefir unnið að því allra Íslendinga, að koma upp rafvirkjun í sveitum og vekja áhuga bænda í því efni. Þegar svo ofan á alt þetta tómlæti íhaldsmanna gagnvart sjálfbjargartilraunum bænda um að lýsa upp heimilin og gera þau vistlegri, bætist sú höfuðsynd, sem lýst hefir verið í dag, að meiri hl. bæjarstjórnar Reykjavíkur, sem kunnugt er að skipuð er tómum Íhaldsmönnum, stendur á móti því, jafnlengi og þeir þora fyrir bæjarbúum, að notfæra sjer það fje, sem minni hl. bæjarstjórnarinnar hefir trygt til þess að hrinda í framkvæmd glæsilegustu og fjárvænlegustu stórvirkjun, sem enn hefir á dagskrá þjóðarinnar komið, sem sje virkjun Sogsfossanna, — þá fer mönnum að skiljast hvílíkan skollaleik er verið að leika hjer á Alþingi af þeim mönnum, sem frv. þetta hafa borið fram.
En málið er í sjálfu sjer gott og merkilegt og eflaust eitt af stærstu framtíðarmálum þjóðarinnar, sem bíður heppilegrar úrlausnar. Þess vegna má það ekki gjalda þess, þó að það sje að þessu sinni illa flutt og af enn minni heilindum þeirra manna, sem að því standa.
Í þessu sambandi vil jeg minna á það, sem danskur ráðherra er látinn segja í Alþingisrímunum við sendimenn, sem komu á fund hans með erindi Íslendinga. Þessum danska ráðherra eru gerð upp orðin við íslensku sendimennina á þessa leið:
„Jeg skal ykkar ættarstorð
ekki móti vera,
en fyrir sjálfra ykkar orð
ekki mikið gera.“
Þannig hygg jeg að verði aðstaða allra sannra umbótamanna til rafmagnsmálsins. Þeir munu styðja málið, þó þeir geri litið með glæfralegar og vanhugsaðar atkvæðaveiðatillögur.
Jeg vil nú gera ráð fyrir, að þessi íhaldsvaðall um málið, án þess að gera nokkra minstu grein fyrir fjárhagshliðinni, geti aldrei orðið annað en einskonar kosninga-draumsjón þeirra, en þó láta þeir eins og þeir sjeu nú þegar búnir að hita og lýsa upp alla bæi í landinu. En málið er í sjálfu sjer gott, eins og jeg hefi tekið fram, og þess vegna má ljelegur flutningur þess nú, af hálfu íhaldsins, ekki spilla fyrir því, en hann getur heldur ekki bætt fyrir því á einn eða annan hátt, því að alt, sem hv. flm. hafa haft fram að flytja, er ekkert annað en þekkingarlaust fum og fuður, þvert ofan í þá reynslu, sem fengin er um falskar áætlanir íslenskra verkfræðinga.
Stefnumunurinn á íhalds- og Framsóknarflokknum er mjög mikill í þessum efnum. Við Framsóknarmenn gerum miklar kröfur til þess, að fyrirtækin sjeu gagnleg og standi á tryggum grundvelli. Við vorum t. d. með því að styðja hina aðdáanlegu sjálfbjargarviðleitni Akureyringa, Eyfirðinga og Þingeyinga í því, að koma Kristneshælinu upp, með því að leggja fram helming kostnaðar. Það var aftur á móti Íhaldið, að undanteknum 3 eða 4 mönnum, sem vildi slá á þessa framrjettu hönd í baráttunni gegn hvíta dauðanum. Þegar frv. um Bygginga- og landnámssjóð kemur fram, þar sem á að greiða lága vexti, en borga allan höfuðstólinn, þá berst Íhaldið með hnúum og hnefum á móti því, og það svo kröftulega, að málið nær ekki fram að ganga fyr en Íhaldsliðinu er orðið ómáttugt að hefta framgang þess. Þarna er þó ríkið að hjálpa þarflegri sjálfsbjargarviðleitni, en ekki að leggja út í glæframensku- eða svindilfyrirtæki eins og þau sem sumir verkfræðingar beita sjer fyrir. Þegar Íhaldið kemur fram með till. um að stofna til slíkra fyrirtækja, þá er ekki hugsað um annað en að gefa miklar gjafir í byrjun, og koma svo skellinum að lokum á ríkissjóð.
Árið 1925 sáu menn fram á það, að tekju- og eignarskattur mundi verða með hærra móti, aðallega af því, að þá ljet vel í ári. Nú hefði slík skattaaukning komið talsvert við pyngju ýmsra fylgifiska íhaldsins, en þá gerir það sjer hægt um hönd og breytir lögunum um þessa skatta, svo að vinir þess þurfi minna að borga. Er það haft eftir þáverandi skattstjóra, Einari Arnórssyni, að þessi eftirgjöf hafi numið um 600 þús. kr. það ár, og mun það hafa runnið nær eingöngu til samherja og stuðningsmanna Morgunblaðsins. Hjer í þessu frv. fer það svo fram á að lokka menn út í fyrirtæki, sem hneppa þá í skuldafjötra, og vill skylda ríkissjóð til þess að leggja fram miljónir í þessi fyrirtæki, sem ekki bera sig. (Hávaði í suðurstofu Ed.). Jeg vona að hv. 3. landsk. (JÞ) sje ekki að verða geðbilaður þarna inni í herberginu, það væri mikill skaði fyrir hönd og lýð.
Að því leyti, sem hv. 3. landsk. reyndi að bera sakir af stjett sinni, þá var viðleitnin betri en árangurinn. Hann reyndi ekki að afsaka glapræði verkfræðinganna við vegalagningar, Eyrarbakkaspítalann, Flóaáveituna eða Skeiðaáveituna, en reyndi aðeins að verja sjálfan sig.
Af því að hv. 3. landsk. tók Skeiðaáveituna sjerstaklega til athugunar, vil jeg víkja að henni nokkuð nánar. Hann reyndi ekki að mæla á móti því, að eftir áætlun verkfræðinganna átti hún ekki að kosta nema liðug 100 þús. kr., en í framkvæmdinni fór hún upp undir ½ miljón. Þessu er ekki hægt að mótmæla. Lán áveitunnar eru í mestu vanskilum, og ekki hinn minsti neisti af von um það, að hlutaðeigandi aðiljar geti nokkurntíma borgað þau. Verði gengið að bændum á áveitusvæðinu með nokkurri hörku, verður það ekki til annars en þess, að þeir flæmast burtu af jörðunum og verða gjaldþrota. Alt er þetta að kenna illa mentuðum verkfræðingum og þeirra aumingjaskap. Og aumingjaskapur þeirra náði svo langt, að þeir fundu ekki klöpp, sem kostaði 120 þús. kr., og sem alla varð að sprengja. Þetta er aðeins dæmi til þess að sýna hve lítið er að marka gaspur og glamur verkfræðinganna, þegar þeir vilja hrinda af stað framkvæmdum til þess að fá sjálfir atvinnu. Þetta væri ef til vill afsakanlegt, ef hægt væri að fóðra afstöðu þeirra á einhvern hátt, og þeir gætu horfið frá þessu, en það er ómögulegt. Skeiðaáveitan er einn allra auðvirðilegasti þáttur í verkfræðingastarfseminni hjer á landi, og er varla hægt að hugsa sjer annað eins. Þarna hafa margir verkfræðingar verið að verki, og þó hefir þeim mistekist svo hroðalega, að á sljettu landi, eins og þarna er, hafa þeir ekki látið grafa nógu margar holur, til þess að hægt væri að sjá, hvort undir væri klöpp eða mold á skurðsvæðinu. Hvaða vörn er svo færð fyrir þessu? Það er ekkert nema dýrtíðin, og hún á að afsaka alla þessa vanþekkingu og aumingjaskap verkfræðinganna. Það var reyndar alveg rjett, að það er dýrtíð á mannviti og þekkingu, sem er um að kenna.
Þá kom hv. 3. landsk. að járnbrautarmálinu og taldi, að ekki væri hægt að gera neina árás á Íhaldsflokkinn, vegna afskifta hans af því máli. Það er nú svo um það mál, að það sem er plús fyrir einn Íhaldsmann í því, er mínus fyrir annan. Þegar hv. 3. landsk. var landsverkfræðingur, rjeð hann til þess, að járnbraut yrði lögð austur yfir fjall, því að hún mundi borga sig, og hafði hann marga verkfræðinga á sínu máli. En hvað skeður? Það kemur fram einn leikmaður, kaupmaður hjer í bænum, sem er íhaldsmaður, og deilir við verkfræðinginn og drepur málið í höndunum á honum, og nú er verkfræðingurinn kominn á skoðun hv. 1. þm. G.-K. (BK) og snúinn frá sinni fyrri skoðun. Þegar leikmenn geta tekið verkfræðingana, sett þá á hnje sjer og sannfært þá svona, þá sýnir það best á hverju er að byggja, þegar þessum mönnum er treyst.
Ef þetta frv. verður samþ., þá er það víst, að enginn hefir gott af því, nema verkfræðingarnir. Íhaldið hefir ekkert gott af því, því að þegar menn sjá, að þetta er ekki annað en „humbug“, verður það ekki einu sinni agn um kosningar. Bændur hafa heldur ekkert gott af því, því að þetta mun aldrei komast í framkvæmd, en sitja aðeins við rannsóknir og bollaleggingar verkfræðinganna. Sjálfsbjargarviðleitni bændanna mun samt halda áfram eftir sem áður, þó að með þessu frv. sje verið að reyna að drepa hana og lokka bændur út á kviksyndi botnlausra glæfrafyrirtækja. Jeg býst helst við, að Íhaldsflokkurinn hafi ætlað að græða á þessu sem flokkur, en það verður víst nokkuð hæpið, því að óheilindin skína alt of mikið í gegn. Nái frv. fram að ganga, geta verkfræðingarnir mjelað sína köku við það að gera áætlanir, aðrir fá þar engin hlunnindi, og hefði hv. 3. landsk. átt að játa þetta hreinskilnislega.
Umhyggja hv. 3. landsk. fyrir verkfræðingunum kemur víða fram. Þegar hann var að tala um það hjerna um árið, að hita alla Reykjavík upp með heitu vatni alla leið ofan frá Hengli, þá ljet hann ummæli falla í þá átt á ákveðnum stað, sem hann kannast víst vel við, að það væru svo margir atvinnulausir verkfræðingar hjer í þessum bæ, að það mætti til að láta þá fá eitthvað að gera. Um þetta var svo skrifað í dönsk blöð, og þar var dáðst að þessum vitmanni, sem væri svona sniðugur, að hann ætlaði að hita upp allan höfuðstaðinn með heitu vatni, en ekki minst á hina röksemdina, atvinnu handa atvinnulausum stjettarbræðrum tillögumanns. Nú geta allir brosað að þessari hlægilegu fyrirætlun, og hv. 3. landsk. verður að reyna að brosa líka, til þess að vera ekki altof einstæðingslegur innan um allan hláturinn. Þegar svo á að ráðast í framkvæmdir á þessu sviði, þá skal maður ekki halda, að verkfræðingarnir hafi uppgötvað þann sannleika, að þetta sje mögulegt. Fyrsti maður, sem rjeðst í slíkar framkvæmdir, var Sigurjón Pjetursson á Álafossi. Hann fór til allra helstu verkfræðinganna. (JÞ: Hann kom til mín). Hvernig gat hv. 3. landsk. misskilið mig, að jeg ætti við hann? En verkfræðingarnir rjeðu honum allir frá því, að eiga nokkurn hlut við slíkar hitaleiðslur, svo að hann varð að gera alt upp á eigin spýtur. (JÞ: Hann fór eftir mínum ráðum og mínum tillögum). Hann gerði þetta alveg í trássi við alla verkfræðinga og án þeirra aðstoðar, og jeg hefi vitnisburð Sigurjóns sjálfs fyrir þessu. Annars þykir mjer mjög svo eðlilegt, að hv. 3. landsk. reyni að bera á móti þessu, því að það er ilt til afspurnar fyrir verkfræðingana, að leikmaður skuli gera það upp á eigin spýtur, sem þeir treysta sjer ekki til.
Menn geta nú ef til vill sagt, að það sje nokkur útúrdúr að minnast á verkfræðingana, en það má ekki gleyma þeim í sambandi við þetta frv., því að langsamlega mestu fyrstu framkvæmdirnar yrðu svokallaðar rannsóknir verkfræðinga út um alt land. Þeir yrðu fyrstu atvinnuþiggjendur vegna frv. þessa, ef það næði fram að ganga. Þeir munu fúsir til þess að leggja út í svona fyrirtæki, sem er hreinasta hallærisráðstöfun fyrir allar stjettir þjóðfjelagsins nema þá, en þeir hugsa um það eitt, að fá eitthvað fyrir snúð sinn. Þessu til sönnunar skal jeg taka eitt mjög svo sláandi dæmi.
Í Vestur-Skaftafellssýslu er á, sem rennur gegn um hraun og fellur þar í einu lagi, en þegar hún kemur fram undan hrauninu, kvíslast hún í 4 eða 5 kvíslar. Að sjálfsögðu er langhægast að brúa ána í einu lagi upp við hraunið, og það má gera fyrir ein 20–30 þús. kr., en verkfræðingarnir, sem höfðu með þetta að gera, lögðu til, að áin yrði brúuð þar sem hún rennur í 4–5 kvíslum, og þar sem hver kvísl er breiðari heldur en öll áin, þar sem hún rennur í einu lagi. Þó er ekki nema lítill spotti á milli hraunrótanna og þessa fyrirhugaða brúarstæðis verkfræðinganna. Ár eftir ár er barist við að mæla fyrir þessari vitleysu, og verkfræðingarnir spígspora þarna og halda í vonina um það, að fá þetta barið í gegn. Svona gekk þetta alt Íhaldstímabilið og ekki nóg með það, heldur reyna blöð Íhaldsins að æsa Skaftfellinga upp í að láta gera 5 brýr fyrir eina, og ætla sjer meira að segja að reyna að fella núverandi þm. sýslunnar vegna þeirrar aðstöðu hans, að hann vill heldur láta ríkið byggja eina brú en fimm, úr því að sú eina gerir sama gagn. Svona er trúin mikil í þeim herbúðum á það, hvað heimska verkfræðinganna fái miklu áorkað.
Jeg vil nú vona, að hv. 3. landsk. fái einhvern tíma seinna, t. d. við 3. umr., tækifæri til þess að bera meiri sakir af verkfræðingastjettinni, því að jeg get tekið fleiri dæmi og lýst fleiri vígum á hendur þeim, og jeg vil alls ekki leggja mína þjóð undir glæframensku þeirra og aumingjaskap.
Það á að styðja sjálfsbjargarviðleitnina og raflýsa sveitirnar fyrst og fremst úr þúsundum bæjarlækja og leggja áherslu á að efla sjálfsbjargarviðleitni í rafmagnsmálinu. Aftur á móti á að slá á atvinnuleit illa mentaðra spekúlanta, sem leggja út í fyrirtæki eins og Skeiðaáveituna, til óbætanlegs tjóns fyrir land og lýð.