09.04.1929
Efri deild: 40. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)

43. mál, raforkuveitur utan kaupstaða

Erlingur Friðjónsson:

Áður en máli þessu verður vísað til stjórnarinnar, vil jeg láta fylgja því nokkur orð.

Það er kunnugt, að nokkrir kaupstaðir landsins, auk höfuðborgarinnar, eru þegar búnir að leiða til sín rafmagn til ljósa og lítilsháttar til iðju og suðu. Þessir kaupstaðir, sem þegar eru búnir að taka rafmagnið í þjónustu sína, hafa á undanförnum árum verið að velta því fyrir sjer, hvort þeir eigi að leggja í meiri framkvæmdir eða ekki á þessu sviði. Og það hefir komið fram, að sá bærinn, sem besta aðstöðu hefir til ódýrrar rafvirkjunar, Reykjavík, er tregur til þess að leggja meira fje í rafveitur en gert hefir verið. Af þessu mætti álykta það, að þeir, sem hafa reynsluna á þessu sviði, sjeu ekki ánægðir með árangurinn, og að rafmagnsnotkunin sje ekki eins glæsileg og sumir vilja halda fram. Jeg verð að segja það, fyrir þá reynslu, er jeg hefi haft í þessu máli, að jeg er ekki eins mikill loftkastalamaður og ýmsir aðrir hv. þingmenn.

Reykjavíkurbæ vex í augum að leggja fram 8 milj. kr. til rafvirkjunar, og má þá gera ráð fyrir, að aðrir kaupstaðir landsins leggi trauðla meira fje í rafvirkjun en ½–1½ miljón hver, eftir stærð kaupstaðanna.

Að þessu athuguðu vil jeg ganga út frá því, að kaupstaðir landsins, að fráteknum Vestmannaeyjum, muni samanlagt trauðla leggja meira fram til rafvirkjunar en 12 milj. kr. — Byggi jeg þetta á þeirri reynslu, sem fengist hefir hjer á landi í þessum efnum.

Ef gert er ráð fyrir, að kaupstaðirnir legðu fram ca. 12 milj. kr. til rafvirkjunar, — en þar býr hjer um bil 1/3 hluti þjóðarinnar, þá myndi rafvirkjun handa sveitum og sjávarþorpum nema um 60 milj. kr., eftir þeirri áætlun, sem hjer liggur fyrir, um kostnað við að rafvirkja alt landið, og þó er ekki gert ráð fyrir meiru en 300 vöttum af rafmagni á hvern íbúa.

Þetta er í mínum augum mjög dýrt fyrir þá notendur, sem búa utan kaupstaða, t. d. getur Reykjavík fengið helmingi meira af rafmagni fyrir hvern íbúa en gert er ráð fyrir í þessu frv., og þó fyrir lægra verð en þar er áætlað.

Þetta er eðlilegt, því að kostnaðurinn við að fá rafmagn fer mikið eftir því, hvort bygðin er strjál, sem rafmagnið er leitt um, eða aðeins er leitt á milli húsa í þjettbygðum kaupstað.

Ef við drögum frá öll kauptúnin, og ætlunin væri sú, að leiða rafmagn inn á hvert heimili í sveitum landsins, telst mjer svo til, að sá kostnaður, er af því myndi leiða, yrði um 40 milj. kr., en í sveitunum býr 1/3 hluti þjóðarinnar.

Hefi jeg þá komist að raun um, að hvert kw. kostaði alt að 4000 kr. Árlegur kostnaður fyrir hvert býli með 5 manna fjölskyldu, sem fengi 1½ kw., gæti þannig orðið 800–900 kr., þegar reiknað er með 15% af stofnkostnaði. Mjer finst þetta ekki glæsilegt, því að mjer er nokkuð kunnugt, hve mikið er hægt að gera með 1½ kw. rafmagns. En nú vil jeg spyrja: Er það hugmyndin fyrir flutningsmönnum frv., að menn sjeu sjálfráðir um að kaupa rafmagnið, eða á að skylda þá til þess?

Ef á að skylda menn til þess að kaupa rafmagnið og greiða hlutfallslegan kostnað af rekstri þessarar allsherjar rafmagnsstöðvar, fer þetta að verða ófrjálslegra en svo, að jeg geti verið fús á að ganga inn á þá braut.

Fylgi hinsvegar engin skylda um kaup á rafmagninu, er hætt við því, að margur bóndinn muni láta rafmagnið fara fram hjá koti sínu. En það breytir áætluninni allóþægilega, ef annarhvor eða þriðji hver bóndi vill ekki nota rafmagnið.

Með þessum orðum get jeg verið með að vísa frv. til hæstv. stj. Vænti jeg þess, að hæstv. stjórn skorti ekki þá gœtni, er hafa verður um mál þetta, svo að ekki verði rasað um ráð fram í málinu.

En því miður geri jeg ekki ráð fyrir, að sú gullöld sje rjett fram undan okkur, að rafmagn verði leitt inn á hvert sveitaheimili í landinu, fyrir það verð, sem tiltækilegt er að greiða fyrir það.