20.04.1929
Neðri deild: 50. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í C-deild Alþingistíðinda. (2645)

42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Hv. frsm. minni hl. er búinn að tæma deildina, og er varla ómaksins vert að svara honum, meðan við erum tveir einir, en jeg verð þó að gera það með nokkrum orðum. Meiri hl. ræðu hans var að vísu svo vaxinn, að óþarft er við hann að kljást, og það því fremur sem þessi hv. þm. fylgdi frv., eins og það liggur fyrir nú, athugasemdalaust á síðasta þingi. Hann skrifaði að vísu undir þá með fyrirvara og kvartaði yfir því, að óheppilegt væri að fella sjóveðin niður, en gerði þó engan ágreining um það efni. Nú get jeg að sjálfsögðu ekki ásakað þennan hv. þm. fyrir að hafa skoðanaskifti; hann hefir rjett til þess, ef honum þykir sem hann hafi fengið æðri og betri þekkingu.

Hv. frsm. minni hl. var að reyna að skopast að því, að í nál. meiri hl. væru leiddar saman tvær ólíkar stefnur, sem fram hefðu komið í þessu máli. Jeg tel það nú fremur þroskamerki en afturfarar, er menn geta komið sjer saman um mikilvægt mál og láta ekki smámunina verða til fyrirstöðu samkomulagi.

Hv. þm. taldi, að meiri hl. n. hefði átt mjög erfitt með að koma sjer saman um ákvörðun. Þetta er fjarstæða. Öll málamiðlun gekk friðsamlega og þrautalaust, og frv., eins og það er skýrt af mjer og hv. þm. Vestm., er ljós vottur þess, að ekki hefir mikið borið á milli.

Hv. frsm. minni hl. lagði áherslu á það, að það yrði að stíga sporið fult og koma upp stofnun, sem fullnægði þörfum sjávarútvegsins, og að Fiskiveiðasjóðurinn yrði að geta tekið að sjer allan rekstur smá- og stórútvegsins. Jeg vil nú spyrja: Er ekki betra, úr því að við höfum nú ekki fjármunalega getu til að koma slíkri stofnun á fót, að stíga eitt spor í áttina heldur en ekkert og fresta enn um óákveðinn tíma að gera nokkuð í þessu máli? Jeg kannast við það, að Fiskiveiðasjóðurinn er nú ómáttugur þess að hjálpa bátaútveginum svo að gagni komi. En af því leiðir einmitt það, að hann verður að efla nú þegar, til þess að hann geti orðið að liði, þótt ekki fylli hann allra þörf. Og hvað er því til fyrirstöðu, að hann verði styrktur meira síðar, þegar efni leyfa og reynslan sker betur úr um þörf. Það er rjett, að rekstrarlánadeildin er svo smávaxin, eftir till. n., að bersýnilegt er, að þurfa muni að efla hana síðar meir mikið. En með hliðsjón af því, að jafnhliða þessu er gert ráð fyrir að lögfesta Búnaðarbanka, og lánsfjelög í sambandi við hann, virðist mega ætla, að hjer verði að mun bætt úr skák fyrir þeim, sem mest hafa farið á mis við stuðning lánstrausts.

Hv. frsm. minni hl. taldi óviturlegt að binda lánveitingar við ákveðna stærð skipa, eins og gert væri í till. meiri hl. Þarna er hv. frsm. kominn í baksegl við sjálfan sig, því að í fyrra vildi hann þessa takmörkun, og hún er því sjálfsagðari, sem minna er fjármagnið til lána.

Um sjóveðin og afnám þeirra hefi jeg talað áður, og sje því ekki ástæðu til að fara frekar út í það, en vitna til þess, sem jeg áður hefi sagt um það efni. Jeg vil þó benda á það, að í nefndinni, sem athugaði þetta atriði 1927, var einn lögfræðingur, skrifstofustjórinn í atvinnumálaráðuneytinu, og hann lagði til, eins og hinir nefndarmennirnir, að sjóveðin yrðu feld niður, eða færð aftur fyrir veðrjett sjóðsins. Jeg vil líka benda á það, að í nál. þeirrar n. er þess getið, að svipað fyrirkomulag sje á Þýskalandi. Þar er fiskiveiðastofnun starfrækt í sambandi við landbúnaðarráðuneytið, og bátarnir veðhæfir. Það stendur ekki í þessu nál., eins og hv. frsm. minni hl. sagði, að bátarnir sjeu undanþegnir sjóveði, því að þá væru þeir ekki veðhæfir. Hjer er því ekki eindæmi um að ræða. Okkur í meiri hl. sjútvn. hefir aldrei til hugar komið, að fella ætti sjóveðin alment niður. Ákvæði frv. ná aðeins til þeirra báta, sem lán fá úr sjóðnum, og snerta ekki aðrar fleytur.

Hv. frsm. minni hl. fanst jeg hafa farið óvirðingarorðum um hina vinnandi stjett í landinu. Hafi nokkru sinni verið snúið út úr, þá gerði hann það með þessu. Jeg sagði, að skortur á þeim stuðningi, sem þessum sjóði væri sjerstaklega ætlað að veita, hefði oft orðið til þess, að útvegsmenn hefðu orðið að hafa kaupmenn að milliliðum, bæði um stofnfjár og rekstrarlán, og því að sæta verri kjörum en ella, og stundum neyðarkjörum, en að afleiðingin hefði ósjaldan orðið sú, að þeir hefðu gefist upp á sjálfsbjargarviðleitninni og horfið inn í fylkingar þess öreigalýðs, sem til lítils þrifnaðar hefði orðið í þjóðfjelaginu. Með vinnulýð á jeg við bændur, búalið og starfandi menn, en þá menn tel jeg kjarna þjóðarinnar. Öreigalýður er aftur samsafn óreiðu- og óreglumanna í fjölmenni bæjanna. Og held jeg að hv. þm. verði að játa það í hjarta sínu, ef ekki opinskátt, að skríll stórborganna sje ekki til þrifnaðar í neinu þjóðfjelagi. Um það þýðir ekki að þrátta.

Hv. frsm. minni hl. gerði mjer þann greiða að minnast á brtt. 347, sem mjer hafði sjest yfir í minni fyrri ræðu. Meiri hl. sjútvn. hefir, sem sagt, að gefnu tilefni, borið fram þessa brtt. við 8. gr. frv., eins og það liggur fyrir á þskj. 248. Bankaráð Landsbankans hafði sem sje kvartað yfir því, að meiri hl. lagði það til, og leggur til í frv. á þskj. 248, að stjórn sjóðsins skuli falin Landsbankanum. Færðist bankaráðið undan að taka við stjórn sjóðsins og kvað það tæpast sameinanlegt við önnur störf, sem bankinn hefði á hendi. Út af því hefir svo meiri hl. n. borið fram brtt. á þskj. 347 um það, að atvinnumálaráðuneytið hafi á hendi stjórn sjóðsins fyrst um sinn, en síðar verði hún falin Búnaðarbanka Íslands, þegar hann tekur til starfa. Undanfarið hefir stjórn Fiskiveiðasjóðs verið undir atvinnumálaráðuneytinu, og er því ekki annað eðlilegra fyrst í stað, meðan ekki er önnur stofnun tiltæk, en að hún verði þar áfram, ef þetta verður að lögum. En hinsvegar virðist ekki eiga illa við, að Búnaðarbankinn hafi þetta á hendi, þegar hann er tekinn til starfa, og að minsta kosti er þá tækifæri til dreifingar fjárins gegnum lánafjelög þau, sem gert er ráð fyrir að standi í sambandi við þann banka. Þessi tilhögun á stjórn bankans, á meðan hann ekki tekur algerlega stakkaskiftum, virðist líka að því leyti heppileg, að hún verður þá samferða þeirri útlánastarfsemi fyrir útveginn, sem hægt er að tengja öðrum þræði við landbúnaðinn, eða lýtur að rekstri bænda, þeirra, sem hvorttveggja stunda, landbúnað og fiskiveiðar. Sömuleiðis er þetta fyrirkomulag öldungis í samræmi við þá tilhögun, sem verið hefir á þessu hjá Þjóðverjum, eftir því sem milliþinganefndin hefir skýrt frá í áliti sínu, að stjórn fiskiveiðasjóðs Þjóðverja hefir verið lögð undir landbúnaðarráðuneytið þar.

Jeg ætla ekki að elta meira ólar við hv. frsm. minni hl. út af þessu og tel ekki, að það geti leitt til neinna frekari skýringa á málinu, hvort þrætt er um það lengur eða skemur, og því síður ástæða til að ræða það lengi eða mikið, þegar svo örfáir menn eru viðstaddir.