23.04.1929
Neðri deild: 52. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 665 í C-deild Alþingistíðinda. (2651)

42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands

Ólafur Thors:

Jeg skal ekki lengja mikið umræður um þetta mál, enda eru öll höfuðatriði þess þegar fram komin. Jeg kveð mjer hljóðs eingöngu til þess að lýsa yfir því, að undirskrift mína undir nál. meiri hl. má eigi skilja svo, að jeg sje fullkomlega ánægður með till. hans. Frv. Íhaldsmanna á þskj. 43 þótti mjer síst ganga of langt, en þó hefir nú verið mjög úr því dregið. Jeg hefi skrifað undir nefndarálitið til að binda enda á þá togstreitu um Fiskiveiðasjóðinn, sem átt hefir sjer stað hjer í deildinni um langan tíma. Þing eftir þing hefir þessu máli verið hreyft, og þing eftir þing hefir það verið óútkljáð. Þó að jeg uni því illa, sem nú á að gera, uni jeg hinu þó ver, að ekkert sje gert. Jeg álít, að þær ráðstafanir, sem meiri hl. nefndarinnar vill gera, komi að nokkrum notum, og jeg vænti, að þess verði ekki langt að bíða, að þær komi að talsverðum notum sem grundvöllur undir lánsstofnun fyrir smábátaútveginn.

Í stuttu máli: Jeg vil binda enda á þá tilgangslausu deilu, sem átt hefir sjer stað um þetta mál. Það verður gert með því að lögfesta það frv., sem nú liggur fyrir. Þeir, sem vilja efla sjávarútveginn, eiga þá opna leið til að stækka sjóðinn með tíð og tíma.

Jeg gat þess, að jeg myndi eigi blanda mjer í almennar umr. um þetta mál. Þó geri jeg eina undantekningu. Það hefir verið látið í veðri vaka, að nefndin vildi afnema sjóveð skipshafna. Það hefir verið talað rjett eins og öll sjóveð sjómanna á íslenskum skipum væru afnumin. (SÁÓ: Það sagði jeg aldrei). Hv. 4. þm. Reykv. sagði það ekki, en það kom greinilega fram í ræðu hv. 2. þm. Reykv. En hjer er ekki um annað eða verra að ræða en það, að færa veðrjett skipshafnarinnar aftur fyrir veðrjett sjóðsins í þeim skipum, sem hann lánar til. Nú má ekki lána úr sjóðnum nema helming skipsverðs, og ætti því ekki að vera nein veruleg hætta á ferðum fyrir skipshöfnina.

Á það hefir verið bent, að mótorbátar sjeu, eins og nú standa sakir, alveg óveðhæfir. Engin lánsstofnun vill nú veita lán gegn veði í slíkum skipum. Með því að gera þessa breytingu á sjóveðunum, fæst aukið fjármagn til smábátaútgerðarinnar. Aukið fjármagn skapar aukna atvinnu og hærra kaup, og það er sú bjarta hlið þessa máls, sem að sjómönnunum snýr. Jeg get hinsvegar sagt það, að jeg myndi vera því hliðhollur, að sett yrði einhverskonar löggjöf til frekari tryggingar á kaupi sjómanna. Nýlega setti Alþingi lög til tryggingar kaupi verkamanna í landi. Ef til vill er erfiðara að koma slíkum tryggingum við viðvíkjandi kaupi sjómanna, en þó hygg jeg, að finna megi ráð til þess, og beini þeirri ósk til hv. minni hl., að hann beri fram frv. um það.