23.04.1929
Neðri deild: 52. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í C-deild Alþingistíðinda. (2654)
42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands
Haraldur Guðmundsson:
Eftir ræðu hv. þm. Vestm. hefði jeg nokkra tilhneigingu til að tala við hann um sjóveð. Þessi hv. þm. mælti nú fagurt, og ljest vilja vera með því, að tryggja sjómönnum kaup sitt. — En till. hans benda í aðra átt. Með þeim vill hann draga úr tryggingu þeirri, sem sjómenn hafa nú fyrir skilvísri greiðslu á kaupi sínu. Hann þykist vilja tryggja hvorttveggja: kaupið og veðgildi skipanna fyrir Fiskiveiðasjóðinn, en telur þó, að sjóveðrjettur sjómanna verði að víkja fyrir þörf lánsstofnunarinnar. Vill hann því vinna það til, að skerða þá tryggingu sem í sjóveðinu felst fyrir sjómennina. Og hjer mun meira á eftir fara, því að rök hans öll með því að færa veðrjett Fiskiveiðasjóðsins fram fyrir sjóveðið, hníga og að því, að hið sama verði gert gagnvart öðrum lánsstofnunum, sem lána út á skip. Jeg vil nú benda hv. þm. á það, hve ólíka aðstöðu lánsstofnun hefir til þess að fá sitt uppborið, eða sjómennirnir, sem á skipunum vinna til að ná kaupi sínu. Þegar Fiskiveiðasjóður hefir lánað út á 50% af verðmæti skips gegn 1. veðrjetti og sjómennirnir verða að láta selja skipið, til þess að fá kaup sitt, þá er erfitt fyrir þá að tryggja sinn hag, því þótt þeir vildu bjóða í skipið, til þess að fá sitt uppborið, þá hafa þeir oft og einatt engin efni á því að kaupa skipið, og gætu ekki sett nauðsynlegar tryggingar fyrir greiðslu kaupverðsins. Gætu þeir því venjulega engin not haft af sjóveðrjettinum, þegar svo mikið væri komið á undan honum. Hann yrði þeim oft einskis virði með öllu. Sjóðurinn aftur á móti gæti hæglega keypt skipið og þyrfti engu að tapa, þótt sjóveð gengi fyrir, því að engar líkur eru til að sjóveðin nemi 50% af verði skipsins. Það er að vísu rjett, að sjóveðið leggur nokkrar kvaðir á veðhæfi skipsins. En með gætnum eiganda og lánveitanda má mjög draga úr þeirri hættu. Það getur vel verið, að það dæmi, sem hv. þm. tók um bátinn, sem eigandinn leigði og þurfti að kaupa út, sje rjett. En það sýnir aðeins, að óvarlegt hefir verið af eiganda bátsins að lána slíkum óreiðumanni hann. Var og eðlilegra og rjettmætara að eigandinn yrði þar fyrir skakkaföllum en sjómenn þeir, er á honum höfðu unnið. Og hvernig eiga sjómenn, sem ráða sig á skip, að vita, hvort þau eru veðsett Fiskiveiðasjóði eða annari lánsstofnun, hvort þeir hafa sjóveð fyrir kaupi sínu eða ekki? Eiga þeir að heimta að sjá veðbókarvottorð áður en þeir ráða sig? Læt jeg svo útrætt um þetta atriði.
Hv. þm. tók það oft fram, 10–20 sinnum að minsta kosti, að hann væri ekki ánægður með frv. og þætti það ganga skemra en hann hefði óskað. En hvernig stendur þá á því, að ef 4 af 5 hv. sjútvn. mönnum vildu meira, að þeir bera fram þetta smásmíði, en ekki frv. um lánsstofnun eins og þeir telja að þörf krefjist og geta leyfi? Er það af því, að þeir sjeu hræddir um að þessi hv. þd. muni ekki vilja fallast á að gera meira? Jeg get varla hugsað mjer það. Jeg held, að þó till. hv. n. væru nokkru rífari, þá yrðu ekki neitt verri undirtektir, heldur þvert á móti. Lögin um Fiskiveiðasjóðinn eru að því er jeg hygg sett 1905, áður en mótorvjelar og togarar voru komnir í notkun hjer. Þau þóttu smásmíði þá. Og nú, 24 árum síðar, á að gera á þeim breytingar, sem að sínu leyti eru langtum smávægilegri en lögin voru í upphafi. Hjer er ekki um kyrstöðu að ræða, heldur beina afturför. Samtímis því, sem veita á 50–60 miljónir; til landbúnaðarins, á að bæta úr rekstrarfjárþörf bátaútvegsins með ½ — hálfri — miljón króna, og til endurnýjunar og viðbótar þessa skipastóls og til iðjuvera í landi 60 þús. kr. á ári í nokkur ár. Smátt er skamtað og ójafnt mjög. — Það eru bein ósannindi, að jeg hafi sagt rangt frá um þetta mál í fyrri ræðu minni. Jeg sagði áður og segi enn nákvæmlega rjett um það, hvað sjóðurinn á að aukast samkv. till. hv. sjútvn. Að jeg nefndi eigi tekjur sjóðsins af núverandi eignum sínum, stafar af því, að þær eru á engan hátt till. hv. nefndar að þakka, heldur eldri lögum. Með því getur hún ekki puntað upp á sig, nema ef ætti að þakka henni það, að hún hefir ekki gert till. um að svifta Fiskiveiðasjóðinn þeim eignum, sem honum hafa áskotnast á þessum 25 árum, sem hann hefir starfað. (JJós: Það var samt rangt hjá hv. þm., að einn maður gæti fengið 60 þús. að láni úr sjóðnum!) Nei, það er ekki rangt. Hv. þm. (JJós) ætti að vita, hvað í frv. stendur. Hámark á lánum til bátakaupa er 25 þús. kr. og til iðnreksturs í sambandi við útgerð 35 þús. kr. Það verður samtals 60 þús. kr. hámark til eins manns. Það er ekkert nema blekking að vera að tala um núverandi tekjur sjóðsins í þessu sambandi, því að þær eru ekki nefndinni að þakka. — Þegar þessi sjóður var stofnaður, var hann eingöngu ætlaður til skipakaupa. Hafa menn þá verið miklu stórhugaðri og sjeð betur þörf þessarar stofnunar en hv. sjútvn. gerir nú. Ef hlutföllin ættu að vera hin sömu nú, þá ættu tillögin að vera margfalt hærri. Hv. frsm. sagði að vísu, að þetta mundi ekki fullnægja þörfinni fyrir lán til bátaútgerðarinnar. Er það mála sannast. — En hvernig á svo að skifta þessu milli manna? — Nú lána bankarnir gegn 7½% vöxtum, en Fiskiveiðasjóðurinn á að lána gegn 6% vöxtum. Hvernig á svo að gera upp á milli lánbeiðenda? — Á eitt hjerað að verða lánanna aðnjótandi, en hin fái svo ekkert? — Þessi upphæð, sem hægt er að lána, er svo hverfandi lítil, að það er í raun og veru ekki nema handa einum eða svo. Hinir verða þá að sætta sig við þau ókjör, sem bankarnir veita. Jeg öfunda sannarlega ekki stjórn sjóðsins, að eiga að skifta þessu.
Þótt það sýnist lítið koma þessu máli við, þá vil jeg þó minna í þessu sambandi á lög um almennan ellistyrk. Takmark þeirra laga var að tryggja gamalmennum áhyggjulausa afkomu á elliárunum. En svo var frá þeim lögum gengið, að enginn hefir orðið að neinu bættari. Þetta dæmi sýnir glögglega þann megingalla, sem er um marga löggjöf hjer. Þótt meiningin virðist góð, þá eru lögin svo úr garði gerð, að um kák eitt verður að ræða. — Hjer er einmitt verið með sama skammar kákið. (ÓTh: Er ekki þessi lánsstofnun til áður? Er verið að skapa hana nú?) — Jú, að vísu, en nú á að umbæta hana, og sú umbót er sem dropi í hafið, hún svarar ekkert til hinnar raunverulegu þarfar, en tefur fyrir fullkomnum umbótum. (ÓTh: Þetta verða þá tveir dropar til samans, sá er munurinn!) Já, þetta eru sannkallaðar dropalækningar, einskisvert kák, til að fróa móðursjúka þingmenn. Alt miklu smátækara en efni standa til. — Þessar kák-lagasetningar tefja aðeins fyrir fyllri framkvæmd málanna, eins og verið hefir með ellistyrkinn. — Þetta er það hættulega í þessu frv., auk niðurfellingar sjóveðsins.
Hv. flm. talaði um, að það sæti lítt á mjer og hv. 4. þm. Reykv., að vera að finna að þessu frv. og gera svo sjálfir engar tillögur um að bæta úr þessari þörf. Þetta er alveg rangt, og hv. þm. veit það ofurvel sjálfur, þótt hann kjósi heldur að segja ósatt. — Hv. 4. landsk. (JBald), samflokksmaður minn og hv. 4. þm. Reykv., hefir í Ed. í samráði við okkur komið fram með frv. um að auka Fiskiveiðasjóðinn um 2 milj. kr. og leggja þær í rekstrarlán til fiskimanna. í því frv. er sú hlið málsins tekin, sem mest kallar að, rekstrarlánahliðin. Smábátaútveginn stunda nú um 7000 menn, og magn aflans nemur 40% af öllum afla landsmanna. Er því hin brýnasta þörf að tryggja þessum mönnum með hagkvæmum lánum að geta fengið fullvirði fyrir afla sinn, í stað þess að selja hann blautan fyrir það, sem kaupmaðurinn skamtar.
Hv. frsm. vill að vísu segja, að þessi útgerð sje ekki rekstrarfjárlaus. Mennirnir geti fengið lán, ýmist beint frá bönkunum, eða þá frá verslunum þeim, er þeir skifta við, samvinnufjelögum eða kaupmönnum. Er það ekki þarna, sem hundurinn er grafinn, sem fiskur liggur undir steini, vildi jeg sagt hafa.
Nú er fjöldinn af bátaútgerðarmönnum upp á náð og miskunn kaupmanna kominn. Bankarnir eru þeim yfirleitt lokaðir, en standa kaupmönnum opnir. Kaupmenn lána þeim útgerðarvörur og vörur til heimilisþarfa, en taka svo aflann upp í skuldina. Á því leikur ekki vafi, að þorri |bátaútgerðarmanna er bundinn á skuldaklafa kaupmanna. Það er fyrst og fremst aðkallandi að losa þá af honum. Að því miðar frv. um veðlánasjóð fiskimanna. En jeg get vel hugsað mjer, að þeir menn, er hugsa svo, að forsjá þessara mála sje best komin hjá kaupmönnum, telji litla þörf á slíkri stofnun, og þess vegna vilji þeir gera Fiskiveiðasjóðinn gagnslausan með öllu, eins og frv. meiri hl. sjútvn. ber með sjer. Þeir vilja halda sjómönnum á skuldaklafanum.