10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í C-deild Alþingistíðinda. (2663)
42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands
Frsm. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Jeg hefi leyft mjer að bera fram nokkrar brtt. á þskj. 585. Sú fyrsta er á þá leið, að orðin: „alt að 50 rúmlesta“ falli niður. — Jeg gerði grein fyrir því við 2. umr., að jeg álít óheppilegt að ákveða þetta með lögum, heldur finst mjer þetta eiga að vera á valdi stjórnar sjóðsins. — Þá er 2. brtt. við 4. gr. b, um að aftan við liðinn komi: „íshúsa og kælihúsa“.
Það er eftir frv., að mjer finst, dálítið óljóst, hvað telja má til „iðju-vera“. Nú hefir milliþinganefndin frá 1927 talið rjett að styrkja smærri íshús til að geyma beitu. Það er kunnugt, að það er tilfinnanlegur skortur á geymslum fyrir beitu í smærri verstöðvum og jafnvel hinum stærri einnig, og jeg álít einmitt, að sjóðurinn ætti að stuðla að því, að koma þeim upp. Því ekkert háir útveginum meira nú en einmitt beituekla og dýr beita, sem stafar af vöntun á frysti- og geymsluhúsum.
Þá er loks 3. brtt. við 6. gr., um að orðin: „þar á meðal hverskonar sjóveðrjetti“, falli niður, og er nú komið að aðaldeiluatriðinu. Jeg hygg, að greinina megi skilja svo, að sjóveðrjetturinn standi óbreyttur sem 1. krafa á undan veði Fiskiveiðasjóðs, ef þetta verður felt niður. Þetta ákvæði, sem hjer er um að ræða, hygg jeg að ekki geti samrýmst við núgildandi lög um sjóveðrjett, og vil jeg vænta þess, að þessi till. mín verði samþ. Jeg hefi áður gert skýra grein fyrir ástæðum hennar.
Jeg skal taka það fram, að jeg er mjög óánægður með þá afgreiðslu málsins, sem út lítur fyrir að það fái hjer í hv. deild, en vildi þó koma að smá leiðrjettingum, sem jeg tel óumflýjanlegt að sjeu gerðar um leið og það fer út úr deildinni. Það er nógu mikill gallagripur fyrir því.
Viðvíkjandi till. meiri hl. skal jeg taka það fram, að jeg tel alls ekki heppilegt nje heldur eðlilegt að fela Búnaðarbankanum stjórn sjóðsins. Jeg tel miklu heppilegra að fela stjórn Landsbankans stjórn Fiskiveiðasjóðsins. Bankastjórar Landsbankans eru miklu kunnugri sjávarútveginum yfirleitt og hafa líka betri aðstöðu til að vera það en hin væntanlega stjórn Búnaðarbankans, sem eðlilega verður valin með tilliti til þekkingar á landbúnaði sjerstaklega. Jeg hefði því fyrir mitt leyti helst kosið, að stjórn Landsbankans yrði falin stjórn sjóðsins, enda þótt mjer sje kunnugt um að henni mun mjög óljúft að bæta þeim störfum á sig.