10.05.1929
Neðri deild: 65. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í C-deild Alþingistíðinda. (2666)
42. mál, Fiskiveiðasjóður Íslands
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Jeg nenni ekki að svara hjer olnbogaskotum, en vil aðeins segja það út af fullyrðingum hv. þm. (SÁÓ) um, að hlutamenn hafi stundum ekki að öðru að hverfa en sjóveðum, að ef útgerðarmaður rænir eða stelur hlut háseta síns, þá á hlutamaður aðgang að gripdeildarmanni, en alls ekki að sjóveði, og sjóveðrjettur til tryggingar kaupgreiðslu á ekkert skylt við þann skaðabótarjett, sem til verður út af óheimildartaki.
Jeg vil ekki tefja málið með óþarfri málalengingu, en á móti 2. brtt. hv. þm. hafði jeg ekki annað en það, að jeg tel að hún sje óþörf. Í greininni felst óbreyttri, eins og jeg áður gat um, allur sami rjettur til að lána fje sjóðsins til frystihúsbyggingu, sem fengist getur með brtt. Jeg skal hinsvegar játa, að greinin spillist ekkert við það, þó brtt. sje samþ. Hún er óþörf en meinlaus, og get jeg því látið hana hlutlausa.