02.04.1929
Efri deild: 34. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (268)
10. mál, útfutningsgjald af síld o.fl.
Ingvar Pálmason:
Jeg flyt hjer brtt. á þskj. 223, sem er að eðli til shlj. þeirri brtt., er jeg flutti við 2. umr. þessa máls; jeg hefi aðeins breytt forminu lítilsháttar.
Um ástæðuna til þess, að jeg flyt þessa brtt., gat jeg þegar við 2. umr., en hún er sú, að mjer finst tollur af söltunarsíld óeðlilega hár eftir frv., borið saman við toll af þeim afurðum, sem úr síldinni fást með bræðslu. Þessu vildi jeg kippa til samræmis. Þó fer jeg ekki fram á mikla hækkun, og aðalhækkunin er á tolli af síldarmjöli, fiskmjöli og fóðurkökum, en sá tollur hækkar eftir mínum till. úr 1. kr. upp í 2 kr. á hver 100 kg.
Eins og allir vita og í frv. stj. stendur, þá er kr. 1,50 tollur af hverri saltsíldartunnu.. Sje þetta borið saman við tollinn á bræðslusíldinni, kemur það fram, að hann er miklu lægri. Jeg hygg, að það fáist hjer um bil 16 kg. af mjöli úr hverjum 100 kg. hrásíldar, og eftir núgildandi l. nemur tollurinn af því 16 aurum. Auk mjölsins fæst svo lýsi úr síldinni, sem einnig er tollað. Jeg vil ekki staðhæfa neitt um það, hversu mikið lýsismagn fæst úr 100 kg. af hrásíld, en áætla, að það sje í kringum 18 kg. Þá nemur tollurinn af hverri hrásíldartunnu, þegar búið er að breyta henni í þessar vörutegundir með bræðslu, ekki nema 30–40 aurum. Nú eru 100 kg. af ferskri síld í hverri saltsíldartunnu, eða ekki öllu minna, en tollurinn nemur 1,50 kr., eins og jeg hefi áður tekið fram. Það sjá því allir, að hjer er um feiknamismun að ræða. En ef til vill kann nú einhver að segja, að þetta tvent sje ekki sambærilegt, vegna þess hve mikill kostnaður sje við það að breyta síldinni í þessar vörutegundir. Sjálfur skal jeg ekkert um það segja, því að jeg er ekki fróður, svo að nægi, í því efni. En jeg hygg, að hjer sje ekki um mjög mikinn kostnaðarmismun að ræða. Það er að minsta kosti víst, að reikni maður söluverð saltsíldar 30 kr. brúttó, er óhætt að gera ráð fyrir, að kostnaður við hverja tunnu nemi alt að 2/3 þess verðs. Það er því um mikið ósamræmi að ræða á milli þessara tollákvæða. Og þó að þessi hækkun fáist fram, sem jeg legg til, og þó að lýsistollurinn verði einnig hækkaður. samsvarar það samt ekki meiri tolli en 70–80 aurum af hverri saltsíldartunnu. Jeg býst nú við því, að mjer verði svarað því, að hjer sje hægast um vik að lækka tollinn á saltsíldinni. En þetta ósamræmi lagast ekki við það. Þó að tollurinn af hverri saltsíldartunnu verði lækkaður niður í 70 aura, verður hann samt tiltölulega miklu hærri en af bræðslusíldinni.
Hin aðalbreyt., sem jeg legg til, að gerð verði, er sú, að tollur af fiskúrgangi, hausum og beinum verði hækkaður um helming, eða úr 50 aurum upp í 1 kr. — Ástæðan til þess er sú, að það hefir komið í ljós, að það er óeðlileg samkepni um þessi hráefni. Á síðasta sumri urðu íslenskar mölunarverksmiðjur að kaupa þau við svo háu verði, að þær gátu ekki staðist það. En jeg tel rjett að hlynna að því, að þessi hráefni sjeu unnin í landinu sjálfu, og þó að þessi tollhækkun sje ekki mikil, ætti hún þó altaf að stuðla að því, að innlendar myllur gætu frekar kept við þær útlendu, sem þurfa að kaupa þessi hráefni hjer og flytja svo út.
Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, þar eð þessar brtt. hafa áður verið ræddar hjer í d., og jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. sje ljóst, hver áhrif þær hafa. Jeg vil þó geta þess, að á þinginu í fyrra voru samþ. hjer svipaðar brtt. með nokkrum atkvæðamun, en þær döguðu uppi í Nd., eins og menn muna.