06.04.1929
Neðri deild: 38. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í C-deild Alþingistíðinda. (2706)

1. mál, lánsfélög

Halldór Stefánsson:

Það var út af ræðu hv. 2. þm. Skagf. (JS), að jeg vildi benda á, að hann virðist ekki hafa kynt sjer brtt. mínar ítarlega, er hann segir, að engar reglur eða rammi sje um það, hvernig bústofnslánafjelögunum skuli fyrir komið.

Hann virðist ekki hafa tekið eftir brtt. minni við 4. gr., sem setur sömu reglur um stofnun bústofnslánafjelaga og gert er ráð fyrir að gilda skuli um rekstrarlánafjelög. Bústofnslánafjelögin eru því jafn rammalaus eins og rekstrarlánafjelögin, eða þá jafnvel römmuð, hvernig sem hann annars vill orða það.