20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í C-deild Alþingistíðinda. (2729)
20. mál, atvinna við siglingar
Pjetur Ottesen:
Enda þótt þetta frv. kunni að eiga upptök sín hjá Fiskifjelaginu, verður ekki annað sagt, en að þar andi kalt til bátaútgerðarinnar. Það á að gera það að skyldu hjer eftir, að hafa stýrimann á hverjum bát, sem er 12 smálestir eða þar yfir. Í gildandi lögum er ekki skylt að hafa stýrimann á minni skipum en 20 smálesta, og að hið sama gildi um 30 smálesta skip, ef þau koma að landi daglega. Það er því ekki um litla breytingu að ræða, ef það á að vera ófrávíkjanleg skylda, að hafa stýrimann á öllum bátum, sem eru 12 smálestir og þar yfir. Það er fært fram sem ástæða, að með núgildandi ákvæðum um þetta efni sje skipstjóraefnum gert ókleift að fá skipstjóraskírteini, með því að skylda þá til þess að hafa verið stýrimenn í minst 8 mánuði. Þessi ákvæði hafa valdið þeim örðugleikum, sem leiddu til þess, að stjórnin hefir orðið að veita undanþágu frá lögunum.
Jeg minnist þess, að fyrverandi stjórn fjekk töluvert aðkast fyrir að hafa orðið við tilmælum bátaeigenda um veiting á undanþágum frá þessum lögum. Mjer er ekki kunnugt um, hvort núverandi stj. hefir veitt nokkrar undanþágur, en svo mikið er víst, að hún hefir orðið vör við, að þetta veldur allmiklum óþægindum. Jeg skal fúslega viðurkenna það, að ekki er hyggilegt að láta sitja við það, sem er, í þessu efni, en jeg lít svo á, að eðlilegra væri að leysa þessi vandkvæði á annan hátt, t. d. með því að draga úr eða fella jafnvel alveg niður ákvæði um, að þeir einir geti fengið skipstjóraskýrteini, er verið hafa stýrimenn minst 8 mánuði á skipi eigi undir 12 rúmlestir. Þó að það verði gert, fæ jeg ekki sjeð, að það skerði það öryggi, sem vera verður. Hins vegar verður ekki á móti því borið, að hjer er verið að leggja kvaðir á bátaeigendur, kvaðir, sein talsverðu nema, og er því undarlegt að sjá það frá stjórn Fiskifjelagsins, að þessum stýrimönnum mundi ekki verða greidd svo há aukaþóknun, að það dragi útgerðina neitt verulega, — eins og segir í greinargerð hennar fyrir frv. En þessi ummæli Fiskifjelagsstjórnarinnar benda til þess, að sú stofnun sje ekki í svo nánu sambandi við bátaútgerðina og nauðsynlegt væri.
Á Akranesi er það aðalreglan, að menn sjeu ráðnir upp á hlut, eða „part“, sem kallað er, og mundu þeir, sem samkvæmt þessari breytingu væru skyldaðir til að hafa stýrimann, samkvæmt þeirri reglu, sem þar er um kaup stýrimanna, verða að greiða honum hálfan hlut fyrir, og þó að þeir gerðu ekkert annað nje meira í raun og veru en að bera stýrimannsnafn. Miðað við það, sem hásetar hafa stundum borið úr býtum yfir vertíðina, þ. e. frá nýári til 11. maí, mundi þetta geta numið fyrir útgerðina um 1000–1500 kr. á bát, og sje það borið saman við afkomu bátaútvegsins yfirleitt, verður með engu móti sagt, að slíkur aukaskattur dragi útgerðina ekki neitt verulega. Þessi þóknun verður vitanlega hlutfallsleg á öðrum tíma árs, en hve miklu þessi aukaskattur mundi nema á hvern bát á ári, er náttúrlega ekki gott að segja, en samkv. því, sem jeg hefi nú bent á, að verða mundi á vertíðinni, miðað við staðhætti á Akranesi, þá er öllum ljóst, að þetta mundi verða allverulegur skattur.
Jeg vil þess vegna leiða athygli hv. sjútvn. að því, að taka til athugunar, hvort ekki sje hægt að leysa þau vandkvæði, sem hjer er um að ræða, á annan heppilegri hátt en þann, að leggja svo háan skatt á útgerðina, sem jeg hefi nú lýst.
Jeg minnist þess, að þegar ákvæðinu um, að ekki þyrfti að hafa stýrimann á minni skipum en 30 rúmlestir, var breytt á þinginu 1925, þannig að ekki þyrfti stýrimann á minni skipum en 20 rúmlestir, að þá þótti þetta ógerningur, nema sú heimild væri við höfð, að þetta næði ekki til þeirra báta, sem kæmu að jafnaði daglega úr róðri, þó að þeir væru alt að 30 rúmlestir. Þetta var samhuga álit þingsins þá, og jeg fæ ekki sjeð, að nein breyting hafi orðið hjer á frá því, sem þá var.