20.02.1929
Neðri deild: 3. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 788 í C-deild Alþingistíðinda. (2731)
20. mál, atvinna við siglingar
Jón Ólafsson:
Mjer þykir hv. þm. Borgf. (PO) taka alvarlega frekt til orða um Fiskifjelagið. Jeg held, að hv. þm. hafi ekki áttað sig almennilega á þessu máli, og þó að einhver kostnaður verði af þessari breytingu, efast jeg mikillega um, að hann verði svo mikill sem hv. þm. vill vera láta. Auk þess er á það að líta, að það getur oft orðið bagalegt, ef þeir efnismenn, sem eru á smærri skipunum, geta ekki þar öðlast rjettindi til að verða stýrimenn á stærri skipum. Það er þetta, sem Fiskifjelagið vill leitast við að kippa í lag með þessu frv. Þetta fyrirkomulag, sem nú er, er alveg óþolandi. Þeir menn, sem eru á smærri skipunum, þó að úrvalsmenn sjeu, verða að fara af þeim og á stærri skipin, og vera á þeim í átta mánuði til þess að öðlast stýrimannsrjettindi, ef útgerðin neyðist þá ekki til að smíða undir þá bát til þess að missa ekki af þeim í annara þjónustu. Ef sú breyting, sem frv. fer fram á, nær fram að ganga, gætu þeir verið á smærri skipunum, þangað til þeim byðist „pláss“ á stærri skipum.