21.03.1929
Neðri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í C-deild Alþingistíðinda. (2739)
31. mál, sjómannalög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Eins og getið er um í grg. þessa frv., þá var hjer í þessari deild í fyrra samþykt áskorun til ríkisstjórnarinnar, um „að láta endurskoða siglingalög nr. 56, frá 30. nóv. 1914, og leggja fyrir næsta þing breytingar á lögunum, er gangi í svipaða átt og sjómannalög þau, er nú gilda á Norðurlöndum“.
Samkvæmt þessari þál. skipaði stjórnin þá Kristján Bergsson, forseta Fiskifjelags Íslands, og Sigurjón Á. Ólafsson, alþingismann, formann Sjómannafjelags Reykjavíkur, til þess að takast þetta starf á hendur, og hafa þeir samið þetta frv. og það, sem hjer er næst á dagskrá. Ennfremur var fenginn þeim til aðstoðar sá lögfræðingur, sem ætla má að beri allra manna best skyn á þessa hluti, en það er Ólafur prófessor Lárusson.
Jeg vil gera ráð fyrir, með því að svo mikil vinna hefir verið lögð í þetta frv., að hjer sje ekki aðeins um miklar, heldur og góðar breytingar að ræða, sem jeg ekki skal gera grein fyrir í einstökum atriðum, því til þess brestur mig þekkingu.
Jeg vil mælast til, að hv. deild láti þetta frv. ganga til þeirrar n., sem að rjettu á um það að fjalla, sem er sjútvn., að þessari umr. lokinni.