21.03.1929
Neðri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í C-deild Alþingistíðinda. (2743)
31. mál, sjómannalög
Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg vil geta þess út af því, er hv. 2. þm. G.-K. sagði, að jeg get ekki í fallist á það, að útgerðarmenn hafi ekki átt fulltrúa í nefndinni, því jeg verð að líta svo á, að forseti Fiskifjelagsins sje fullgildur fulltrúi útgerðarmanna í þessu máli. Annars voru nú þessar aðfinslur hv. þm. ekki fluttar af neinni grimd, heldur munu þær frekar hafa verið fluttar til þess að sýnast.
Mjer skildist svo á orðum hv. þm., að það væri aðallega tvent, er hann vildi ásaka mig fyrir. Annað var það, að frv. þetta hefði verið borið of seint fram. Hitt var það, að það hefði komið of snemma. Þetta virðist nú óneitanlega nokkuð skrítið, en svona var það samt. (ÓTh: Það getur vel samrýmst!). Jeg býst því við, að maður verði að fara þann gullna meðalveg, og draga af þessu þá mjög svo rjettu ályktun, að jeg hafi borið frv. fram á hæfilegum tíma.