21.03.1929
Neðri deild: 28. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 805 í C-deild Alþingistíðinda. (2747)
31. mál, sjómannalög
Pjetur Ottesen:
Jeg ætla ekki að blanda mjer inn í þær umræður, er hjer hafa orðið um þetta mál. Jeg vil aðeins mótmæla þeim orðum, er fjellu áðan hjá hv. 4. þm. Reykv. þar sem hann sagði, að Fiskifjelagið væri fjelag útgerðarmanna. Þetta er alveg rangt. Það er stofnað og starfrækt til þess að vinna fyrir sjávarútveginn í heild sinni, en ekki sjerstaklega fyrir útgerðarmenn.