14.03.1929
Efri deild: 22. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 816 í C-deild Alþingistíðinda. (2765)
6. mál, hveraorka
Jón Þorláksson:
Jeg hefi leyft mjer að bera fram nokkrar brtt. á þskj. 104, til viðbótar brtt. þeim, er hv. allshn. ber fram á þskj. 101, en þeim er jeg samþykkur.
Jeg skal þá víkja nokkuð að brtt. mínum. Sú 1. er við 1. gr„ að orðin „innan þinglýstra takmarka“ falli burt. Það skiftir sennilega ekki miklu máli, hvort þessi brtt. er samþ. eða ekki. En burtfelling þessara orða er til samræmis við vatnalögin. Jeg geri ekki ráð fyrir því, að það sje meiningin að binda þennan umráðarjett aðeins við þær landeignir, sem hafa þinglýst landamerki. En nú er það svo, að ekki er áskilið um allar landeignir, að þær hafi þinglýst landamerki. Þannig er það með lóðir kaupstaða og kauptúna, annara en Reykjavíkur. Þá mun og svo vera um ýmsa almenninga, að þar mun ekki vera um þinglýst landamerki að ræða. En svo hefir einnig komið fyrir, að landamerkjum hefir verið þinglýst, sem þó er ágreiningur um. Og jeg tel ekki rjett, að mönnum sje með þinglýsingu þrætuparta gefinn í lögum þessum rjettur til hagnýtingar hveraorku. Er það eitt rjett, að hverkaorkan fylgi landeign eins og hún verður eftir að ágreiningur er jafnaður. — En jeg skal þó játa, að þetta skiftir ekki miklu máli.
Þá er 2. brtt. á þskj. 104, að úr 1. gr. falli orðið „(jarðhita)“. Er það einnig gert til að samræma þetta frv. vatnalögunum. Þar er viðurkendur rjettur manna til rennandi vatns, eða þess vatns, sem er á yfirborði jarðar, þar með taldir hverir og laugar. En þar er engin skýring um eignarrjett á jarðhita. Ef því þetta orð væri látið standa, þá mætti líta svo á, að verið væri að teygja ákvæði um eignarráð lengra en annars mun vera tilætlunin með þessu frv., þannig að allur sá hiti, sem hægt er að leiða að yfirborði jarðar, sje jafnlögmæt eign landeiganda og hverir og laugar eru nú. Þessi brtt. er og í samræmi við 12.–14. gr. frv., því með brtt. hv. allshn. við 12. gr. er það fyllilega ljóst, að rjettur landeiganda til jarðhita getur horfið yfir til þess, sem borunarleyfi fær. Mjer finst því ekki rjett að gefa það í skyn í 1. gr., að rjettur landeiganda verði meiri en hann áður hefir verið og verður eftir 12.–14. gr. þessa frv.
Um 3. brtt. á þskj. 104 vona jeg að verði enginn ágreiningur. Það er ákveðið í 12. gr. frv., að leyfishafi greiði árlegt gjald í ríkissjóð. Brtt. fer fram á það, að gjald þetta megi falla burt, ef virkjað er til almenningsþarfa eingöngu. Eru samsvarandi ákvæði um þetta í vatnalögum og sjerleyfislögum.
Annars vil jeg aðeins leiða athygli hv. þdm. að því, að í 12. gr. eru notuð 2 orð um framkvæmd á notkun jarðhita, sem jeg tel þó að eigi að merkja hið sama. Í tveim stöðum er talað um „hagnýtingu“ hitans, en í einum stað er talað um „virkjun“ þess jarðhita sem finst. Jeg skil það svo, að þessi orð merki hið sama, að það sje ekki einungis um vinslu hreyfiorku að ræða, heldur og líka bein not hitans, t. d. til upphitunar o. fl.
4. brtt. mín við 14. gr. er bein afleiðing af brtt. hv. allshn.
En svo eru tvær síðustu brtt. á þskj. 104, við 15. og 16. gr. frv. að í stað „til virkjunar“ komi „til orkunýtingar“. Þarna virðist orðið virkjun notað í annari og þrengri merkingu en í 12. gr. í 15. gr. segir: „Til virkjunar jarðhita, sem borað hefir verið fyrir, þarf leyfi ráðherra, ef meira en 500 hestöfl (hreyfiafl) eru, og fara að öllu leyti með sem vatnsafl væri eftir vatnalögum“. Þarna skilst mjer, að leita þurfi leyfis ráðherra í samræmi við vatnalögin og sjerleyfislögin, ef um svo stórfelda orkunýtingu er að ræða. En brtt. mín á að fyrirbyggja það, að þetta gildi, ef vatnið er t. d. leitt í hús til upphitunar, því mjer skilst það ekki vera meiningin með frv. Ef sá skilningur er rjettur, er einnig rjett, að fyrir orðið virkjun komi orðið orkunýting.