19.03.1929
Neðri deild: 26. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 841 í C-deild Alþingistíðinda. (2782)

6. mál, hveraorka

Magnús Guðmundsson:

Tíminn er naumur til þess að skýra málið, en hjer er áreiðanlega um greinilegt hverarán að ræða. Get jeg ekki betur sjeð, en að í 12. gr. sje landeigandi gerður algerlega rjettlaus fyrir bröskurum og landshornalýð, og verð jeg að telja það vægast sagt undarlegt af hæstv. forsrh., að kenna öðrum um þetta, þegar hann á sjálfur sökina. Vil jeg máli mínu til stuðnings benda á, að það, sem hv. 1. þm. Árn. og hv. þm. Mýr. helst fundu að þessu frv., stendur alt í því eins og það var þegar það kom frá hæstv. stjórn.