21.02.1929
Efri deild: 4. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í C-deild Alþingistíðinda. (2793)
21. mál, atkvæðagreiðsla um nafn Ísafjarðarkaupstaðar
Jón Baldvinsson:
Mér finst, að hæstv. stjórn hefði átt að leita álits Ísfirðinga um þetta mál, áður en hún flutti frv. Eins og hæstv. ráðh. tók fram, verður nafninu eigi breytt, nema íbúar kaupstaðarins samþykki með atkvæðagreiðslu. Felli þeir breytinguna, er þessi löggjöf þýðingarlaus.
Jeg þykist vita, að þetta frv. sje af sömu rótum runnið og breytingar þær, sem Norðmenn gerðu á bæja- og borga nöfnum hjá sjer fyrir stuttu síðan. Þeir byrjuðu á höfuðstaðnum og skírðu hann upp. Mér finst eðlilegt, að stjórnin hefði farið eitthvað svipað að, og hefði hún þá átt að bera fram frv., sem hjeti eitthvað á þessa leið: Frv. um að bæta „r“ inn á milli „a“ og „v“ í nafni Reykjavíkur, því sagt er, að til forna hafi bærinn heitið Reykjarvík.
Jeg mun eigi amast við að frv. fari til 2. umr., en læt ósagt um frekara fylgi við það.