05.04.1929
Efri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í C-deild Alþingistíðinda. (2817)
26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Áður en jeg vík að ræðu hv. frsm. minni hl. (JÞ), ætla jeg að segja nokkur orð um málið frá almennu sjónarmiði.
Það, sem hjer er um að ræða, er í stuttu máli þetta: á löggjöfin að skifta sjer af rekstri kvikmyndahúsa eða ekki, því með frv. þessu er gert ráð fyrir, að löggjöfin hafi samskonar eftirlit með kvikmyndahúsum og tíðkast með öðrum siðuðum þjóðum, og svo er hin spurningin: hvort skattur af gróða kvikmyndahúsanna eigi að renna að nokkru leyti til bæjarfjelaganna eða þá ríkissjóðs.
Hv. minni hl. leggur á móti þessu öllu saman í nál. sínu. Hann vill ekkert eftirlit eða aðhald í þessu efni og fullyrðir, að um þetta sje löggjöf, sem allir vita þó, að ekki er til. Meira að segja leyfir hann sjer að margendurtaka, að til sje löggjöf í þessu efni, þó að vitanlegt sje öllum almenningi, að enginn stafur er um þetta í lögum. Það er að vísu ákvæði um þetta í reglugerð, sem bygð er á almennum lögum um skemtanir, en það er sú fjarstæða, sem engu tali tekur að blanda þannig saman reglugerðaratriðum sjerstakra bæjarfjelaga og löggjöf landsins í heild.
Þá er það önnur meinloka hjá hv. minni hl., að við eigum ekki sjálfir að hafa eftirlit með, hvaða myndir skuli sýndar, heldur skulum við hlíta dómi annara þjóða í því efni.
Þetta er vægast sagt móðgun við sjálfstæðismetnað fullvalda ríkis og minnir á leifar þær frá liðnum árum, er við vorum hreppur eða amt í öðru ríki og alt hugsað fyrir okkur þar, en við svo máttlausir, að við urðum að taka við öllu, sem fram við okkur kom, bljúgir og auðmjúkir eins og þrælar.
Þetta er ómögulegt að skilja á annan veg, en að við eigum að treysta betur á eftirlit Dana, Ameríku, eða þá Ástralíu, heldur en okkar eigið eftirlit. Nú er aðgætandi, að mikill munur er á viðhorfi hinna ýmsu þjóða í þessu efni. Sú þjóð, sem býr til mest af kvikmyndum og græðir líka langmest á að sýna þær, það er þjóðin, sem býr til langauðvirðilegustu myndirnar og þær hættulegustu, sem sje Bandaríkjamenn; fjöldinn allur af þeirra kvikmyndum eiga ekkert erindi hingað til lands og eiga ekki heima nema hjá allra lægsta hluta þjóðanna. Aftur á móti eru þjóðir, eins og t. d. Svíar, á hærra menningarstigi en Ameríka, og gífurlegur munur á þeirra kvikmyndum á móts við framleiðsluna vestan hafs. Sú litla framleiðsla Svía í kvikmyndagerð er merkileg, og munu Svíar standa hæst í kvikmyndagerð frá menningarlegu sjónarmiði, enda munu þeirra myndir eiga best við smekk og þroska okkar þjóðar. Mín persónulega skoðun er sú, að við sjeum Svíum líkir og eigum mest sameiginlegt með þeim af Norðurlandaþjóðunum, en af því dreg jeg aftur þá ályktun, að þeirra myndir mundu falla okkur Íslendingum best í geð. En vegna hinnar miklu kvikmyndaframleiðslu í Vesturheimi, verðum við einnig að nota myndir þaðan, jafnframt Norðurlandamyndunum. En sú skoðun er fjarstæða, sem kom fram í ræðu hv. 3. landsk., er hann álítur, að það sje gott og gilt og nægilegt okkur, ef bara einhver þjóð, sama hver hún er, stimplar myndina. Svo auðvirðilegur hugsunarháttar hefir aldrei heyrst síðan við urðum fullvalda ríki eins og kemur fram í ræðu þessa hv. þm.
Þá er það um fjárhagsástandið, eða hagnað kvikmyndahúsanna, sem jeg vildi ræða lítilsháttar við hv. 3. landsk. Vil jeg þá byrja með að segja honum það, að það er nú að koma á daginn, að skýrslur um, hvað einstök fyrirtæki gefa af sjer, eru alls ekki óyggjandi, og hafa sjest þess glögg dæmi við skattaframtölin hjer í bænum. Þess vegna er það ekkert nýtt núna síðustu dagana, að menn leiðrjetti skattaframtal sitt svo hundruðum þúsunda munar frá því, sem áður var gefið upp. Menn kjósa heldur að reyna að skýra sem rjettast frá, vegna þess aðhalds, sem komið er á um skattaframtalið. Menn sjá og reka sig á, að þegar gamla íhalds-sleifarlagið er úr sögunni, þá er ekki lengur um að ræða að svíkjast frá rjettmætum skatti.
Hvað fjárhag kvikmyndahúsanna snertir, þá var helst að skilja á ræðu hv. 3. landsk., að hann væri svo bágborinn, að þau gætu tæplega risið undir þeim sköttum, sem þeim er gert að skyldu að greiða. Nú veit hvert mannsbarn hjer í Reykjavík, að kvikmyndahúsin hafa rakað saman peningum. Þau hafa komið sjer upp vönduðum sýningarhúsum, sem taka fram öllum öðrum samkomuhúsum bæjarins og eigendur þeirra hafa bygt handa sjálfum sjer mjög ríkmannleg hús með öllum nýtísku þægindum. Meira að segja hafa þessir menn bygt margfalt ríkmannlegar yfir sig heldur en hv. 3. landsk. hefir gert, og er hann þó sagður að vera maður vel fjáður. Nei, hv. 3. landsk. þarf ekki að segja okkur, sem betur vitum, að kvikmyndahúsin græði ekki. Það vita allir, að þau eru ekkert annað en gróðafyrirtæki. Embættismaður, sem vann að samning þessa frv. og hefir 15 þús. króna laun, sagði, er hann hafði kynt sjer þetta, að það væri ljóst, þegar borinn væri saman skattur hans og skattur sá, er kvikmyndahúsin greiða, að stórkostlega væri hallað á hann. Kvikmyndahúsin hjer í Reykjavík hafa, eins og kunnugt er, fengið „monopol“ á starfsemi sinni og síðan siglt „billega“ gegnum niðurjöfnunarnefnd Reykjavíkur, — þetta er orðið alment orðtæki hjer í Reykjavík um þá, sem komast ljett út úr útsvörum sínum. — Þegar svo að þar við bætist vitneskjan um, að þessir menn hafa bygt stórar og skrautlegar hallir fyrir starfsemi sína og sjálfa sig, þá þarf kjark til þess af hv. 3. landsk. að halda því fram, að kvikmyndahúsin sjeu fátæk og beri sig ekki fjárhagslega.
Annars væri ekki úr vegi að koma lítillega inn á þennan „monopol“ kvikmyndahúsanna. Borgarstjórinn hefir sagst vera á móti fjölgun kvikmyndahúsa hjer í bæ, vegna þess að þegar Þjóðleikhúsið er komið upp, þá eigi það að fá leyfi til þess að sýna kvikmyndir. Vitanlega dettur engum annað í hug, en að Þjóðleikhúsið sýni einnig kvikmyndir jafnhliða sjónleikastarfsemi sinni. En þegar það er athugað, að borgarstjórinn hjer í Reykjavík hefir gert alt, sem hann hefir getað, til þess að tefja fyrir Þjóðleikhúsinu eða eyðileggja að það kæmist upp, þá fer maður nú að efast um einlægni hans og flokks hans í bæjarstjórninni í þessu máli. Þegar borgarstjórinn og flokkur hans reyna í trássi við alla borgara bæjarins að þumbast á móti því, að Þjóðleikhúsið komist upp, þá má segja öðrum það en mjer, að það sje af umhyggju fyrir Þjóðleikhúsinu, að borgarstjórinn mælir á móti því, að fjölgað sje kvikmyndahúsum í bænum.
Af því að hv. 3. landsk. var með aðdróttanir til mín í sambandi við þetta mál, þá vildi jeg aðeins minna á, að það er almenn trú hjer í bænum, að eigendur kvikmyndahúsanna sjeu stórgjöfulir aðiljar í kosningasjóð Íhaldsmanna. Þó jeg sje nú ekki með íhaldinu, þá vil jeg þó á engan hátt spilla fyrir því í þessu efni, enda mun gróði kvikmyndahúsanna það mikill, að jeg efast ekki um að eigendur þeirra mundu halda áfram að inna af hendi flokkslegar skyldur á heiðarlegan hátt, þótt þeir greiddu til almennra þarfa hæfilega skatta.
Út frá þessum „monopol“ kvikmyndahúsanna vildi jeg segja það, að mjer finst hv. 3. landsk. ekki sjálfum sjer samkvæmur, þegar hann t. d. berst á móti því með hnúum og hnefum, að fækkað sje verslunarbúðum hjer í bæ, eða takmarkaður fjöldi þeirra. Þó að bent sje á með rökum, að það sje öllum hagkvæmara, að verslanimar sjeu færri, þá hamast hann á móti samfærslu þar. En þegar kemur að þessum rekstri, sem er stórgróðafyrirtæki örfárra manna, þá vill hann ekkert annað en „monopol“.
Er þetta alvara fyrir honum? Og er nokkurt vit í því, að láta hvaða strák sem er selja matvöru, en láta sjerstaka menn eða einn hring hafa þessa áhrifamiklu menningarstarfsemi með höndum, og það meira að segja útlending, sem getur flutst úr landi með fullar hendur fjár, þegar hann er búinn að græða nóg?
Með þessu er formaður Íhaldsflokksins að brjóta „princip“ af flokkslegum hagsmunum. Hann og flokkur hans skeytir ekkert um, þó að útlendingar eða erlendir hringar nái hjer undirtökunum í þessari starfsemi og okri á henni. Og þeir skifta sjer heldur ekkert af því, þó að kvikmyndahúsin sjeu afskaplega dýr, miðað við það, sem er í næstu löndum. Kvikmyndahúsin vita líka hvað þau mega bjóða sjer og notfæra sjer það. Þau hugsa sem svo: Það er engin hætta á að kvikmyndahúsum fjölgi, við eigum það góða menn að í bæjarstjórninni, sem standa í ístaðinu okkar vegna, og þess vegna getum við lifað og látið eins og við viljum. Og að þetta sje svona, hefir einmitt styrkst við rðu hv. 3. landsk. og framkomu hans í þessu máli, þar sem komið hefir berlega í ljós, að hann vill fella niður jafn sjálfsögð ákvði og þau, sem þekkjast í öllum menningarlöndum, um fjölgun kvikmyndahúsa og eftirlit með sýningum þeirra.
Út af því sem hv. 3. landsk. sagði um bágborinn hag kvikmyndahúsanna, þá vil jeg athuga dálítið nánar aðstöðu þeirra. Þau eru tvö, kvikmyndahúsin hjer í bæ, og bæði hafa þau komið sjer upp mjög myndarlegum sölum til þess að sýna í myndirnar, svo að vandaðri eða strri samkomusalir þekkjast ekki hjer í bæ. Og þessir salir eru fyltir af fólki kvöld eftir kvöld og sum kvöldin fleiri sýningar á hvorum stað. Svo mikið er aðstreymi fólksins til kvikmyndahúsanna, að sjálf þjóðkirkjan fær ekki nema agnarlítið af þeirri aðsókn.
Og hver er svo kostnaður kvikmyndahúsanna, borinn saman t. d. við leikhúsið? Í Þjóðleikhúsinu er átlaður líkur sætafjöldi og í Gamla Bíó, en sætið örlítið dýrara. Nú vita allir, sem út fyrir pollinn hafa komið, að sæti í kvikmyndahúsum hjer eru dýrari en þekkist t. d. í Englandi eða um Skandinavíu. Hv. 3. landsk. getur ekki á móti þessu borið, en reyni hann það samt, er það ekkert annað en vitleysa og blekkingar.
En hver er svo kostnaðarmunur í rekstri kvikmyndahúsa samanborið við leikhús?
Leikhúsin þurfa að hafa marga leikendur, sem taka há laun, þau þurfa að leggja í mikinn kostnað vegna búninga og margskonar tjalda á leiksviði, þau þurfa að kaupa ýmiskonar aðstoð, rafmagn og margt fleira, sem of langt yrði upp að telja.
Ekkert af þessu þurfa kvikmyndahúsin að kaupa. Þau sleppa með að leigja filmur frá útlöndum, sem þau geta sýnt lengur en nokkur sjónleikur gengur, svo það þarf engan að undra, þó að þau selji sætin örlítið lægra en leikhúsið.
Annars liggur þessi aðstöðumunur svo í augum uppi, að um hann á ekki að þurfa að tala. Annars vegar er það gífurlegur kostnaður, sem starfsemin hefir í för með sjer, en hins vegar er óhemju tekjum rakað saman með tiltölulega litlum kostnaði, og þó ætlar hv. 3. landsk. að telja hv. þdm. trú um, að fjárhagur kvikmyndahúsanna sje bágborinn og að þau geri tplega betur en að komast af.
Annars gti jeg látið Hagstofuna reikna út fyrir 3. umr., hve mikið af peningum fer út úr landinu fyrir filmur, en að svo stöddu er mjer óhætt að segja, að það muni vera ótrúlega lítið.
Þá finst mjer ekki úr vegi, í þessu sambandi, að minna á annað einkaleyfi, sem íhaldið hefir mjög stutt, og það er einkaleyfi um rekstur lyfjabúða. Þegar nú að búið er að sanna, að kvikmyndahúsin hafi fært eigendunum mikinn gróða, þá er hitt ekki síður kunnugt, að lyfjabúðirnar hafa verið drjúg gróðalind þeim mönnum, er þær hafa rekið. Þó hefir kaupið þar altaf verið lágt, þrátt fyrir þann mikla gróða, sem þær rökuðu saman. T. d. hafa menn með fullu lyfsalaprófi ekki fengið nema 300 kr. kaup á mánuði við eina arðsömustu lyfjabúð hjer á landi.
Þó að bent hafi verið á með skynsamlegum rökum, að margfalt fleiri menn gætu lifað á því að stunda þessa atvinnu, hefir íhaldið jafnan staðið á móti því, að fjölgað væri lyfjabúðum. Nú hefir þetta breyst, ekki þó vegna íhlutunar löggjafarvaldsins, heldur er það almenningur, sem knúið hefir það fram. Hjer í Reykjavík eru nú fjórar lyfjabúðir, og þar með komið á daginn, að fleiri menn geta lifað góðu lífi við að stunda þessa atvinnu en áður var. En þó er hitt ekki síður mikils virði og til hagsbóta öllum almenningi, að með fjölgun lyfjabúða og vaxandi samkepni þeirra á milli hefir meðalaverðið lækkað til stórra muna.
Þessa framkvæmd íhaldsins á lyfjabúðaeinkasölunni er ekki hægt að skoða öðru vísi en sem meðhald flokksins með vissum fjárgróðamönnum, og þá sjerstaklega útlendum mönnum, því að fram á síðustu ár eru það aðallega Danir, sem fengið hafa þessi einkaleyfi og horfið úr landi eftir nokkur ár með fullar hendur fjár.
En jeg vonast fastlega eftir því, að með því að veita fleiri Íslendingum leyfi til þess að reka lyfjabúðir, þá verði þessi starfsemi frjáls atvinna í höndum íslenskra manna, og að sú smán hverfi með tímanum, að Íslendingar verði háðir erlendum okurlýð í þessu efni.
Jeg gat ekki gengið fram hjá að minnast á þetta, því að hjer er um hliðstætt dæmi að ræða, um frammistöðu íhaldsins í þessu kvikmyndahúsamáli og um einkaleyfi lyfjabúðanna.
Þá ætla jeg að víkja nokkrum orðum að sjerstökum atriðum, sem komu fram í ræðu hv. 3. landsk.
Hann áleit, að það mundi ótrygt, að því leyti er gæði myndanna snertir, að láta innlenda menn framkvæma skoðunina. Jeg hefi bent á það áður, að það sje hlgilegt að geta ekki treyst Íslendingum eins vel í þessu efni og útlendum mönnum. En ótti hans yfir þessu virtist bygður á því, að einhverjum andstöðuflokki íhaldsins yrði falið eftirlitið.
Sennilega gerir hv. 3. landsk. ráð fyrir því, að flokkar hjer sem annarsstaðar skiftist á um völdin. Með frv. þessu er verið að búa í hendurnar á hvaða stjórn sem er. Og jeg vil vara hv. 3. landsk. við því, að hann getur gert liðsmenn sína of bölsýna, ef það á að vera útilokað, að þeir geti nokkru sinni farið með þetta leyfi. Þá er það ekki bein skylda, að lögreglustjóri skoði myndirnar, en þó er hjer til viðbótar því sem viðgengst erlendis, að lögreglustjóri getur heimtað að fá að sjá myndir áður en þær eru sýndar. En bein skylda er það ekki, og hefir heldur ekki verið framkvæmt, hvorki hjer í Reykjavík eða annarsstaðar á landinu, þar sem kvikmyndahús eru. Enda hafa verið sýndar myndir, sem lögreglustjóri mundi aldrei hafa leyft að sýna, ef hann hefði sjeð þær.
En svo má líka benda á til athugunar í þessu sambandi, að lögreglustjórar eða sýslumenn eru ekkert betur fallnir til þess að framkvæma þessa skoðun heldur en ýmsir aðrir. Í uppeldis- og fræðslumálum eru þeir lítið betur að sjer en gengur og gerist, sem heldur er ekki að vænta, þar sem sjermentun þeirra gengur í aðra átt. Og sem dæmi mætti nefna það, að það er ekki nema einn einasti lögfræðingur, sem orðið hefir kennari við skóla hjer, og þó um stutta stund. Það má ekki ætlast til, að þeir sjeu færir um að dæma um slíkt frá uppeldislegu sjónarmiði, þar eru kennararnir sjálfsagðastir og bestir, enda er sú stjett látin framkvæma myndskoðunina erlendis að miklu eða öllu leyti.
Hv. 3. landsk. telur það nægilegt, að lögreglustjórar geta framkvæmt eftirlitið ef þeir vilja. Jeg er aftur á móti þeirrar skoðunar, að nægileg trygging sje ekki einu sinni fengin, þó að þeim væri skipað að gera þetta, því að þetta starf, myndskoðunin, er svo langt frá þeirra verkahring og óskylt þeirra starfi, að þeir eru ekki eins færir til þess og margir aðrir menn. Hv. sami þm. er ekki ánægður yfir því, að hafa nýstofnuð kvikmyndahús undanþegin skatti. (JÞ: Það er meiri hl., sem er óánægður með það). Til þess að sýna fram á rjettlæti þessarar skattaeftirgjafar ætla jeg að leyfa mjer að lesa upp kafla úr brjefi frá merkum manni norður á Akureyri. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Áður en jeg kem fram með fyrirspurnir mínar vildi jeg þó gera nokkra grein fyrir rekstri þessum hjer á Akureyri. N. N. fjekk hjer sýningarleyfi fyrir mjög löngu síðan. Var hann og fjelagar hans einvaldir um kvikmyndasýningar hjer um langt skeið og alt fram til ársins 1927. Sýndi það sig þá, að einveldi í hverskonar rekstri er ekki heppilegt, því að ekkert var gert til þess að fá góðar myndir, og ekkert til þess að búa almennilega að fólkinu, sem myndirnar sá. Þetta var mjer og nokkrum öðrum ljóst, og rjeðumst við því í það 1927, að setja af stað annað bíó. Kom brátt í ljós, að engin vanþörf var á að láta einvaldsherrana missa einveldið, því að strax eftir að við byrjuðum, fóru þeir að útvega betri myndir og búa sæmilega að fólkinu. Höfum við allan tímann lagt áherslu á að ná í góðar myndir þó dýrari væru, en bæði það og annað gerði það að verkum, að við fengum lítinn gróða í aðra hönd, og við höfum alls enga vexti fengið af peningum okkar þessi ár síðan við byrjuðum.“
Þetta sýnir, að það er nauðsynlegt að nýtt kvikmyndahús á Akureyri fái nokkurn skattaljettir fyrst um sinn, til þess að samkepnin brjóti það ekki alveg á bak aftur. Jeg hafði gaman af að lesa þetta upp til þess að sýna ástandið úti um land í þessum efnum, og svona er það líka hjer hjá okkur og hefir gefist illa. Fólkið í bæjunum vill yfirleitt fá góðar myndir, sem leiða til menningarbóta, og það unir alls ekki við „monopol“. Mín skoðun er sú, að það eigi að vera sem mest frjálsræði á þessu sviði og kvikmyndaleyfi auðfengin, svo að gagnið af samkeppninni fái að njóta sín. Ástandið hér og á Akureyri er alveg óviðunandi. Bæjarbúar búa við dýrari kvikmyndahús og lakari myndir heldur en þeir mundu gera, ef einræðið væri ekki svona mikið og hægt væri að keppa við þau hús, sem nú starfa. Nú eru allir hinir stærri kaupstaðir í uppgangi, að Seyðisfirði undanskildum, svo að þetta verður að teljast hagsmunamál alls landsins en ekki einstöku kaupstaða.
Hjer er um það að ræða, hvort það eigi að halda áfram að láta erlenda bíó-hringa raka saman fje af þessari starfsemi og flýja svo ef til vill með allan auðinn úr landi, og hvort þeir eigi framvegis að hafa einræði um það, hvaða myndir eru sýndar til þess að ala upp ungu kynslóðina og móta hana. Þessar myndir hafa nú hingað til borið misjafnan árangur, eins og ritgerðin, sem hjer var lesin upp áðan, ber með sjer, og er hún eftir einn af allra bestu barnakennurum þessa lands. Af þessum ástæðum tel jeg sjálfsagt að þeir, sem hafa leyfi til kvikmyndasýninga hjer á Íslandi, verði að sætta sig við samskonar eftirlit og aðrar þjóðir hafa með þessari starfsemi. Frv. þetta er í alla staði fullkomlega rjettmætt, og það getur ekki orkað tvímælis, hvað er rjett í siðgæðis- og menningarlegu tilliti. Það snýst alt á sveif með frv., en á móti andstæðingum þess. Það er sjálfsagt að láta ríkissjóð og bæjarsjóði fá tekjur af þessum mjög svo arðsama rekstri, þeir eru vel að því komnir, og umfram alt verður að láta menn fá ódýrari aðgang að sýningunum, og gera sem flestum auðvelt að njóta þeirrar skemtunar, sem þær hafa að bjóða. Þó að aðsókn sje nú mikil að kvikmyndahúsunum hjer, þá er bærinn orðinn svo stór, að það eru ekki nærri allir bæjarbúar, sem sækja sýningarnar. Það er aðallega ungt fólk, sem vinnur fyrir kaupi, efnaðir menn og svo nokkrir kæruleysingjar, sem eru þar tíðustu gestirnir. Þetta er skaði, því að kvikmyndirnar geta og eiga að vera góð og ódýr menningarbót. Er þó ekki svo að skilja, að bíóin sjeu neitt guðsríki hjer á jörðinni, en það er að þeim tilbreytni og skemtun, sem menn hafa gaman af. Er það hart, ef þjóðfjelagið býr svo um, að þessar skemtanir sjeu einungis fyrir þá, sem efnaðir eru eða ljettúðugir, og rekstrinum haldið til gróða fyrir nokkra menn, sem vegna flokks-aðstöðu sinnar hafa fengið sýningarleyfi, og reka svo húsin með því sniði, að þau koma ekki að almennum notum fyrir alla, sem vilja njóta þeirra.
Jeg geri nú ráð fyrir að hv. 3. landsk. geri grein fyrir skoðun sinni á þessu máli og þá einkanlega hvað eftirlitið snertir og rekstur kvikmyndahúsanna hjer, sem hefir skapað það miður heppilega uppeldi, sem hv. 6. landsk. lýsti hjer fyrir skömmu.