05.04.1929
Efri deild: 37. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í C-deild Alþingistíðinda. (2819)

26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús

Frsm. minni hl. (Jón Þorláksson):

Það kom fram í ræðu hv. 4. landsk. (JBald), að jeg hefi komið við ennþá viðkvæmara sár heldur en jeg gat vitað um. Það mátti næstum heita, að hann slepti sjer alveg, og fór að draga alveg óskyld mál inn í umræðurnar. Jeg skal svara því strax, þar sem hann var að sneiða að mjer fyrir að hafa bygt hús út í götur bæjarins „kryds og þvers“, eins og hann orðaði það. Þetta er algerlega tilhæfulaust hvað mig snertir, en jeg varð fyrir því óhappi, að skipulagsnefnd heimtaði, að hús mitt tæki fram fyrir þá götulínu, sem áður var. Jeg óskaði sjálfur alls ekki eftir breytingunni, og þess vegna eru allar árásir á mig út af þessu í engu bygðar. Þá get jeg leitt algerlega hjá mjer roku hv. 4. landsk. um Íhaldsflokkinn, sem hann sagði að væri öndverður gegn öllu því, er jafnaðarmenn hjer teldu gott og blessað. Þetta er engin álösun á Íhaldsflokkinn, heldur þvert á móti. Jeg vil svo leiðrjetta misskilning, sem fram kom hjá hv. 4. landsk. og hæstv. dómsmrh. út af aðstöðu minni til löggjafar Svía um þessi mál. Jeg get fyrir mitt leyti fallist á að fara eftir þeirri grundvallarreglu Svía, að láta sem flestum vera frjálst að fá leyfi til kvikmyndasýninga, þó með því skilyrði, að lögreglustjórum sje áskilinn rjettur til þess að hindra misindismenn í því að fá slík leyfi. Með þessu er vísað á bug þeirri ásökun, sem hæstv. dómsmrh. og hv. 4. landsk. beindu til mín um það, að jeg vildi hafa „monopol“ á þessu sviði. Það eru hártoganir einar, að ekki sjeu til lög um þetta áður, því að í allar lögreglusamþyktir er sett ákvæði um þetta efni samkvæmt fullri lagaheimild, sem hafa reynst fullnægjandi hingað til, og mun ekki koma að sök þótt það verði látið nægja framvegis.

Þá skal jeg víkja að ræðu hæstv. dómsmrh. Þetta virðist vera fyrsta áhugamál hans á þessu þingi, og það er honum sjerlega viðkvæmt mál, því að nú er hann fyrst líkur sjálfum sjer um ræðulengd og venjulega útúrsnúninga. Mjer er vel kunnugt um, hvers vegna hann berst svo mjög fyrir þessu máli, og hvaða tilgangi hann ætlar að ná með því, en jeg mun ekki víkja neitt að því núna, þar sem hann hóf ekki máls á því sjálfur, en geri það ef til vill einhverntíma síðar. Hann vildi snúa út úr ummælum mínum um eftirlitið og taldi, að jeg vildi ekkert eftirlit hafa. Þetta er fjarri rjettu lagi, en eftirlitið er í mínum augum ótryggara eftir frv. heldur en það er nú, og því er jeg mótfallinn, að það nái fram að ganga. Nú eru að vísu ekki rekin kvikmyndahús nema á eitthvað 10 stöðum á landinu, eða heldur innan við það, en þar sem þessum stöðum fer sífjölgandi má búast við því, að ekki líði á löngu áður en kvikmyndahús verða rekin á einum 30 stöðum á landinu, eða í sem næst öllum kauptúnum og sjávarþorpum. Eftir frv. á svo að skipa 2 skoðunarmenn á hverjum stað, þar sem kvikmyndahús er rekið, og geta þessir skoðunarmenn þá innan skamms orðið 60 á öllu landinu. Ef einhver óhlutvandur maður vill svo fá að sýna mynd, sem er aðlaðandi fyrir þennan lakari hluta fólksins, sem hæstv. dómsmrh. var að tala um áðan, þá þarf hann ekki að vera í neinum vandræðum. Hann hugsar bara um, hvar sje veikur hluti í þessum varnargarði, hvar hann fái 2 skoðunarmenn til þess að samþ. myndina með einhverju móti. Takist honum það, og það mun hann sennilega eiga hægt með, þá má hann sýna myndina hindrunarlaust á öllu landinu. Þetta kalla jeg ótrygt eftirlit.

Hv. frsm. meiri hl. virtist líka hafa komið auga á þetta, því hann sagði, að máske væri ekki rjett að hafa eins marga skoðunarmenn, eins og frv. gerir ráð fyrir, enda er hægt að vísa til erlendra fyrirmynda um það. Á Norðurlöndum er myndskoðun framkvæmd á einum stað í hverju landi. Er þar numið burt úr hverri mynd, það sem ekki þykir viðurkvæmilegt að sýna. En slíkt er ekki hægt hjer, vegna þess að flestar myndirnar eru leigðar, og verður að skila þeim jafngóðum aftur. — Þessi tilhögun á myndskoðun, sem ráðgerð er í frv., getur því orðið bein afturför frá því, sem nú er, og getur verkað sem algert eftirlitsleysi með því, hvernig myndir eru sýndar.

Þá vjek hæstv. dómsmrh. að skattaspursmálinu. Jeg vil benda á, að þegar annarsvegar er um frjálsa samkepni að ræða, þá stenst það ekki, að hafa sjerstakan skatt á þessu til ríkisins. Þá fyrst getur verið um sjerstakt gjald að ræða, ef hindrað er að allir geti rekið atvinnuna. Hæstv. ráðh. talaði um, að ekki væri að marka reikninga kvikmyndahúsanna, af því að það hefði komið í ljós, að einhverjir aðrir hafi svikið skatt. — En jeg hefi sjeð reikninga kvikmyndahúsanna og veit, að þeir eru rjettir. Hæstv. dómsmrh. veit ekkert um þetta, en hugsar aðeins af líkum, af því einhverjir aðrir hafa dregið undan. En náunginn er nú svo gerður, að honum er gjarnt að gera meira úr gróða manna en vert er. — Að vísu hafa kvikmyndahúsin hjer verið rekin með góðum árangri og hafa þess vegna getað komið sjer upp góðum húsakosti. — Mega allir vera ánægðir með það, að þau hafa verið megnug að rækja þá borgaralegu skyldu. — Hæstv. ráðh. færði þessu áliti sínu um gróða kvikmyndahúsanna ekki annað til stuðnings en það, að lítið fje færi út úr landinu til myndakaupa. En jeg hygg, að hjer sje um misskilning að ræða. Jeg býst við, að Hagstofan telji ekki annað til en það, sem fer fyrir keyptar myndir. En nú er það svo, að myndirnar eru yfirleitt leigðar, þeim er skilað aftur þegar búið er að sýna þær. Og þá leigu býst jeg ekki við að Hagstofan taki með í skýrslum sínum um verðmæti innflutningsins. Venjuleg myndaleiga mun vera ¼ hluti aðgöngueyris. Og ef undantekningar eiga sjer stað frá því, þá munu þær vera á þann veg, að leigan sje hærri t. d. fyrir úrvalsmyndir. Þá sagði hæstv. ráðh., að sæti í kvikmyndahúsum hjer væru seld dýrara en á Norðurlöndum. En jeg vil leiða athygli að því, að þau kvikmyndahús í Danmörku, sem greiða 3000 kr. í skatt, selja sætin dýrara en hjer er gert. Aðeins þau kvikmyndahús, sem borga 2000 kr. eða minna, hafa ódýrari sæti en hjer. Nú er það svo með kvikmyndahúsin hjer, að þau standa jafnfætis að gæðum þeim kvikmyndahúsum í Danmörku, sem selja sæti dýrust. Þetta er í sjálfu sjer mjög ánægjulegt. Og jeg segi fyrir mig, að jeg vil engan þátt eiga í þeirri lagasmíði, sem gæti haft það í för með sjer, að notuð yrðu ljeleg húsakynni til sýninga. Jeg læt mjer í ljettu rúmi liggja raus hæstv. ráðh. um það, að kvikmyndahúsin hafi verið stórgjöful til flokksþarfa Íhaldsflokksins. Af þeim hefir ekki verið heimtað meira en öðrum til þeirra þarfa. Og svo er fyrir að þakka, að Íhaldsflokkurinn hefir ekki verið í neinum vandræðum með útgjöld sín, enda ekki þurft miklu til að kosta fyrir sinn málstað, enda hefir hann fylgi helmings þjóðarinnar.

Um brtt. á þskj. 265,2 c þarf jeg ekki að ræða, þar sem hv. flm. hennar hefir tekið hana aftur.

En út af brjefi því, sem hæstv. dómsmrh. las úr, frá vini sínum á Akureyri, þá vil jeg segja það, að jeg hygg, að torfundinn muni bíó-eigandi, sem ekki vildi gjarna skattfrelsi, ef þungur skattur verður lagður á þessar stofnanir. Veit jeg, að allir hv. þdm. skilja það, að þeir mundu láta sjer það vel líka. — Jeg veit ekki til, að hjer sje neinn bíó-hringur. Annað kvikmyndahúsið er einkaeign borgara hjer, sem að vísu er af erlendu bergi brotinn. Hitt er eign fjelags. Þau eru ekkert í sambandi við erlenda hringa.

Jeg hefi þá svarað öllu, sem nokkur ástæða er til að svara. Jeg þarf ekki að svara þeim fullyrðingum, sem vanar eru að heyrast frá hæstv. dómsmrh. um það, að hann hafi hinn siðferðilega og menningarlega grundvöll sín megin í þessu máli sem öðrum. Allur landslýður brosir að slíkum yfirlýsingum þegar þær koma frá honum. Í ræðu hv. frsm. meiri hl. var ekkert nýtt annað en það, að hann virtist fallast á, að myndskoðun sú, sem frv. gerir ráð fyrir, geti verið athugaverð.