23.04.1929
Neðri deild: 52. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í C-deild Alþingistíðinda. (2833)
26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús
Magnús Guðmundsson:
Jeg skal viðurkenna, að jeg hefi ekki athugað þetta mál mikið, en jeg hefi ekki getað sjeð, hvort það er tilætlunin, að þeir menn, sem nú hafa sýningarleyfi, þurfi að fá það að nýju, eða að gamla leyfið eigi að standa óbreytt. Jeg óska eftir að fá skýringu á þessu hjá hæstv. dómsmrh.