23.04.1929
Neðri deild: 52. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í C-deild Alþingistíðinda. (2835)

26. mál, kvikmyndir og kvikmyndahús

Magnús Guðmundsson:

Jeg vil þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svarið, því að sjálfsögðu skil jeg það svo, að þeir menn, sem nú hafa leyfi til þess að reka kvikmyndahús, geti notað sitt gamla leyfi áfram, þrátt fyrir orðalag 1. gr. frv.

Hvað snertir ummæli hæstv. dómsmrh. um áfengisbannið, í sambandi við þetta, þá álít jeg, að þetta sje alls ekki svipað spursmál. Þá var um það að ræða að banna aðflutning og sölu á áfengi, og hlaut þá svo að fara, að áfengisbúðirnar mistu sín rjettindi og enginn fengi þau aftur. Hjer er aftur á móti um það að ræða, að halda þessari starfsemi áfram, en á áfengið var lagt algert bann, svo að ekki gat komið til mála að láta gömlu söluleyfin halda sjer áfram. Jeg tek þetta fram, þó að það skifti ekki máli, en get að öðru leyti látið mjer nægja að vísa til svars hæstv. dómsmrh. um það, að hann telur, að að óbreyttu orðalagi frv. þurfi núverandi leyfishafar ekki nýtt leyfi.