16.03.1929
Neðri deild: 24. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í C-deild Alþingistíðinda. (2858)
28. mál, fátækralög
Þorleifur Jónsson:
Jeg tel ekki vert að teygja umræðurnar lengur og skal ekki þreyta hv. þdm. með langri ræðu. Jeg skal þá fyrst lýsa yfir því, að jeg er alveg samþykkur þessu frv., sem hjer liggur fyrir, um að stytta sveitfestitímann niður í 2 ár. Hefir það verið mín skoðun áður, að stytta ætti sveitfestitímann niður í 2 ár og tel jeg ekki nema rjettmætt, að þeir landshlutar og bygðarlög, sem draga fólk til sín sökum góðra atvinnuskilyrða, beri líka byrðar af því fólki, ef það verður styrks þurfandi. Mesta kost þessa frv. tel jeg þó, að þar er numið úr gildi ákvæði, sem komst inn í fátækralögin síðustu um það, að skilyrði til þess að vinna sjer sveit væri, að maðurinn hefði ekki þegið sveitarstyrk afturkræfan eða óafturkræfan síðustu 10 árin. Með þessu ákvæði var dregið svo úr styttingu sveitfestitímans, að lögin náðu ekki tilgangi sínum að þessu leyti.
Í sambandi við styttingu sveitfestitímans, hvort sem er niður í 2 ár eða 1 ár, eins og hv. 1. þm. N.-M. fer fram á, er nauðsynlegt að setja nákvæmari reglur um heimilisfang manna. Eru engar lagareglur til um það, að mönnum sje skylt að tilkynna hlutaðeigandi lögreglustjórn eða sveitastjórnum um heimilisfang sitt, eða a. m. k. mun það títt, að það sje vanrækt, enda er nú margt af lausafólki á ferð og flugi um alt landið, sem enginn veit hvar á heima. Jeg held, að margt af því hafi hvergi lögheimili, og sleppi þannig við sveitarútsvör og önnur opinber gjöld. Þarf nauðsynlega að lögleiða eitthvað um þetta efni, og mætti kalla það bygðaleyfi og fara í líka átt eins og frv. það, sem hv. 2. þm. Eyf. hefir flutt hjer áður í þeim tilgangi. Þarf endilega að kippa þessu í lag.
Annars stóð jeg aðallega upp út af ummælum og orðalagi hv. 2. þm. Reykv. um þau hjeruð, sem litla fátækrabyrði hefðu að bera. Hann komst svo að orði, að ekki væri sómasamlegt að láta suma hreppa borga aðeins 60 aura á mann til fátækraframfæris, en aðra svo og svo mikið. Hv. 1. þm. N.-M. las hjer upp mjög fróðlega skýrslu um fátækrabyrðina árin 1924–1925. Sjest þar, að Austur-Skaftafellssýsla er lang lægst. Hv. 2. þm. Reykv. vill nú ef til vill líta svo á, að illa sje farið með þurfalinga þar, og þess vegna sje byrðin svona lítil, en jeg vil upplýsa, að svo er ekki. Kostnaðurinn við fátækraframfærslu er þar að vísu mjög lítill á pappírnum, en það er heldur ekki nema á pappírnum, því að það er ekki svo að skilja, að öll kurl komi til grafar á þessari skýrslu. Austur- Skaftafellssýsla hefir ekki farið varhluta af því, fremur en önnur hjeruð, að fá sendar heim fjölskyldur frá sjóþorpunum, bæði frá Reykjavík og Vestmannaeyjum. Man jeg eftir því, að núna fyrir fáum árum voru sendar 2 fjölskyldur sín á hvorn hrepp í Austur-Skaftafellssýslu, önnur með 7 eða 8 börn, en hin með 5 eða 6. Hvað gerðu hreppsbúar, þegar svo var komið? Þá komu betur stæðu heimilin sjer saman um að skifta börnunum á milli sín og ala þau upp án nokkurs kostnaðar fyrir sveitarsjóðinn. (Rödd af þingbekkjum: Þetta á sjer stað alstaðar). Máske í sveitum, en ekki í kaupstöðum. Á þennan hátt er hægt að minka kostnaðinn á pappírnum, en sýslubúar verða samt að bera hann, þótt hann komi ekki fram í neinni skýrslu. Venjan með aldraða menn er og oft sú, að lofa þeim að velja sjer heimili þar, sem þeir helst vilja dvelja, og er það venjulega það heimilið, sem þeir hafa lengst dvalið á. Flest gamalmenni fá svo lítilsháttar ellistyrk, sem rennur til húsbændanna sem meðlag, en að öðru leyti sjá heimilin algerlega fyrir þeim. Þó þetta þyki ef til vill nokkuð gamaldags hugsunarháttur, sem ekki eigi við nútímann, þá finst mjer hann nú ekki neitt ljótur, og það er víst, að altaf er kostað kapps um það í Austur- Skaftafellssýslu, að láta fara sem best um þurfalingana, hvort sem það eru börn eða gamalmenni. Ætti mönnum nú að geta skilist, að ómagaframfærslan þar getur verið sómasamleg, þótt kostnaðurinn við hana sje ekki meiri en þetta á pappírnum. Auk þess mun sýslan vera svo heppin að hafa tiltölulega fáum þurfalingum fyrir að sjá. Skal jeg svo ekki fara um þetta fleiri orðum, en vildi aðeins taka þetta fram til skýringar á þeim mikla kostnaðarmismun, sem er milli þessarar sýslu og annarra. Hefi jeg sýnt fram á, að hann stingur þar í stúf af eðlilegum ástæðum.