16.03.1929
Neðri deild: 24. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í C-deild Alþingistíðinda. (2860)

28. mál, fátækralög

Frsm. minni hl. (Hjeðinn Valdimarsson):

Hv. þm. A.-Sk. hjelt hjer stutta ræðu áðan. Álasaði hann mjer fyrir það, að það hefði legið í orðum mínum, að jeg áliti fátækraframfærið ekki sómasamlegt í Austur-Skaftafellssýslu og meðferð þurfalinganna þar ef til vill ekki sem besta. Þetta var nú alls ekki meining mín, en það getur vel verið, að jeg hafi komist klaufalega að orði. Jeg átti við það, að það gæti ekki talist sómasamlegt, að kostnaðarmunurinn við fátækraframfærsluna væri svona mikill milli hinna einstöku sveita. Jeg hefi einmitt heyrt, að Austur-Skaftafellssýsla fari mjög vel með sína þurfamenn, og fjekk jeg það staðfest með orðum hv. þm. A.-Sk. núna áðan, og hefi jeg enga ástæðu til að væna hann um, að hanni skýri þar ekki rjett frá. Auðvitað er það rjett, að sá kostnaður, sem góðgerðasamir einstaklingar bera vegna þurfalinganna, kemur ekki fram í skýrslu sveitarsjóðs um fátækrakostnaðinn, en jeg vil halda því fram, að slík góðgerðasemi eigi sjer ekki síður stað í kauptúnum en sveitum. Býst jeg við, að Austur-Skaftafellssýsla skeri sig ekki úr hvað það snertir.

Hv. þm. V.-Húnv. mintist á það, að framfærslukostnaður þeirra, sem af sveit þiggja, væri meiri hjer í Reykjavík og Gullbringu- og Kjósarsýslu en annarsstaðar á landinu. Hvernig þetta er hjá honum, skal jeg ekkert um segja, en til skamms tíma hefir sú regla verið hjer í Reykjavík, að styrkur þessi til þurfamanna hefir verið sem næst 1 kr. á mann á dag, til fæðis og annara útgjalda en húsnæðis og stundum fatnaðar. Jeg fæ ekki sjeð, að það sje svo afskaplega hátt, að menn muni sækjast eftir því að komast á bæjarsjóð Reykjavíkur til þess að lifa á slíkum styrk.

Þá sagði þessi hv. þm., að svo framarlega, sem sú kenning okkar jafnaðarmanna yrði ofan á, að landið yrði gert alt að einu framfærsluhjeraði, þá myndi hver sveitarstjórn kosta kapps um, að fátækraframfærslan yrði sem mest hjá sjer. Jeg skil hreint og beint ekkert í, hvernig honum getur dottið í hug að væna sveitarstjórnirnar um slíkt, þegar landið er í einni samábyrgð um þessa hluti. Það væri alveg sama og ef þessi hv. þm., sem er kaupfjelagsstjóri fyrir kaupfjelagi, sem er í samábyrgð, reri að því öllum árum, að borga sem allra hæst laun til starfsfólks síns. (HJ: Þetta er ekkert sambærilegt). Hann væri í samábyrgð með öðrum fjelagsmönnum og hefði að því leyti sameiginlega hagsmuni við þá og fjelagið, en svo ætti hann hinsvegar eftir aðdróttunum hv. þm. V.-Húnv., að reyna að skara sem mest eld að köku þeirra, sem undir honum stæðu, á kostnað allra fjelagsmanna. Slíkt væri ekkert annað en „svindl“, sem ætti að vera hegningarvert.

Sveitarstjórnirnar eiga að vera trúnaðarmenn allrar þjóðarinnar í þessum efnum, og engin hætta er á því, að þær mundu yfirleitt bregðast þessum trúnaði.

Verði tveggja ára sveitfestitíminn samþyktur, þá sje jeg ekki betur en að það verði til þess að verðlauna þá staði, sem hægast eiga með að framfæra fátæklinga sína, og þá líka, sem verst fara með þá.

Þá hygg jeg líka, ef síðara ákvæði frv.greinarinnar verður samþykt óbreytt, að menn vinni sjer sveitfesti með 2ja ára dvöl, enda þótt þeir standi í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk frá öðrum tímum, að röggsamari sveitarstjórnirnar að minsta kosti munu ekki telja eftir sjer að leggja þurfalingum sínum styrk þessi tvö ár, t. d. hingað til Reykjavíkur, svo lítið beri á, til þess að losna við þá.

Þá er það einnig auðsætt, eins og tekið hefir verið fram, að svo fremi sem frv. þetta verður samþykt, yrði það til þess að auka rifrildi og reiptog milli sveitarstjórnanna, svo það yrði miklu meira en nokkurn tíma hefir þekst áður, en jafnframt myndi það verða til þess að ýta undir þá kröfu, að vernda bæina fyrir innflutningi fólks annaðhvort með bygðarleyfi, eða þá að heimtað væri, eins og t. d. gert er í Ameríku, að menn hefðu einhverja ákveðna peningafúlgu í höndum, til þess að fá innflutningsleyfi. En slíkar ráðstafanir mundu verða mjög óheppilegar fyrir alla þá, sem þyrftu að bæta hag sinn með því að flytja á betri stað fyrir atvinnu þeirra og mundu ekki gagna sveitunum.

Jeg sje það í þingmálafundargerðum úr Árnessýslu, kjördæmi hv. flm. frv. þessa, að í sveitunum eru fyrir hans tilstilli samþyktar tillögur um tveggja ára sveitfestitíma, en í kauptúnunum, Eyrarbakka og Stokkseyri, eru einnig fyrir hans tilstilli samþyktar till. um það, að dvalarsveitin sje jafnframt framfærslusveit.

Væri nú gott að fá skýringu á því hjá hv. þm., hvernig á þessum tveimur höfðum stendur.