26.03.1929
Neðri deild: 32. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 943 í C-deild Alþingistíðinda. (2868)

28. mál, fátækralög

Hannes Jónsson:

Í samræmi við ummæli mín við 2. umr. hefi jeg leyft mjer að bera fram brtt, á þskj. 176, sem felur í sjer, að ef maður, sem þegið hefir sveitarstyrk, flyst í annan hrepp og verður þar styrksþurfi, eftir að hafa unnið sjer þar framfærslusveit, þá verður sá styrkur óendurkræfur, ef efnahag styrkþega er svo háttað, að endurgreiðsla styrksins verði þess valdandi, að hann þurfi að leita sveitarhjálpar á ný. Skal það fara eftir áliti lögreglustjóra þess hrepps, þar sem hann er búsettur. Þegar sveitfestitíminn er styttur svo mjög sem gert er í frv., virðist mjer ákvæði sem þetta nauðsynlegt, svo að ekki sje hægt að eyðileggja sjálfsbjargarmöguleika manna, sem áður hafa þegið styrk, en bjargast síðar af eigin ramleik að mestu eða öllu leyti.

Jeg tel svo óþarft að fjölyrða um þetta frekar. Enda hygg jeg að hv. nefnd telji till. til bóta og muni mæla með henni.