26.03.1929
Neðri deild: 32. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í C-deild Alþingistíðinda. (2869)
28. mál, fátækralög
Frsm. meiri hl. (Hákon Kristófersson):
Fyrir hönd n. hefi jeg ekki annað segja, en að n. telur brtt. hv. þm. V.-Húnv. sanngjarna. Og þótt hún verði það máske ekki í garð einstakra hreppa, þá getur n., þegar litið er á hag heildarinnar, gengið inn á brtt. þessa. Vonast n. eftir, að hv. deild samþ. því bæði brtt. og frv. eins og það liggur fyrir.