25.02.1929
Neðri deild: 7. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í C-deild Alþingistíðinda. (2878)
29. mál, alþýðufræðsla á Ísafirði
Jón A. Jónsson:
Jeg er sammála hv. flm. um það, að Vestfirðir hafi orðið mjög út undan í fræðslumálunum. Það litla, sem ríkissjóður hefir lagt af mörkum til skólanna þar, er meira til að sýnast heldur en til nokkurs verulegs gagns. Frv., sem liggur fyrir, virðist samt sem áður aðeins bráðabirgðafyrirkomulag og ljetta að einhverju leyti kostnað við kenslu ungmenna í Ísafjarðarkaupstað. En sem framtíðarskipulag get jeg ekki sjeð að þetta dugi.
Eins og hv. flm. gat um, þá hefir verið — og er enn — álit Ísfirðinga, að þeir þurfi að fá gagnfræðaskóla, sem fyrst og fremst veiti unglingum almenna fræðslu, en jafnframt og ekki síður ljetta undir með ungum námsmönnum að ganga mentaveginn. Og til þess er aðeins ein leið, að hafa gagnfræðaskóla, þar sem menn geta notið undirbúningskenslu undir 4. bekk hjer.
Með tilliti til þess, hvað Ísafjarðarkaupstaður og Vestfirðir leggja af mörkum til ríkissjóðs, þá held jeg, að ekki sje farið fram á of mikið, þótt gagnfræðaskóli yrði settur á stofn með heimavist. Mjer er það vel kunnugt, líka af eigin reynd, að það er næsta erfitt fyrir efnalitla menn að koma börnum sínum til mentunar alt að stúdentsprófi. Það má heita svo, að það sje ofvaxið allflestum bændum og öðrum efnalitlum mönnum, meðan svo er ástatt sem nú er.
Eins og menn vita, hafa Norðlendingar um langt skeið haft alt aðra aðstöðu, þar sem er Gagnfræðaskólinn á Akureyri með heimavist. Það er líka venjulega ljettara að kosta krakka sína til náms innan hjeraðs heldur en utan, enda þótt utan heimilis sje. Og það mundi verða Ísfirðingum margfalt ódýrara og Vestfirðingum í heild, ef heimavistarskóli væri á Ísafirði, heldur en senda börn sín til Akureyrar, enda þótt skólinn þar sje ódýr. En eins og menn vita, hefir á síðustu árum verið mjög takmarkað rúm hjá gagnfræðadeildinni á Akureyri. Mjer er kunnugt um, að fleiri en einn og fleiri en tveir unglingar af Vestfjörðum — Ísafjarðarsýslu — hafa reynt að fá þar upptöku, en var synjað af þeim orsökum. Það er öldungis víst, að margir vel gefnir og námfúsir unglingar fátækra manna á Vestfjörðum verða beinlínis að fara á mis við mentun af þessari ástæðu, að ekki er til gagnfræðaskóli á Ísafirði.
Nú fyrir tveimur dögum fjekk jeg áskorun um það úr tveimur hreppum sýslunnar að flytja það frv., sem flutt hefir verið á undanförnum þingum af fyrv. þm. Ísaf. Og jeg býst við að verða við þeim tilmælum, því að sannast að segja er hjer sú nauðsyn á ferð, sem verður að bæta úr að einhverju leyti. Hins vegar verður það að viðurkennast, að íbúar Ísafjarðarkaupstaðar eiga gott skilið. Þeir hafa sýnt mikinn dugnað og áhuga í fræðslumálum og goldið mikið framlag til síns ungmennaskóla í kaupstaðnum. Ekki er því að neita, að mörg ungmenni innan sýslunnar hafa notið þar hinnar bestu fræðslu. Sá skóli hefir fengið það orð á sig, að vera einhver fremsti og besti ungmennaskóli landsins. En hann fullnægir ekki Ísafjarðarkaupstað, og því síður sýslunum í kring. Einkum er það, að það er næstum ókleift allflestum mönnum að kosta krakka sína á Ísafirði, vegna þess að heimavist vantar við þennan skóla.