25.02.1929
Neðri deild: 7. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í C-deild Alþingistíðinda. (2881)

29. mál, alþýðufræðsla á Ísafirði

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Mjer þykir ákaflega leitt, að tvö frv. skuli vera komin fram í sömu deildinni um þetta efni. Ef það er aðallega heimavistin, sem vakir fyrir hv. þm. N.-Ísf., þá skilst mjer, að hægt sje að koma með brtt. við frv. mitt í þá átt, að fje verði lagt fram, þegar til byggingar kemur, með því skilyrði, að bygð verði heimavist við skólann. En í frv. mínu er gert ráð fyrir sömu hlutföllum og við aðra skóla á landinu. Um leið og skólanum yrði sjeð fyrir húsnæði, yrði að sjálfsögðu athugað, hvort ekki mætti hafa heimavist fyrir utanbæjarnemendur í sambandi við skólann. Sýnist mjer það æskilegt í alla staði.